Bankablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 60
Skólastarfið í vetur.
Vetrarstarfið á yfirstandandi vetri, skólaárið
1979—80, hófst með námstefnu útibústjóra
bankanna, sem haldin var á Laugarvatni í lok
september, þar sem aðallega var rætt um vaxta-
málin og efnahagslögin, lánsfjáráætlunina, ný
sjónarmið við gerð skuldaskjala, afurðarlánin,
mat lánsfjárumsókna og stöðu útibúanna í
bankakerfinu. Þátttakendur voru um 65, en
fyrirlesarar voru 13 talsins.
Nýliðanámskeið liófst svo um miðjan októ-
ber, sem er óvenju seint, vegna utanfarar skóla-
nefndarmanna á norrænan fund um fræðslu-
mál bankamanna. Tveir hópar eru nú á nám-
skeiðinu, alls tæpir 60 þátttakendur. Nokkrar
lagfæringar voru gerðar á námsefninu, og
nokkur kennaraskipti urðu. Námskeiðunum
lýkur um miðjan desember. Sú eina kennslu-
stofa, sem skólinn hefur til umráða, er næstum
fullnýtt vegna nýliðanámskeiðsins, tveir eftir-
miðdagar koma til greina til annarra nota.
Það er augljóst, að skólastarfið er að sprengja
af sér húsnæðið, svo að brátt verður að grípa til
einhverra ráða. Annað hvort er að breyta þess-
um sal í tvær jafngóðar og jafnstórar kennslu-
stofur, sem unnt er að gera með litlu bram-
bolti, eða þá að leita eftir öðru húsnæði, með
tveim eða þrem kennslustofum og góðri að-
stöðu fyrir skrifstofu, kennarastofu, bókasafn
og geymslurými. Samt sem áður stendur til að
setja í gang einhver sérnámskeið í næsta mán-
uði. Aðallega koma til greina gjaldeyrisnám-
skeið af einhverju tagi. Eftir áramótin aftur á
móti verður meira svigrúm fyrir sérnámskeið-
in. Þá stendur til að endurtaka tölvu- og rit-
aranámskeiðin frá í fyrra, koma upp nýjum
hópi í stjórnun, og e.t.v. einnig stjórnun III.
Ný námskeið verða sett upp varðandi tölvum-
ar, „Tölvur II“, fyrir þá sem lokið hafa „Tölv-
um I“, og einnig verður reynt að korna upp
,,Öryggisnámskeiði fyrir dyra-, hús- og birgða-
verði og aðra slíka starfsmenn. Loks verða svo
útbúin sérnámskeið utanum helstu deildir
bankanna, fyrir þá, sem nýlega hafa byrjað
störf þar, s. s. sparisjóðs-, hlaupareiknings- og
verðbréfadeildir, og einnig röð gjaldeyrisnám-
skeiða. í athugun er að koma upp gjaldkera-
námskeiði af einhverju tagi.
Umræðu- og fræðslufundi stendur til að
halda um þau nýmæli sem eru á döfinni í
bankamálum nú, helst hið nýja afgreiðslukerfi
gjaldeyris og breytingu á seðla- og myntkerf-
inu.
Fra mhaldsnámskeið.
Það sem fyrirferðamest verður og nýstárleg-
ast í starfi skólans í vetur verður framhalds-
námskeið, sem verið hefur í undirbúningi
lengi, ætlað eldri bankamönnum, og þeirn, sem
lokið liafa nýliðanámskeiðunum fyrir nokkr-
um árum. Það er röð námskeið, í fjórum önn-
um, þ.e. tvo vetur, ef menn ganga í gegnum
þaðallt í einni lotu. A hverri önn verða kennd-
ar sjö námsgreinar, tvær eða þrjár stundir á
dag, og prófað í lok hverrar annar. Námsgrein-
ar verða átta talsins, aðallega almennar við-
skipta- og bankagreinar. Kennslan verður í
höndum reyndra bankamanna, sem verið hafa
við undirbúningsstörf nú um nokkra hríð.
Fyrirhugað er að byrja á þessum námskeið-
um með um 25 manna hóp upp úr miðjum
janúar, og að prófað verði í maí. Sami hópur
mundi svo halda áfrarn næsta haust, og nýr
hópur byrja þá um leið. Stefnt er að því að á
næstu þrem eða fjórum árum geti um 100
manns útskrifast úr þessu nýja námi. (Sjá nán-
ar um þetta nám í grein annars staðar í blað-
inu.) Útlit er fyrir að um 350 til 400 manns
taki þátt í starfi skólans á þessu skólaári, sem
er sennilega það mesta, sem núverandi hús-
næði getur annað. Um það bil fimmti hver
bankamaður tekur þátt í starfi skólans í ár.
Þorsteinn Magnússon, skólastjóri.
44 BANKABLAÐIÐ