Bankablaðið - 01.12.1979, Page 44
ist til menntunar 1974 og um mitt ár 1975 var
fyrsta verkefnið, bókun ávísana- og hlaupa-
reiknings, tilbúið til notkuar. Áætlað var, að
færslufjöldi yrði um 71/^ milljón, og vélakostur
sem leysa átti þetta verkefni og átti að geta tek-
ið við aukningu í nokkur ár var IBM 370/135
með 144 þúsund stafa minni, 3 segulbands-
stöðvum og 2 seguldiskum, prentara, sem skrif-
aði 2000 línur á mínútu, spjaldalesara og
tveimur vélum, sem lesa og raða tékkum eftir
prentuðum og árituðum upplýsingum með
sérstöku letri, svokölluðu OCR-letri.
Magnið sem bókfæra þurfti, varð fljótt mun
meira en reiknað hafði verið með, eða 11.3
milljón færslur fyrsta árið, 15.2 milljónir ann-
að árið og 19.6 þriðja árið. Því var minni vélar-
innar aukið í 256 þúsund stafi, seguldiskum
fjölgað um tvo og síðar enn um tvo, segul-
bandsstöðvar urðu 4 í stað 3ja og bætt var við
prentara, sem prentar 1100 línur á mínútu.
Þá kom á markaðinn ný tækni: vél sem hægt
er að skrifa á færslur inn í segulplötur í stað
gataspjaldanna áður og er unnt að tengja hana
síma á aðra hlið en prentara á hina.
Flestallir bainkarnir hafa tekið upp þessa
nýju gagnaskráningu og því þurfti Reiknistof-
an að fá vél til að lesa af þessum plötum.
En það kallaði á fleira. Þrjár slíkar vélar eru
nú notaðar til þess að hafa símasamband við
20 bankaútibú úti á landi, til móttöku færslna
að kvöldi og sendingar bókunargagna á plötu
að morgni, en þau gögn eru síðan prentuð út
á staðnum.
Nú njóta 80 afgreiðslustaðir banka og
sparisjóða þjónustu Reiknistofu bankanna.
Haustið 1978 var tekinn í notkun nýr rafreikn-
ir, IBM 370/148 með einnar milljón stafa
minni. Ennfremur var tekin í notkun ný gerð
seguldiska og diskarými nær fjórfaldað. Á döf-
inni er að auka hraða segulbandsstöðvanna
sem fyrir eru.
Þessi stækkun gerir Reiknistofunni kleift að
taka upp beinlínusamband hvort heldur er við
forrita stofunnar, eða við bankana sjálfa.
Landsbankinn mun taka upp slíkt beinlínu-
samband við Reiknistofuna til viðhalds á for-
ritum sínum og jafnvel til stjórnar vinnslu á
sérverkefnum sínum.
Iðnaðarbankinn stefnir að því að taka í notk-
un á næsta ári svonefnt IBM-3600 afgreiðslu-
vélakerfi, sem gagnaskráir færslurnar um leið
og gjaldkeri slær þær inn í vélina.
Verslunarbankinn stefnir einnig að því að
taka í notkun afgreiðsluvélar frá Digital og það
í beinni tengingu við eigin Digital-rafreikni.
Enn er ótalin ný tækni, sem Reiknistofan
hefur tekið á leigu tæki til framkvæmda á, en
það er myndskráning. Nú er unnt að senda allt
að 270 tölvusíður út á lófastórri míkrófilmu,
sem síðan verður skoðuð síðu fyrir síðu á
stækkunarskjá í viðkomandi banka.
Fylgist með
efnahagsmálum
Lesið HAGTÖLUR MÁNAÐARINS
Afgreiðsla i Hagfræðideild Seðlabanka íslands
28 BANKABLAÐIÐ