Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 8

Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 8
í stað og „slegið öllu við“ ...“. Þetta var í gagnrýni um plötuna „Dinah“/ „Once in a while“, leikinni af Reinhold Svensson kvintettinum. Nokkrir negrar hafa verið hér og leikið með sænskum hljómsveitum. — Peanuts Holland, Tyree Glenn, Jimmy Woode, Rex Stewart, Vernon Story, Ted Curry og James Moody eru þeir, sem ég man eftir í svipinn. É'g ætla að telja upp nokkrar plötur, þar sem erlendir hljóðfæraleikarar hafa leikið með: Fjórar hliðar með Rex Stewart: „Boy meets horn“, „Waiting for the train to come in“, „Run to the corner“ og „Basin street blues“. Sex hliðar með Chubby Jackson: „Crown pilot“, „Lemon drop“, „Begin the beguine", „Boomsoe“ og „Dee Dee’s dance“. Zoot Sims: „Yellow duck“, „Amer- ican in Sweden“, „All the things you are“ og „Tickle toe“. Að lokum ætla ég að leyfa mér að skýra frá hvaða jazzviðburður hefur hrifið mig mest undanfarið. Ég er ekki í neinum vafa um að það voru hljóm- leikar Armstrong, þar sem Teagarden og Hines „stálu hljómleikunum“, með sinni alkunnu leikni og síðan hljóm- leikarnir, sem Duke Ellington lék með öllum sínum prýðilegu mönnum að við- bættum Don Byas, sem stóð sig ágæt- lega með Duke. Auk þess notaði Duke tvo trommuleikara í einu, og var það tilraun, sem ekki hefur verið reynd áður, en heppnaðist prýðilega, þar sem hún var framkvæmd af smekkvísi. Eins og er þurfum við jazzvinir í Sví- þjóð engu að kvíða. Og vildi ég óska jafn góðra daga öllum öðrum löndum, sérstaklega þar sem ég veit að jazz- tónlistin getur, og hefur þegar, bundið menn tryggðarböndum úr hinum ólík- ustu löndum heims. Enda er jazztón- listin að verða alþjóðatónlist. Eða hvað fínnst ykkur! Nýlega er komin út bók frá Metro- nome í New York og nefnist hún Jazz 1950. Bók þessi er hin vandaðasta sinn- ar tegundar og eru í henni fjöldi ágætra greina um jazz og jazzleikara. Margar myndir prýða bókina og eru nokkrar þein-a teknar af ljósmyndaranum Her- man Leonard, og væri aðeins ein þeirra nóg til þess að maður keypti bók þessa, slíkar afburða myndir eru þetta. Bókin er 104 blaðsíður og prentuð á betri pappir en nokkur íslenzkur bókaútgef- andi gæti látið sig dreyma um. Verð hennar er 1 dollar og fæst hún hjá flestum bóksölum (í USA). Danslagatextar, eftir Theódór Einars- son, heitir lítil bók, sem fyrir nokkrum vikum er komin út hér á landi. Margt er þarna ágætra texta, enda ku hér vera á ferðinni alvanur textasmiður. Sá gall- inn er þó á, að margir þessara texta stemma ekki nærri því nógu vel við lög þau, sem tilgreind eru og þar með verða þeir verðlausir. Einnig hefði prófarka- lestur bókarinnar mátt vera betri, því að á hverri einustu síðu er ein eða fleiri villur. Myndin framan á bókinni er af EF kvintettinum á Akranesi, og er hún mjög skýr og góð. Bókin kostar 4 krónur. Nýjar bækur 8 jazzlUit

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.