Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 12
Hinn heimsfrægi ameríski söngkvart-
ett The Delta Rhythm Boys hafa vakið
mikla athygli á útiskammtistaðnum
„Nöjesfáltet" í Stokkhólmi, þar sem
þeir hafa verið í rúma tvo mánuði.
Þessi frægi kvartett saman stendur
af Carl Jones, fyrsta tenór og útsetjara,
Traverse Crawford öðrum tenór, Kel-
sey Pharr barytón, Lee Gaines bassa
og René DeKnight píanóleikara og út-
setjara.
Þeim hefur verið ákaflega vel fagnað
hér og hafa áheyrendur aldrei sleppt
þeim af sviðinu fyrr en að loknum
mörgum aukalögum.
Allir eru þeir hinir skemmtilegustu,
og sagði Carl Jones, sá sem ég ræddi
aðallega við, margt skemmtilegt um
R
A H
T Y
L T
jazzlífið í Bandaríkjunum. Hann sagði
m. a.:
„1 dag er Dixieland-jazzinn aftur að
ryðja sér til rúms meðal hljóðfæraleik-
ara. Meira að segja Be-bop leikararnir
eru teknir til við hann, og ástandið er
harla óskemmtilegt".
,,Já“, sagði ég, „sennilega þurfa þeir
gott ár til að skipta um stíl, ef þeir þá
geta það“.
„Satt segirðu", hélt hann áfram, „en
ég hef gaman af Dixieland hljóm-
sveitunum hér í Svíþjóð".
„Nú ?‘“
„Já, og einnig þeim með nýja stílinn.
Ég get bætt því hér við, að á hljómleik-
um okkar erum við jafnan mið hið
nýrra, en ekki alltaf með þetta sama
gamla, en fólkið virðist helzt óska eftir
því eldra, svo að við verðum að syngja
mikið af slíku. Eitt af uppáhaldslögum
fólksins, sem við syngjum er „Take the
A train“. Síðan hélt hann áfram. „Skil-
aðu kveðju okkar til íslands og viltu
gjöra svo vel að senda okkur eintak af
því hefti Jazzblaðsins, sem greinin um
okkur kemur í“.
Ég skila hér með kveðjunni, og veit
að ritstjórinn mun sjá um að þeir fái
blaðið. Benny Aaslund. ■
12 ^azzlUií