Jazzblaðið - 01.09.1950, Side 17
Bandaríkin.
★ Maynard Fevguson, kanadíski trom-
petleikarinn, sem vakti heimsathygli
meðal jazzáhugamanna fyrir hinn af-
burða góða trompetleik sinn með hljóm-
sveit Stan Kenton á síðasta hljómleika-
ferðalagi hennar, er nú að stofna eigin
hljómsveit og mun framkvæmdarstjóri
Kenton vera hjá Ferguson. Maynard
Ferguson hefur leikið í Bandarikjunum
í rúmt ár og hefur leikur hans vakið
fádæma eftirtekt. Enginn annar trom-
petleikari er sagður geta leikið jafn
hátt á trompetinn, en samt hreint og
óþvingað, og hann.
hljómsveit. Þeir, sem léku með honum
voru J. J. Johnson trombón, Leo Parker
baritón, Milton Jackson vibrafón, Bud
Powell píanó, Gene Ramey bassi og
Max Roach trommur. Þetta eru allt
fremstu Be-bop leikararnir hver á sitt
hljóðfæri.
★ Woody Herman hljómsveitin nýja er
nú að æfast saman og búast menn við
miklu af henni. Sænski trompetleikar-
inn Rolf Erickson er með hljómsveit-
inni og er þetta stærsta tækifærið, sem
hann hefur fengið siðan hann fór til
U. S. A.
★ Dizzy Gillespie hefur nú loksins orð-
ið að leggja niður stóru hljómsveitina
sína, þar sem hann gat ekki lengur
fengið vinnu fyrir hana. Leitt er til
þess að vita, því að þetta er ein bezta
hljómsveitin, sem hann hefur haft síð-
an hann byrjaði með stóra hljómsveit
fyrir fjórum árum. Hann leikur nú í
sex manna hljómsveit og býst við að
bnrfa að gera það fyrst um sinn.
★ Miles Davis trompetleikari, sem ver-
iö hefur eitt stærsta nafnið í hópi Be-
bop leikara undanfarið ár hefur ný-
lega verið með sannkallaða stjörnu
★ Leo Watson lézt fyrir nokkru í Los
Angeles, 52 ára gamall. Leo söng fyrr
á árum með The Five Spirits of Rhythm
og eins með hljómsveit Gene Krupa
1938. Ennfremur lék hann á trombón
og trommur.
★ Teddy Wilson hefur undanfarið ver-
ið með litla hljómsveit á Café Society
í New York, og er þetta í fyrsta sinn
í mörg ár, sem hann leikur í nætur-
klúbb. Hann hefur aðallega fengizt við
kennslu, leikið inn á plötur og í útvai'p
og örsjaldan á hljómleikum.
SanlUit 17