Jazzblaðið - 01.12.1952, Side 8

Jazzblaðið - 01.12.1952, Side 8
einn ætti að hugsa sig tvisvar um áður en hann stígur það vandasama skref að velja sér lífsstarf. Að sjálfsögðu er það töfrandi í augum margra unglinga að leika á hljóðfæri, en þegar fram í sækir þá hefur sá atvinnuvegurinn yfirhönd- ina, sem skapar mönnum möguleika á, að hafa í sig og á. Fer þá glansinn furðu fijótt af hljóðfæraleikarastarfinu, því að í jafn miklu fámenni og er á íslandi er því starfi ill treystandi, nema fyrir takmarkaðan hóp þeirra manna, sem þegar höfðu komið sér fyrir í góðri stöðu áður en ég og þú vissum hvar C-ið var á píanóinu. .. . Sagði í síðasta blaði að nokkrir músikmenn væru komn- ir í stúku, jæja, þessir sömu menn hafa gengið í stúkuna hvað eftir annað, sem á stúku máli heitir: endurreisn. Ekk- ert er við það að athuga, því að tækni- legur ráðunautur minn í endurreisnar- málum hefur tjáð mér, að margir mestu menn reglunnar (við skulum segja um heim allan til að gera þetta ekki per- sónulegt), hafi verið endurreystir aft- ur og aftur, áður en þeir komust að raun um, hvílíkt skaðræði fylgdi áfeng- isdrykkjunni. Vona, að vinir vorir láti sér þetta að kenningu verða, fimm til tíu endurreistir er skítur-og-ekki-neitt . . . .Tókuð þið eftir klarinetleikaranum í hljómsveit Þórarins Óskarssonar á sið- ustu hljómleikum? — Allra duglegasti klarinetleikari og sennilega efnilegur jazzleikari, hann heitir Kristján Hjálm- arsson. Hlustið þið betur næst, þegar þið heyrið til Kristjáns; hann er efni- legur, ekki satt?.... Slæ botn í þetta að sinni, efni er sannarlega ekki mikið fyrir hendi eins og þið hafið komizt að raun um, sé ykkur á næstu útispila- mennsku Lúðrasveitar Innri-Njarðvíkur (fór ég illa með ykkur — hún hefur ekki verið stofnuð enn, og verður varla stofn- uð næstu 29 árin)... . C-strengur. L. J. Rijmenant: JACK PARNELL — og hljómsveit hans Hin síðari ár hefur leikur stórra, brezkra danshljómsveita tekið geysi- framförum. Fyrir skömmu kom nýtt nafn fram á sjónarsviðið. llljómsveit þessi nefndist: „Jack Parnell and his music- makers“. Þegar það fréttist, að bezti Lrommu- leikari landsins ætlaði að stofna hljóm- sveit, ruku gagnrýnendur upp til handa og fóta og fullyrtu, að hún gæti ekki eingöngu lifað á trommuleik Parnells og spáðu henni skammra lífdaga, en hljóm- sveitin hratt öllum hrakspám þegar i upphafi. Hljómsveitin aflaði sér mikilla vin- sælda hvar ssm hún kom fram í Eng- landi og eins vakti hún óskipta athygli, er hún fór í hljómleikaferð til Danmerk- ur og Svíþjóðar. T:1 marks um ágæti hljómsveitarinnar má nefna, að þegar hin fræga bandaríska söngkona Lena Horne var í Englandi, vildi hún enga aðra hljómsveit, til að leika utidir söng sínum, og þegar söngkonan fór yfir til Skandinavíu, fylgdi hljómsveitin vita- skuld með. Parnell hafði að vísu komið

x

Jazzblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.