Jazzblaðið - 01.12.1952, Side 12

Jazzblaðið - 01.12.1952, Side 12
,miimiiiiiiiii iiiiiiiiimiiimimmimiiiiiiiiiiiimiiimimiiiiiiiiiimiiimiiiiiiimii ii imiimiiiimi immmmmmmmmmmmimmmmmmmmii_ | Svavar Gests segir frá 1 kynnum sínum af I JAZZI1LONDON | Iriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiliilliiiiiimiimili SíðíU'Í greill mmmmmmmmmmmmmmmmiimmi Feldman-Jclúb b urinn. Sá jazzklúbburinn í London, sem er kunnastur, ber nafnið Feldman-Club, en fjölskylda enska jazzleikarans Victor Feldman á klúbbinn og hafa Feldman- bræður leikið þar lengst, ásamt fjölda annarra kunnra jazzleikara, sem þar hafa komið fram. M. a. lék Glenn Miller hljómsveitin á klúbb þessum kvöld eitt, þegar hún var í Englandi á stríðsárun- um. Kynnir í klúbb þessum er hinn kunni útvarpsgagnrýnandi músikblaðs- ins Melody Maker, Maurice Burman. —• Gafst mér einmitt tækifæri til að dvelja á Feidman klúbbnum það kvöldið, sem klúbburinn hélt upp á tíu ára afmæli sitt og léku fjöldi kunnra enskra jazz- leikara þar það kvöldið. Má þar nefna trompetleikarann Kenny Baker, sem í mörg ár var aðalmaður Ted Heath hljóm- sveitarinnar. Leikur Kenny er stórkost- legur hvað tækninni viðkemur, hann hefur svo fullkomið vald yfir hljóðfær- inu, að honum eru engin takmörk sett, en skapandi jazzleikari er hann ekki upp á marga fiska. Hinn gamalkunni tenór- isti, Jimmy Skidmore, sem lék með Bak- er þetta kvöld, er aftur á móti meiri jazzisti, en ekki líkt því eins slyngur á hljóðfærið og Baker. Victor Feldman, sem mestan þátt átti í því að gera þenn- an klúbb jafn vinsælan og frægan og raun ber vitni, var í Indlandi um þetta leyti og gafst mér því ekki kostur á að heyra í honum. En hins vegar heyrði ég plötur, er hann hafði leikið inn á nokkru áður en hann fór og staðfesta þær í öllu ummæli Ronnie Scott í síðasta blaði um hæfni Victors. Leikur ekki nokkur vafi á, að hann er einhver allra mesti jazzleikari Englands. Tony Kinsey. Trommuleikari sá, er lék með Tommy 12 jazzlUiÁ --------------------------<♦> Ljósm.: Melody Maker.

x

Jazzblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.