Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.05.1940, Page 8

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.05.1940, Page 8
Tímarit Tónlistarfélagsins isku hljómsveit í Wien aÖ loknu glæsilegu framhalds- námi í þeirri borg. Björn var einn af þeim fyrstu er útskrifaðist úr Tónlistarskólanum og því enn meiri á- nægju að hljóta hann sem kennara. Snennna á árinu 1938 kom Dr. Heinz Edelstein og hefir dvalið hér síðan. Hann hefir verið cellokennari, æft kammermúsík og einnig annasl blokkflautunámskeið skólans, er hann átti upptökin að. Pá hefir Árni Kristjánsson, vinsælasti píanó- Björn ólafsson. leikari okkar hér heima, verið kennari við skólann síð- an 1932. Hefir skólanum verið mikill styrkur að því, að hafa hann í þeirri stöðu. Þegar Dr. Mixa fluttist burtu réði hann til skólans í sinn stað Dr. Victor von Urb- antschitsch, sem stjórnað hefir hljómsveitinni og kennt píanóleik og kontrapunkt nú í tvo vetur. Þá má enn nefna tvo erlenda menn, er aðstoðað hafa og veitt til- sögn, þá Johan Krúger klarinetleikara í fjóra mánuði og Hans Quiqueres cellista, veturinn 1936—7. Loks hef- ir Karl 0. Runólfsson kennt tónfræði síðastliðinn vetur. Allir hafa kennararnir átt sammerkt um það, að gera sitt ítrasta í þágu skólans, svo dvölin þar mætti verða nemendunum að sem mestu gagni og álit og vinsældir 8

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.