Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.05.1940, Blaðsíða 27

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.05.1940, Blaðsíða 27
Tímarit T ó n 1 i s t a r f é 1 a g s i n s en kunnátlu og tækifæri Lil þess að eignast frábær tón- skáld, og að minnsta kosti er leyfilegt að gera sér von- ir urn, að það eigi fyrir þeim að liggja. Það mundi efla mjög áliL þeirra sem menningarþjóðar, ef nokkur menn- ing fær að tóra áfram í veröldinni, auk þess sem það mundi aulta menningarlíf þeirra heima fyrir. Pá er hin spurningin, hverju Tónlistarskólinn á undan- förnum tíu árum hafi á orkað á þessu sviði. Pví eru auð- vitað margir miklu kunnugri en eg. En suml af því hefur ekki getað farið íram hjá mér. Hann hefur gert ágætum íslenzkum tónlistarmönnum kleift að starfa hér í Reykja- vík og beita kröftum sínum, mönnum eins og Páli ís- ólfssyni, sjálfum brauLryðjandanum, sem með mikilli þrautseigju heíur alll al' stefnt að hæsla markinu, þrátt fyrir seintekinn skilning almennings og alls konar ánauð- arvinnu, sem hefur ekki verið hæfileikum hans samboð- in, — síðan Árna Kristjánssyni og síðasl Birni Ólafs- syni, sem án þessa skóla mundu liafa orðið að setjast að erlendis. Hann hefur líka flutt hingað heim duglega tónlistarmenn frá útlöndum, og án starfs þeirra hefði verið vonlaust að leggja hér grundvöll að fjölbreyttu tónlistarlífi. Frá skólanum hafa þegar komið nemend- ur, sem náð liafa þeim þroska, að fjar-stæða hefði þótt fyrir tíu árum að lála sér til hugar koma, að unnt væri að nema svo mikið hér á íslandi. í sambandi við þenn- an skóla hefur verið komið hér upp furðu góðri hljóm- sveit og ágæt tónverk verið flutt almenningi, bæði á hljómleiluim fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins, í út- varp og við ýmis tækifæri. Hér er myndaður jarðvegur fyrir íslenzka tónmenningu, sem vonandi er, að mikið vaxi upp úr í framtíðinni. Og aldrei hefur þessi stofn- un og sú starfsemi, sem við hana er lengd, verið okkur dýrmætari en á þessum siðustu og verstu tímum, þegar heimurinn er lokaður ungum íslendingum, sem þurfa að sækja menntun sína til annara landa. SigurSur Nordal. 37

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.