Musica - 01.04.1948, Qupperneq 7
fyrir hugrekki sitt. Hann syngur Toreador söng sinn
og vinnur hjarta Carmen.
Þegar flestir eru farnir úr kránni, koma smyglar-
arnir Remendado og Dancairo inn og hvetja Carmen
og vinkonur hennar Frasquita og Mercedes til að
hjálpa til við smyglaraferð þá um núttina, en Carmen
vill ekki vera með, því hún væntir José.
Hann kemur líka, og gerir Carmen hann æran
með dansi sínum og söng„ og þegar herlúðurinn kall-
ar alla hermenn heim í herbúðirnar, eggjar Carmen
José til að fara hvergi og hann syngur þá aríu sína
um blómið, sem hún kastaði til hans og var einasta
huggun hans í fangelsinu.
f ,
!■ r ■ J-—
f/eur <jL/e /a m'a-va/s je — fe — e
Blómaarían ár 2. þœtti.
Carmen eggjar hann þá til að flýja með sér, en
José herðir sig upp og ætlar að fara, en þá er bankað
á hurðina, og Zuniga liðsforingi kemur inn.
Oður af afbrýðisemi skorar José hann á hólm, en
smyglararnir koma að í því og taka Zuniga og flytja
hann burt.
Hólmgangan við yfirmanninn gerir José ómögulegt
að snúa aftur til hersins og þá er engin leið eftir nema
að ganga smyglurunum á höncl.
3. þáttur.
Um hánótt uppi í hinum hrikalegu og eyðilegu
Pyreneafjöllum halda smyglararnir hvíld.
José er meðal þeirra. Hann hatar þetta viðbjóðslega
Carmen, 3. þáttur (L.Sievert).
starf, ekki minnst síðan ást Carmen byrjaði að kólna,
en hún hvetur hann til að fá sér annað starf eða fara
heim til mömmu.
Stúlkurnar eru að spá í spil, og Carmen reynir
einnig gæfuna, en spilin sýna shjótan dauða hennar
og hún hættir.
Nú er lagt af stað, og aðeins Don José er skilinn
eftir á verði. Stuttu síðar kemur Micaéla og reynir að
bjarga José frá Carmen, en er skothvellur heyrist,
hleypur hún hrædd á braut.
Þá birtist Escamillo og José kemst að því, að það er
ástasamband milli hans og Carmen, hann verður óður
af reiði og skorar Escamillo á hólm, en Carmen skilur
þá.
Escamillo býður þeim öllum til næsta nautaats
hans í Sevilla og fer. Nú sést Micaéla, en hún hafði
falið sig, og biður José að koma heim með sér, því
móðir hans liggi fyrir dauðanum, og José fer, en hótar
Carmen að koma aftur og finna hana í fjöru.
4. þáttur.
Fyrir utan nautaatssvæðið í Sevilla streyma áhorf-
endur og hinir skrautbúnu nautabanar inn.
Escamillo er þar einnig með Carmen við hlið sér.
Þegar þau ganga inn á sviðið, aðvara vinkonur
Carmen hana við José, sem þær höfðu séð í mann-
þyrpingunni, en hún skeytir því engu.
Er hún gengur að sæti sínu, gengur José fram og
grátbiður hana að koma aftur til sín, en hún vrll
ekkert hafa með hann að gera og játar að hún elski
Escamillo.
José verður æfur við þessa játningu, og er Carmen
kastar hring José í and'lit hans, tekur hann upp hníf
sinn og drepur hana. Yfirkominn af sorg fellur hann
saman við lík Sígaunastúlkunnar Carmen.
Það er bezt, að hlusta ekki á Debussy, maður getur
átt á hættu að venjast honum og að síðustu ef til vill
að þykja vænt um hann.
Rims\y-Korsa\ov.
Ef Franz litli hefur skrifað það, þá hlýtur það að
Vera rétt.
Hugsanir hans koma frá himnum.
Ruzicz\a (kennari Schuberts).
MUSICA 7