Musica - 01.04.1948, Qupperneq 8

Musica - 01.04.1948, Qupperneq 8
Sigurður Briem 25 ára starfsafmæli. Sigurður H. Briem kennari átti 25 ára starfsafmæli 4. nóv. síðastliðinn. Eg hygg, að fáir hafi vitað um þennan merkisdag, því eitt af því, sem Sigurði Briem er illa við, er að láta bera á sér, og það er ekki hægt að gera verra en að hrósa honum fyrir starfið, en í gamla timburhúsinu við Laufásveg ihefur verið unnið mikið og óeigingjarnt starf, sem hefur haft mikil á'hrif á hljóm.list höfuð- staðarns, án alls hornablásturs og auglýsinga. Sig- urður hefur verið tæpum helming ævi sinnar til að miðla öðrum af lærdómi sínum, og hann má vera hreykinn af starfinu. Sigurður er fæddur í Reykjavík þann 16. maí 1895, og voru foreldrar hans merkishjónin Susie og Hall- dór Briem. Væri gaman að kynnast meira ættfólki Sigurðar, því að honum stendur merkisfól'k í báðar ættir. Þegar í æsku hneigðist hugur Sigurðar að hljóm- listinni, og hugsaði hann um ekkert annað, og allir draumar hans beindust að einu marki, því, að geta túlkað listina sjálfur — og að geta miðlað öðrum af þe'kkingu sinni. Það þótti ekki efnilegt í þá daga (og jafnvel enn) fyrir unga menn að leggja út á 'hina hálu 'braut list- anna, og því reyndu foreldrar Sigurðar að telja hon- um hughvarf, en hann undi ekki við annað, og brátt varð foreldrunum ljóst, að hann lifði aðeins og hrærð- ist í návist tónanna, og þá sneru þau við blaðinu og eftir það naut Sigurður aðstoðar þeirra, og verður hún seint metin að verðlei'kum. Sextán ára hóf Sig- urður nám hjá Oscar Johansen, sænskum fiðluleikara, er þá lék á Hótel Island, og var hjá honum um tíma, svo var hann hjá hinum og þessum kennurum, m. a. •hjá Þórarni Guðmundssyni. Tuttugu og fimm ára fór Sigurður utan til Danmerkur og gerðist er þangað kom nemandi hins fræga fiðlusnillings Peder Möller og lærði hjá honum í 4 ár. Hafði Sigurður mjög mikið gagn af veru sinni með Möller, enda notfærði hann sér hjálp meistarans út í æsar. HENRY HOLST . . . eins árs nám 'hjá Telmanyi fór Holst frá Danmörku og lagði leið sína til Þýzkalands og hóf nám hjá þeim kennara, er bar höfuð og herðar yfir aðra kennara meginlandsins, prófessor Willi Hess. Eftir eins árs nám hjá Eless lék Holst fiðlukonsert Beethovens og tvo aðra einleikskonserta með Fil'harm- oniumJhljómsveitinni í Berlín og stjórnaði prófessor Hess sjálfur hljómsveitinni. Fékk Holst afburða dóma. Einnig fékk hann ágæta dóma fyrir sónötu- kvöld sín, er hann 'hélt með landa sínum, píanóleik- aranum Victor Sdhiöler. Er heim til Danmerkur kom, komst hann í kon- unglegu kapelluna eftir samkeppni og var þar í fimm mánuði. Þá frétti hann af hendingu að staðan sem konsert- meistari við Filharmonisku hljómsveitina í Berlín væri laus til umsóknar. Hann fékk þegar frí úr kap- ellunni, fór til Þýzkalands, tók þátt í samkeppni við 14 aðra fiðluleikara og sigraði. Á árunum 1923—1931 ferðaðist Holst með hljómsveitinni um alla Evrópu, og varð hann á þessum ferðum mjög hrifinn af Eng- landi, og er honum bauðst prófessorsstaðan við Royal College of Music I Manchester sagði liann skilið við hið erfiða starf konsertmeistara og tók við hinu nýja starfi, er ihann gengdi til ársins 1941, er hann flutti til London. Holst er álitinn færasti fiðluleikari Englands og er það orðið heimili hans, en þó heimsækir hann ávallt Danmörku á hverju sumri. Holst er ekki aðeins þekktur sem einleikari og kennari, 'hann er einnig afburða kammermúsíker og er quartett hans, Filharmoniski quartettinn, þekktur um allan heim. Hann hefur einnig reynt sig sem hljómsveitarstjóri og fengið góða dóma. Vonandi fáum við að heyra Holst með hinni ný- stofnuðu sinfóniíúhljómsveit Reykjavíkur, og þá munu Reykvíkingar fá að heyra hljóm'leika, er þeir munu seint gleyma. 8 MUSICA

x

Musica

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.