Musica - 01.04.1948, Page 9

Musica - 01.04.1948, Page 9
Sigurður Briem Cellolei'k lærði Sigurður hjá Kramer-Petersen, og ber Sigurður honum mjög vel söguna. Er hér var komið sögu, kom fram á sjónarsviðið sá maður, er átti efir að hafa mest áhrif á Sigurð af öllu samtíðarmönnum hans, en það var Oltif Brönd- berg, hinn kunni mandólín- og gítarsnillingur, en hann hefur tvímælalaust verið hinn færasti maður á þessi hljóðfæri, sem uppi hefur verið á Norðurlönd- um. Til dæmis um tækni hans má nefna, að hann lék einleikssónötur Baohs á mandólin, og má öllum vera ljóst, hvílíkt þrekvirki þetta er, ef athugað er tónsvið og bygging mandólínsins. Af veru sinni hjá Bröndberg hafði Sigurður ómet- anlegt gagn, og í hinni nákvæmu og hnitmiðuðu kennsluaðferð Bröndbergs fann Sigurður þá aðferð, er hann enn notar við kennslu, og sem einkennir kennslubækur hans. Og þó. hann hafi orðið fyrir áhrifum frá mörgum frægum mandólín- og gítarleikurum, má þó segja að kennsla Ifröndbergs sé mergurinn. Með námi hóf Sigurður nú kennslu og 4. nóv. 1922 komu tveir fyrstu nemendurnir til hans, voru það Lit- hái og Dani, en brátt jókst aðsóknin, og hafði Sigurður ærið að starfa. Kom hann sér hrátt upp nemendahljómsveit og undi hag sínum hið bezta. En þá fékk hann þá veiki, er ásækir alla menn, er fjarri eru ættjörðinni, heim- þrána, og ekkert gat fengið hann frá að fara aftur heim, heim til hins fjallkrýnda föðurlands, og þótt vinir hans lettu hann kom það að engu haldi, hann varð að fara. En áður en hann fór kom fyrir atvik, er sýndi hvaða álit Bröndberg hafði á nemanda sínum. Margir danskir listamenn ætluðu að halda samsæti til heiðurs danska listmálaranum Dorf, og höfðu allir þeir listamenn, er að samsætinu stóðu, gist hina sól- björtu Italíu, og ætluðu að láta leika ítalska hljómlist í hófinu. Sá eini, er gat tekið þetta að sér, var Oluf Brönd- berg, og sneru listamennirnir sér því til hans. En þá kom babb í bátinn. Þessi tónlist er nefnilega leikin á mandólín og mandóló (mandóló er fimm strengja mandólín), en slíkt hljóðfæri var ekki til í Danmörku. En Bröndberg dó ekki ráðalaus. Hann náði í gamla fiðlu, bætti við streng á hana, og sjá, þar var komið „mandóló". Tók Bröndberg sig svo til og kenndi Sigurði á hljóðfærið á einni viku, og vakti leikur þeirra félaga jnikla hrifningu. En að lokum kom hið óumflýjanlega, löngunin eftir fósturjörðinni varð of sterk og Sigurður yfirgaf hið beykikrýnda bróðurland vort við Eyrarsund og geymdi í hjarta sér hugljúfar minningar, sem hann unir sér enn við hvern þann tíma, er hann hefur af- ■ lögu. Er heim kom eftir hina löngu fjarvist var nóg að starfa, því fáir höfðu ennþá lagt hljómlistina fyrir sig, svo að hér var ekki um auðugan garð að gresja, er hinn ungi hljóðfæraleikari kom heim. Hann hóf strax Sigitrður Briem og Olitf Bröndberg. MUSICA 9

x

Musica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.