Musica - 01.04.1948, Page 10
Ur hljómlistarlífinu
Hin nýstofnaða sinfóníuihljómsveit Reykjavíkur
hélt fyrstu tónleika sína 20. jan. undir stjórn Victors v.
Urbantsohitsch, einlei'kari með hljómsveitinni var
Rögnvaldur Sigurjónsson.
Það má segja að nokkur óvissa hafi einkennt Mjóm-
sveitina á þessum hljómleikum, en ef atihugað er hve
sDutt hljómsveitin hafði æft, má telja furðanlegt hve
miklu stjórnandanum hafði tekizt að ná úr henni.
Píanóleik Rögnvalds Sigurjónssonar má telja „há-
punkt“ hljómleiksins, tækni hans og hispursleysi setti
skemmtilegan og léttan blæ á meðferðina.
2. h'ljómleikar sveitarinnar voru haldnir í marz, og
voru það Mozartihljómleikar undir stjórn Róberts
Abraham.
Einleikari með sveitinni var Egill Jónsson clarinett-
leikari.
Á þessum hljómleikum sást glögglega, hve mikið
sveitinni ha'fði farið fram, og var léttur og skemmti-
legur blær yfir yfir öllum flutningnum. Einleikur
Egils var með afbrgðum, léttur og syngjandi, og naut
hin mikla tækni Egils sín að fullu.
Yfirleitt má segja að þessir hljómleikar hafi verið
með afbrigðum.
kennslu er hann kom heim, og urðu kennslustörfin
brátt svo umsvifamikil, að hann varð að snúa sér al-
gerlega að þeim og hefur svo verið síðan.
Við stofnun Tónlistarskólans hætti Sigurður
kennslu í fiðluleik, sem þó var aðalfag hans, svo og
cellóleik, þar eð hann áleit þá kennslu í góðum hönd-
um, og sneri sér algerlega að mandólín- og gítar-
kennslu.
Sigurður hefur kennt þúsundum nemenda af öll-
um stéttum á öllum aldri, og var t. d. elzti nemandi
hans 79 ára, en sá yngsti 6.
Gítar- og mandólín-kennslubækur Sigurðar eru
kunnari en að það þurfi að lýsa þeim hér.
Gítarkennslubækurnar eiga að yera í fimm heftum,
og eru komin út 3, en hin væntanleg á næstunni, en
mandólínskólinn á að vera 3 hefti, en út eru komin 2.
Þessar bækur eru að allra áliti snilldarverk, og gef-
Framh. á bls. 17.
Vonandi heldur sveitin þau fyrirheit, er hún hefur
gefið með þessum tveimur hljómleikum, og þá hefur
hún ráðið bót á einni alvarlegustu hindrun fyrir
framgangi tónlistarlífsins hér á landi.
Ruth Hermans jiðluleikari
héit hljómleika með aðstoð Árna Kristjánssonar í
Austur'bæjarbíó í febr. síðastliðnum á vegum Tónlist-
arfélagsins.
Á efnisskránni voru eftirtöld lög: D-dúr sónata
Hándels, Chaconne Bachs, A-dúr sónata César
Francks og fiðlukonsert Mendelssohns.
Nokkuð var efnisskárin þung í vöfum, og í fiðlu-
konsertinum, er var síðast á efnisskránni, gætti nokk-
urrar þreytu í leik ungfrúarinnar.
Leikur ungfrú Hermans var mjög stílhreinn og
fágaður og tæknin mjög mikil. Má Tónlistarskóli Ak-
ureyrar hrósa happi yfir að fá slíkan fiðlulikara, sem
ungfrú Hermans er, sem kennara við skólann.
Reykvíkingar vænta þess, að ungfrú Hermans gefi
sér tíma til að skreppa hingað við og við til hljóm-
leikahalda.
Annars er merkilegt ef athugaðar eru efnisskrár
þeirra fiðluleikara, er hingað hafa komið hve þær
eru keimlíkar. Undantekningarlítið hafa þeir leikið
fiðlukonsert Mendelssdhns, einnig flestir D-dúr són-
ötu Hándels og svo mætti lengi telja.
Við treystum því að þeir, er að hljómleikum standa,
atíhugi þetta.
Sigurður Sf(agficld
óperusöngvari hefur haldið hér nokkra hljómleika í
febrúarmánuði.
Voru undirtektir áheyrenda ágætar og aðsóknin
grfurleg. Bezt tókust aríukvöld hans og var auðsjá-
anlegt að þar átti hann heima.
Einar Mar\an
hélt söngskemmtun í janúar og tókst hún vel.
Einar hefur verið utan um margra ára skeið og yfir-
leitt hlotið góða dóma fyrir söng sinn.
Húsið var þéttskipað.
10 MUSICA