Útvarpsblaðið - 03.06.1951, Page 4
Hún syngur
hlutverk Gildu
í »Rigoletto«
Rabbað við ungfrú E 1 s e Miihl
Óperan „Rigoletto“ eftir Verdi er nú æfð
af kappi í Þjóðleikhúsinu. Ungfrú Else Miihl,
sem ráðin hefur verið hingað til þess að
syngja hlutverk Gildu, aðalkvenhlutverkið,
er fyrir skömmu komin hingað og tekin að
æfa með hópnum, en Stefán íslandi, sem
syngur aðaltenórhlutverkið, hefur þegar
dvalizt hér um nokkurt skeið. Gera forráða-
menn óperuflutningsins sér vonir um, að allt
takizt vel, varðandi þessa fyrstu tilraun á
þessu sviði hér á landi; en allir söngvararnir,
að Elsu Múhl undanskildri, eru íslenzkir. Þá
er leikstjórinn norskur að uppruna, en hef-
ur að undanförnu starfað við óperuna í
Stokkhólmi sem leikstjóri. Dr. Urbancic
annast hljómsveitarstjórn.
Ungfrú Else Múhl hefur sungið hlutverk
Gildu í söngleikhúsum á Frakklandi og víðs-
vegar á meginlandinu við góðan orðstír. Rit-
stjóri Utvarpsblaðsins hitti liana að máli um
daginn á heimili þeirra Urbancichjóna, en
það er fyrir ábendingu dr. Urbancic, sem
hafði heyrt ungfrúna syngja á tónlistahátíð
í Salzburg, að hún var ráðin hingað. Ungfrú-
in hefur að undanförnu dvalizt í Sviss, og
kvaðst hún hafa heyrt þar margt um ísland
og íslendinga, og hefði hvort tveggja verið
vel horin sagan. Samt kvað hún marga kunn-
ingja og samstarfsmenn hafa rekið upp stór
augu, er þeir heyrðu, að hún ætlaði til ís-
lands, þeirra erinda að syngja hlutverk í
óperu! Ojæja, — það er ekki laust við, að
okkur þyki þetta fréttnæmt líka . . .
Ungfrú'Else Múhl er austurrísk að ætt og
uppruna. Hún stundaði nám við tónlistarhá-
skólann í Salzburg, fiðluleik og söng jöfnum
höndum; hefur hún haldið opinbera fiðlu-
hljómleika í Austurríki við góða dóma, en
svo fór, að sönglistin hafði yfirhöndina. Hún
hefur nú sungið í fjölmörgum þekktustu
óperum, meðal annars í öllum óperum Moz-
arts, en á þeim hefur hún miklar mætur.
Auk þess hefur hún efnt til sjálfstæðra söng-
skemmtana víðsvegar um álfuna, og hlotið
4
ÚTVARPSBLAÐIÐ