Útvarpsblaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 21
stendur, og er sá krókur búinn sætum,
sem gerð eru með tilliti til þess, að sern
bezt fari um áhorfendurna og þeir megi sjá
sem bezt, það sem fram fer á firðsjártjald-
inu.
Enda þótt menningargildi sjónvarpsins
hljóti fyrst og fremst að fara eftir dagskrár-
efninu, telja margir, að með sjónvarpsstarf-
seminni sé hafin nýr áfangi almenningi til
forheimskunnar. Fólk sé svo ginkeypt fyrir
sjónvarpinu sem raun ber vitni, sökum þess,
að það létti til muna á hugsanastarfsemi
þess; sjónvarpsdagskráin krefjist enn minni
umhugsunar lieldur en venjuleg útvarps-
dagsskrá, og komi þetta heim við þá stað-
revnd, að engin blöð seljist eins mikið og
þau, sem flytja mest af efni sínu í myndum.
Margir spá því, að sjónvarpið muni' með
öllu útrýma útvarpsstarfseminni, þegar fram
liða stundir, og enginn neitar því, að það
hljóti að hafa í för með sér verulegar breyt-
ingar á útvarpsdagskránni í þeim löndurn,
þar sem hvorttveggja er starfrækt. Sir Willi-
am Haley, forstjóri útvarps- og sjónvarps-
starfseminnar í Bretlandi, telur þess þó litl-
ar líkur, að til þess komi, að sjónvarpið út-
rými útvarpinu. „Þessu er svipað faiáð og
með bókaútgáfuna“, segir hlann. „Bjækur,
sem ekki eru skreyttar myndum, seljast enn
þann dag í dag, enda þótt almenningur eigi
völ myndskreyttra bóka í miklu úrvali“. Sum-
ir álíta og líklegt, að það muni sannast á
sjónvarpinu, að „fyrst sé allt frægast“; hylli
þess muni fara þverrandi, þegar nýja brum-
ið er farið af því, og þegar til lengdar lætur
muni fólk þreytast á því að sitja grafkyrrt
og steinþegjandi stundunum saman, dag eft-
ir dag og kvöld eftir kvöld einblínandi á
það, sem fram fer á firðsjárfletinum. Sjón-
varpið krefst þess nefnilega í enn ríkari mæli
heldur en venjulegt útvarp, að þeir, sem
þess vilja njóta, einbeiti að því athygli sinni
allri og óskiptri.
/////y/c/ag
3/cmc/jr
IÆKJARGÖTU 4 SilÍAR 6600 • i 6606
EySið skemmri tíma áleiðinni
lenqri tíma á staðnum.
Ferðiit
mrð
Föxiiiium
ÚTVARPSBLAÐIÐ
21