Útvarpsblaðið - 03.06.1951, Page 24
Söngvasafn
Kaldalóns
Nýtt hefti, það sjötta í röðinni, af Söngva-
safni Kaldalóns er fyrir skömmu komið út.
Hefur það að geyma tuttugu einsöngslög,
þeirra á meðal lögin við söngvana úr leikrit-
inu „Danzinn i Hruna“ eftir Indriða Einars-
son.
Meðal annarra laga í heftinu, sem lengi
hafa notið mikilla vinsælda, má nefna „Betli-
kerlingin“, við kvæði Gests Pálssonar, og
„Grindvíkingur", við kvæði eftir Orn Arn-
arson. Onnur lög í heftinu eru við kvæði
eftir Davíð Stefánsson, Fr. Ásmundsson-
Brekkan, Höllu Eyjólfsdóttur, Grím Thom-
sen, Halldór Kiljan Laxness og fleiri. Carl
Billich píanóleikari hefur búið lögin undir
£>igvalcli Katclalóns
Útvarpskórínn syngur þann 20. þ'tní; stjórnandi
Róbert A. Ottósim
prentun. Útgefandi er Kaldalónsútgáfan.
Sigvaldi Kaldalóns er eitt vinsælasta tón-
skáld, sem við höfum átt, og mörg af lögum
hans eru fyrir löngu orðin „íslenzk alþýðu-
lög“, í þess orðs bezta skilningi. Vinsældir
þeirra eru ekki neitt tízkufyrirbæri, þau eru
orðin eign almennings eins og þjóðlögin.
Nægir í því sambandi að nefna lög eins og
„Suðurnesjamenn", „Ég lít í anda liðna tíð“,
„Gekk ég upp í Hamrahlíð", „Erla“ og
„Brúnaljós þín blíðu“. Þá hafa lögin við
söngvana úr Danzinum í Hruna notið al-
mennra vinsælda. Hefti þetta er prentað á
mjög góðan pappír, snoturt að útliti og frá-
gangur allur hinn vandaðasti.
24
ÚTVARPSBLAÐIÐ