Útvarpstíðindi - 12.01.1948, Side 8
8
ÚTV ARPSTÍÐINDI
Um úfvarpssend-
ingar á Esperanfo
ESPERANTO er mál, sem pólski
læknirinn Zamenhof skapaði í þeim
tilgangi, að það yrði sameiginlegt
hjálpartæki hins stríðandi mannkyns
til bættrar sambúðar og aukinnar al-
þýðumenningar.
Rúm 60 ár eru liðin síðan hann
birti almenningi mál sitt. Málið á nú
ítök í flestum löndum heims, og má
eflaust telja árangurinn sæmilegan,
ef tekið er tillit til þess, hve mörg
menningarmál, sem ekki verða tengd
við fjáraflaplön einstaklinga, eigi erf-
iðan róður til hins fyrirheitna lands.
Það munu þó flestir sjá, hvílík
hagsýni það væri, og brýn þörf fyrir
smáþjóðir, að samkomulag gæti orð-
ið um eitt mál, sem hvarvetna mætti
nota á þessari öld hraðans.
fyrir hönd starfsliðs útvarpsins og
allra þeirra, sem bera hag þess og
vöxt fyrir brjósti, ber ég hér fram ósk-
ir til ráðamanna þjóðarinnar í fjár-
hags- og gjaldeyrismálum um það,
að erindum stofnunarinnar um fjár-
festingu og gjaldeyrisveitingar verði
vel tekið, eftir því sem efni standa til.
Því verður ekki lengur skotið á frest,
að treysta senditæki stöðvanna. Og
stofnun, sem hefur neyðzt til þess að
sundra starfsdeildum sínum í átta
leigðum húsakynnum í bænum og
öllum ónógum og óhentugum, getur
ekki beðið öllu lengur eftir því, að
mega af eigin ramleik, ráða bót á hús-
næðisvandræðum sínum“.-------------
Nútímatæknin hefur flutt okkur í
nábýli við erlendar þjóðir, sem tala
mörg ólík tungumál. Við viljum skilja
þessar þjóðir, en almenningur hefur
hvorki tíma né tækifæri til þess að
verða fær í mörgum tungumálum.
Heilbrigð skynsemi krefst þess, að eitt
sameiginlegt mál verði notað.
Sumir vilja gera einhverja af út-
breiddustu þjóðtungunum að al-
heimsmáli. Mér sýnist ástandið í al-
þjóðamálum enn ekki vera orðið svo
bróðurlegt, að líkur séu til þess, að
aðrar stórþjóðir telji það ekki móðg-
un við sig að veita einni stórþjóð slík
forréttindi. Smáþjóðirnar ættu bezt
að finna þörfina fyrir alþjóðamál, og
þær hafa einnig tæki til að tala fyrir
þeirri hugsjón. Sjálfstæð hugsjón get-
ur ekki þagað, þegar um slíkt mál er
að ræða, vilji hún vinna að varanleg-
um friði, byggðum á hærri hugsjón-
um en matarhugsjóninni einni.
Við höfum góða útvarpsstöð. Með
henni getum við talað til landa okkar
og glætt áhuga þeirra fyrir alþjóða-
máli. Stuttbylgjusföð höfum við einn-
ig, sem nota mætti að einhverju leyti
til landkynningar á Esperanto og
kanna með því, hvort fjarlægar þjóð-
ir leggðu eyru að okkur.
Með því að ég held, að hugsjónin
um sameiginlegt hjálparmál fyrir all-
ar þjóðir hafi enn ekki verið dregin í
pólitískan dilk, vona ég, að fræðslu
um alþjóðamálið Esperanto af út-
varpsins hálfu verði ekki talið hlut-
leysisbrot. Vildi ég hér með skora á
stjórn útvarpsins að láta þetta mál
ekki liggja órætt lengur. Vafalaust er
hægt að fá ágæta menn til þess að
veita upplýsingar um viðgang Esper-