Útvarpstíðindi - 12.01.1948, Blaðsíða 22
22
ÚTVARPSTlÐINÐÍ
Frú Bovary
Gustave Flaubert, höf. frú Bovary, er einhver víðlesn-
asti og viðurkenndasti snillingur franskra bókmennta,
og' olli frægð lians í senn óviðjafnanleg stílsnilld og á
lians tíma óvenjulegt og sérstætt val á viðfangsefnum.
Flaubert er frumkvöðull og glæsilegasti fulltrúi raun-
sæisstefnunnar á Frakklandi og ruddi þar brautina
heimskunnum arftökum sínum og lærisveinum, þeim
Emile Zola og Guy de Maupassant. Frú Bovary er fræg-
asta og sígildasta bók Flauberts og fyrsta skáldsaga lians,
kom út árið 1856, þegar Flaubert var þrjátíu og fimm
ára gamall, en hann var uppi 1821—1880. Þessa sígildu
bók les hver maður og kona sér að fullu gagni. Þetta
táknræna listaverk raunsæisstefnunnar og stílsnilldar-
innar í heimsbókmenntunum tekur hug lesandans fang-
inn og liefur sama gildi í dag og fyrir nær liundrað árum.
Þýðingu á Frú Bovary befur Skúli Bjarkan annazt og
gert það frábærlega vel.
★
Bókaverzlun Isafoldar
yfrlÍNfíSi rfS'#'fíS'I E flfll*l©|f&ffSiis€í