Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Kertasníkir kom til byggða í morg-un, síðastur jólasveinanna, og
varð komu hans vart á mörgum
heimilum. Jólasveinarnir skipta sér
lítið af pólitík, en pólitíkusar eiga
hins vegar til að beita þeim fyrir sig.
Árna Steinari Jóhannssyni var eittsinn mikið niðri fyrir á þingi:
„Hugsunin er sú að reisa verk-
smiðjur, koma
eins og jólasveinn
og skaffa eitt
stykki hér og eitt
stykki þar, vera
ánægður yfir og
stæra sig af því.“
Þarna er ómak-lega vegið að
jólasveininum og
haldið fram að hann vilji með gjöf-
um kaupa sér fylgi.
Ekki eru aðdróttanir ÖssurarSkarphéðinssonar betri: „Það er
búið að skera Sjúkrahús Reykjavík-
ur nú þegar inn að beini og það er
ekki hægt að standa hérna eins og
jólasveinn í ræðustól og segja: Við
verðum bara að leyfa okkur þann
munað að ganga af þingi með þá
sannfæringu í farteskinu að hægt sé
að hagræða enn meira.“
Þarna er látið að því liggja að jóla-sveinar viti ekkert í sinn haus.
Öðru sinni stóð Össur í pontu ogræddi málflutning Guðmundar
Árna Stefánssonar, sem honum
fannst svo lítilfjörlegur að það væri
„af og frá að það sé hægt að gefa
honum sæmdarheitið jólasveinn rík-
isstjórnarinnar á þessu kvöldi“. Mál
ráðherrans hefði hins vegar verið
„þess eðlis að það rifjar upp í huga
manns fjarskyldan ættingja þeirrar
ágætu stéttar, sem í minni sveit var
nú kallaður Leppalúði“.
Það er sem sagt hægt að ganga svolangt að skammaryrðið jóla-
sveinn dugar ekki.
Kertasníkir
Vegið að jólasveininum
!
"
#$
%&'
(
)
!
!
"
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
#
#
$%
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
&
&
&
&
&
#
$
'' !
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
! &!
#! !
!&
! &! #!&&
!&
!
! !
!
&! &! &!
! !&
*$BC
!
"# $% "
&
%
! '
"
(
)
&
* *!
$$B *!
( ) *
)
" +
<2
<! <2
<! <2
( *' , %-.'/
CD -
/
B
+
,
'
-. "
2!
%
!
!
-.
(
),
%
5!
(
"/
!
-.,
"
(
"
01''
22'" 3
", %
0
%
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
HÁSKÓLARÁÐ hefur samþykkt að afgreiða um-
sóknir um grunnnám og framhaldsnám á vormiss-
eri 2009, en umsóknarfrestur rann út 15. desem-
ber sl. Alls bárust 1.624 umsóknir. Allar umsóknir
um grunnnám uppfylla inntökuskilyrði og sam-
þykkti háskólaráð að taka inn alla umsækjendur,
eða 893 talsins. Verið er að fara yfir umsóknir um
framhaldsnám með tilliti til námsleiða, og vonast
er til að hægt verði að taka á móti sem flestum
þeirra 731 sem sótt hafa um framhaldsnám.
Ákvörðunin er tekin eftir að niðurskurður til HÍ
var minnkaður um 130 milljónir króna milli ann-
arrar og þriðju umræðu á Alþingi um fjárlög 2009.
Öll viðbótarupphæðin verður notuð vegna inntöku
nýrra nemenda um áramót. Í viðbrögðum við
kröfu um niðurskurð frá upphaflegu fjárlagafrum-
varpi lagði háskólaráð áherslu á þrennt, í fyrsta
lagi að standa vörð um störf, í öðru lagi að tryggja
stúdentum kennslu í samræmi við gæðakröfur og í
þriðja lagi að halda áfram að byggja upp öflugan
rannsóknarháskóla.
Að þessum forsendum gefnum samþykkti há-
skólaráð að mæta kröfu um niðurskurð með end-
urskoðun fastlaunasamninga og yfirvinnu, til-
færslu á starfsskyldum, endurskipulagningu
námskeiða, lækkuðum ferðakostnaði, lækkuðum
útgjöldum vegna tækjakaupa og frestun hluta
áforma samkvæmt afkastatengdum samningi við
stjórnvöld vegna framkvæmdar stefnu HÍ. Há-
skólaráð telur brýnt að halda fast í stefnuna eins
og kostur er og vinna ótrauð að þeim markmiðum
sem sett hafa verið. Á opnum fundi rektors með
starfsfólki sagðist Kristín Ingólfsdóttir sannfærð
um að ef einhvern tímann hefði verið þörf á stefnu-
festu í málefnum háskólamenntunar, vísinda og
nýsköpunar, væri það einmitt nú.
Umsóknir í grunnnám samþykktar
Alþingi ákvað að minnka niðurskurð til Háskóla Íslands um 130 milljónir króna
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Jónas Skaftason athafna-
maður á Blönduósi hefur opnað nýtt
kaffihús á vesturbakka Blöndu sem
hann kallar Ljón norðursins. Margir
komu í kaffi til Jónasar á opnunar-
daginn til að samfagna með honum
og þáðu í leiðinni veitingar. Jónas
sagði í samtali við Morgunblaðið að
reksturinn færi í gang af krafti ann-
an í jólum. Það er hugmynd Jónasar
að menn eigi í kaffihúsinu þægilegar
stundir og má geta þess að Jónas
hefur komið fyrir gítar á öllum hæð-
um kaffihússins og er hugmyndin að
gestir geti tekið lagið þegar sá gáll-
inn er á þeim.
Jónas gat þess að í húsinu sem
upphaflega fékk nafnið Mosfell og
var byggt skömmu eftir næstsíðustu
aldamót hefði áður verið veitinga-
rekstur. Jónas sagði að hjónin Páll
Geirmundsson og Hjálmfríður A.
Kristófersdóttir hefðu verið með
veitingarekstur í húsinu, fyrst árið
1926 og svo hefði gengið í þó nokkur
ár. Það er sérstök tilviljun að um það
leyti sem nýtt kaffihús hefur rekstur
sem ber nafnið Ljón norðursins þá
er að hætta starfsemi annað kaffihús
á Blönduósi sem byggt er af Ljóni
norðursins. Leó Árnason sem kall-
aður var Ljón norðursins, ættaður
frá Víkum á Skaga, byggði á sínum
tíma kaffihúsið Við árbakkann.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Gestkvæmt Margir gestir komu í heimsókn til Jónasar á opnunardegi Ljóni
norðursins. Jónas Skaftason veitingamaður er lengst til vinstri á myndinni.
Opnaði kaffihúsið „Ljón
norðursins“ á Blönduósi