Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 64

Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 64
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÍSeljahverfinu í Reykjavík er lítið ogvinalegt bókasafn. Þar er bara opið tvoeftirmiðdaga í viku, en þá taka vinaleg-ir starfsmenn við börnum úr hverfinu og fullorðnum líka; fólk blaðar í tímaritum, börn fylla út getraunamiða og einhverjir fá alltaf lánaðar bækur. Á veggjum eru myndir af kettinum Brandi og Línu langsokk, eins og vera ber, en þar hangir líka yfir rauðum ný- móðins sófa eitt af þessum myndverkum sem ég dregst alltaf að; þetta er fínt abstrakt málverk eftir Guðmundu Andrésdóttur. Verk sem á afskaplega vel heima þarna á bóka- safninu. Guðmunda var verslunarskólagengin en ár- ið 1946 var Svavar Guðnason kominn heim frá Danmörku og opnaði fræga sýningu í Listamannaskálanum. „Ég hreinlega ruglaðist þegar ég sá þá sýningu,“ sagði Guðmunda við mig fyrir 12 árum, en þá heimsótti ég hana vegna vænt- anlegrar sýningar í Sólon Íslandusi. Sýning Svavars hafði afgerandi áhrif á ungu konuna; hún ákvað að helga sig listinni. „Þegar ég kom heim spurði móðir mín hvort ég væri orðin veik! Hún heillaði mig svo, alveg hreint. Og þá fór ég að hugsa um að byrja að mála. Það var eins og rothögg.“ Guðmunda hélt til náms í Svíþjóð, þarsem hún teiknaði módel, og síðan fórhún til Parísar þar sem hún fór að fást við abstraktmálverkið. Hún aðhylltist þar þá stefnu sem kennd hefur verið við geó- metríu, eða strangflatarlist, og eftir heim- komuna árið 1952 var hún í framvarðarsveit þeirra málara sem unnu í þeim anda. Hér starfaði Guðmunda að list sinni í hálfa öld. Hún sýndi á síðustu sýningu Sept- emberhópsins og hélt síðan einkasýningar á nokkurra ára fresti og sýndi reglulega með Septem-hópnum. Guðmunda sagði að það hefði verið erfitt að ryðja nýjum listhugmyndum braut hér á landi. Hún sagði viðbrögðin við abstraktinu hafa verið rosaleg á stundum. „Þetta var bara sjúklegt ástand, sagði hún. „Við vorum hötuð. Þetta unga fólk sem nú er að mála og koma með nýjar stefnur veit ekki hverju við þurftum að standa í. Við urðum fyrir líkams- meiðingum og öllu mögulegu. Þetta voru furðulegir tímar.“ List Guðmundu tók reglulegum breyt-ingum þótt hún væri abtsraktinu ætíðtrú. Guðmunda sagði að í kjölfar allra einkasýninga sinna hefðu einhverjar breyt- ingar komið inn í verkin. Upp úr 1970 sagði hún skilið við myndgerð sem byggðist á þéttri grind úr fínum línum. Í staðinn fór hún að vinna úr frá hringforminu eins og hér sést. Sagt hefur verið um þessi verk að þar verði útgangspunkturinn hreyfigildi hrings- ins. Umhverfis hringina setur Guðmunda gjarnan kvikar og óværar línur, sem eins og koma hringjunum á enn meiri hreyfingu. Þetta eru oft litsterkar myndir, og Guð- munda slyngur kóloristi, en sjálf sagðist hún vera að „rannsaka hreyfinguna á myndflet- inum.“ Þótt samtíðarmönnum Guðmundu hafi á stundum þótt hún standa í skugga karlkyns kollega, hefur vegur hennar farið vaxandi og listunnendur hafa áttað sig betur á því hvað hún var alla tíð einbeitt og trú skoðunum sín- um um málverkið, og heil í glímu sinni við það. Enda er ævistarf hennar heillandi – Guðmunda er einhver áhugaverðasti mynd- listarmaður okkar á seinni hluta 20. aldar. Þegar Guðmunda lést fyrir sex árumánafnaði hún nær 200 verk ListasafniÍslands, Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Háskóla. Það var rausnarlegur gjörningur en Guðmunda lét ekki þar staðar numið, heldur var einnig stofnaður sjóður, með tugum millljóna króna, sem styrkja á unga myndlistarmenn til náms. Hún vissi að skapandi fólk þarf iðulega á stuðningi að halda – sjálf þurfti hún löngum að vera í hálfu starfi úti í bæ samhliða listinni. Nokkrum árum eftir að Guðmunda málaði Heiðin jól tóku bylgjur í ólíkum línum að dansa lárétt í nokkrum lögum eftir mynd- flötum hennar. Kollegi hennar í málverkinu, Georg Guðni, sagði mér einhvern tímann að hann vissi alveg hvaðan bylgjurnar kæmu. Þau unnu nefnilega samtímis á Orkustofnun og bylgjurnar væru alveg eins og dans lín- anna sem síritar mælitækjanna sendu frá sér. Hvaðan hringirnir í verkunum frá 1972 koma upphaflega veit ég hinsvegar ekki. Þetta voru furðulegir tímar MYNDVERKIÐ 64 Menning MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is V elgengni Sigurbjörns Bernharðssonar fiðlu- leikara á árinu er ótví- rætt sú mesta sem ís- lenskum fiðluleikara hefur hlotnast á erlendri grund. Sig- urbjörn er einn fjórmenninganna í Pacifica-strengjakvartettinum sem starfræktur er í Bandaríkjunum. Í haust var Pacifica útnefndur tón- listarhópur ársins 2009 af stærsta tónlistartímariti Bandaríkjanna, Musical America og um sama leyti var kvartettinum boðið að taka við af rómuðum og heimsfrægum strengja- kvartett, Guarneri-kvartettinum, sem staðarhópur Metropolitan- safnsins í New York og yfirtaka tón- leikahald Guarneri þar, þar sem sá hópur væri að láta af störfum. „Þar með hefst lífstíðarsamstarf okkar við safnið,“ sagði Sigurbjörn í viðtali við Morgunblaðið í haust, um leið og hann spaugaði með það að nú væri Pacifica orðinn fullorðinn kvartett – verðlaun og viðurkenningar til þess dags hefðu fyrst og fremst verið fyrir það að vera ungur og efnilegur kammerhópur. Nú fyrir skömmu bættist svo enn ein rósin í hnappagat Pacifica þegar kvartettinn var tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir plötu með verkum eftir bandaríska tónskáldið Elliott Carter, sem fagnaði ald- arafmæli sínu fyrir fáum dögum, og er enn að semja. Tónlistin er það sem skiptir máli Jú, vissulega er þetta allt mikill heiður og vegsemdin mikil en um leið og ég sest niður með Sigurbirni til að ræða velgengnina nefnir hann ekkert af þessu. Heiðurinn er auðvitað góður en hann byrjar á því að segja mér hvað það hafi verið stórkostlegt að geta spilað alla kvartetta Beethovens á árinu. Þetta segir mér að það sé tónlistin sem eigi hug Sigurbjörns all- an – og að hún sé meira verð en við- urkenningar. Kannski að hvort tveggja sé mikilvægt en eitt er ljóst, þegar hann talar um tónlist er það af miklu meiri ákefð og innlifun en þeg- ar hann talar um það sem í kringum hana er. „Árið er búið að vera mjög gott og við höfum verið heppin, en samt breytist það ekki að vinnan hefur ver- ið sú sama. Við höldum okkar föstu æfingarútínu og það er okkar starf. Núna erum við að spila um 90 tón- leika á ári og lífernið er þess vegna óreglulegt. Til þess að við getum átt okkur venjulegt líf skipuleggjum við okkur mjög vel og æfingatímana al- veg átta mánuði fram í tímann. Þess vegna hefur daglegur rekstur kvart- ettsins ekkert breyst í sjálfu sér og tónleikarnir breytast ekki heldur þrátt fyrir heiðurinn. Þetta er árið sem við spiluðum fyrst alla Beetho- ven-kvartettana, og við gerðum það fjórum sinnum. Það eru ákveðin vegamót fyrir kvartett. Ég held að það hljóti að eiga við um alla þá sem leggja það fyrir sig að spila í kvartett að það að spila Beethoven er stóri draumurinn, rétt eins og það er fyrir leikara að fást við Shakespeare. Þetta var ofboðslega erfitt verkefni en við lærðum mikið af því. Nú mun Beetho- ven fylgja okkur það sem eftir er,“ segir Sigurbjörn. „Við kláruðum líka upptökurnar á verkum Elliotts Carters en hann er Bandaríkjamönnum það í tónlistinni sem Halldór Laxness er okkur í bók- menntum. Við unnum mikið og náið með honum og það verður það eft- irminnilega frá árinu. Elliott Carter er ótrúlegur snillingur og gaman að vera í návígi við svo mikinn gáfumann og snilling. En hann er líka af- skaplega hlý manneskja og með góða kímnigáfu. Hann er með svo tjáning- arríkt andlit að þegar við vorum að spila fyrir hann fengum við mjög sjónræna mynd af því sem hann var að hugsa um spilamennskuna hjá okkur. Því verður ekki hægt að gleyma.“ Hvað fær fólk til að spila saman í kvartett? Væri ekki miklu auðveldara að vera annaðhvort einleikari og ráða sér sjálfur eða í stórri hljómsveit, þar sem auðveldara er að hverfa í fjöldann? Sigurbjörn rifjar upp það sem sagt er um kvartettleikara – að það sé eins og að vera giftur þremur manneskjum. Hvað togaði Sig- urbjörn inn í þennan heim? Morgunblaðið/Golli Sigurbjörn Bernharðsson „Ég hef alltaf elskað fiðluna og alltaf elskað tónlist,“ segir fiðluleikarinn. Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari hefur náð langt á alþjóðlegum vett- vangi tónlistarinnar með félögum sín- um í Pacifica-strengjakvartettinum Að vera sannfærður um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.