Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 32

Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 32
32 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is MARGT bendir til að núverandi kreppa muni hafa veru- leg áhrif á þróun efnahagslífsins á komandi árum og ára- tugum. Ljóst er að starfsemi banka og annarra fjármála- stofnana verður tekin til gagngerðrar endurskoðunar en líklegt er að alls konar iðnaður ekki síst bílaiðnaðurinn, standi nú á vegamótum. Bílaframleiðslan hefur eflst og dafnað í 100 ár. Bílarnir eru stærri og kraftmeiri en áður var, að vísu miklu spar- neytnari en vegna fjöldans eru þeir ein mesta mengunar- uppsprettan nú á dögum. Olíuverðið, sem fór hæst í um 170 dollara fatið snemma á þessu ári, er nú komið í um 40 dollara en víst er að þegar úr rætist í efnahagsmálunum mun verðið rjúka upp á ný. Þótt bíllinn og bensínið á hann séu drjúgur skattstofn fyrir stjórnvöld þá hrökkva þær tekjur hvergi nærri fyrir þeim útgjöldum, sem af honum leiða. Bíllinn hefur haft mótandi áhrif á þróun borga, ekki síst í Bandaríkjunum og raunar víðar, og verið meginforsendan fyrir uppbygg- ingu víðáttumikilla úthverfa, sem oft eru í tuga km fjar- lægð frá meginmiðstöðvum atvinnulífsins. Kostnaðurinn við bílabrautirnar er gífurlegur og fyrir venjulega fjöl- skyldu er bílaútgerðin þungur baggi. Það kemur því ekki á óvart að úr bílasölu dragi þegar að kreppir en samdrátt- urinn núna er raunar ekkert annað en hrun. Tvinn- og rafbílar eru framtíðin Bílasmiðjur um allan heim eiga í erfiðleikum en mest fer fyrir þeim í Bandaríkjunum. Af bílarisunum þremur stendur Ford best að vígi en við GM og Chrysler blasti ekkert annað en gjaldþrot ef ekki hefði komið til 13,4 milljarða dollara lán frá ríkinu. Sérfræðingar segja þó að þetta muni ekki duga til. Engar líkur séu á aukinni bíla- sölu næsta árið og jafnvel næstu tvö. Þar fyrir utan stendur upp á bílaiðnaðinn að stokka upp í framleiðsl- unni. Dagar stóru jeppanna, stóru pallbílanna og annarra slíkra bensínháka, er senn liðinn. Tvinnbílar og rafbílar eru framtíðin. Bíllinn á krossgötum  Ekki er ólíklegt að núverandi kreppa hafi afgerandi áhrif á framtíð bílaiðnaðar- ins  Bílasmiðjunum mun fækka og dagar stóru bensínhákanna eru senn liðnir Í HNOTSKURN » Bílar litu fyrst dagsins ljósnokkru fyrir aldamótin 1900 en Henry Ford varð fyrstur til að hefja fjöldafram- leiðslu þeirra árið 1914. » Á síðasta ári, 2007, vorusmíðaðar 73 millj. bíla, fólksbíla og annarra, í heim- inum. » Þá áttu Bandaríkjamenn250 milljónir bifreiða en bílaflotinn um allan heim var áætlaður vera um 806 millj- ónir. ÍBÚAR í fríríkinu Kristjaníu í Kaupmannahöfn unnu í gær kappsamlega að því að útbúa mat handa gestum á aðfangadag. Hefð er fyrir því að þá geti allir, bæði ríkir og fátækir, sem ella myndu verja kvöldinu einir heima hjá sér, heim- sótt Kristjaníu og borðað hátíðarmatinn með öðrum gestum og heimafólki. Þótt fríríkið sé oft í fréttum vegna fíkniefnasölu er þar margvísleg menningarstarfsemi, m.a. leikhús. Aðfangadagsmaturinn í Kristjaníu AP „STJÓRNARSKRÁIN er úr gildi. Ríkisstjórnin hefur verið leyst upp sem og ríkisstofnanir,“ tilkynnti Moussa Camara, hershöfðingi í gíneska hernum í gær. Aðeins nokkrum klukkustundum fyrr hafði andlát forseta lands- ins, Lansana Conte, verið tilkynnt. Skömmu eftir tilkynningu hershöfðingjans sagði for- sætisráðherra Gíneu, Ahmed Tidiane Souare, í yfirlýs- ingu að ríkisstjórnin væri ennþá starfandi og að ekki hefði verið framið valdarán. Flestir hermenn gíneska hersins væru enn hliðhollir yfirvöldum og hann hvatti þá til að veita öllum tilraunum til valdaráns mótspyrnu. Ráð- herrar og aðrir háttsettir embættismenn voru kallaðir saman í aðalstöðvar hersins í öryggisskyni. Búist var við íhlutun hersins Lansana Conte hafði verið forseti Gíneu í 24 ár en lést í gær 74 ára að aldri eftir langvarandi veikindi að sögn yf- irvalda. Ekki er vitað um dánarorsök, en Conte mun hafa verið keðjureykingamaður auk þess sem hann glímdi við sykursýki. Að sögn fréttaskýrenda hafði verið búist við því að herinn reyndi að ná völdum þegar Conte félli frá þar sem hann hefði í auknum mæli reitt sig á herinn til að halda völdum. Eftir að heilsu Conte tók að hraka til mik- illa muna síðustu fimm árin þótti óljóst hver færi í raun með völdin og ríkisstjórnin var því sem næst óstarfhæf. Nágrannalöndin Líbería, Síerra Leóne og Fílabeins- ströndin hafa á síðustu árum notið friðsældar eftir ára- löng átök. Ótti hefur nú gripuð um sig um að með óstöð- ugu ástandi í Gíneu gætu átök blossað upp á ný. jmv@mbl.is Ringulreið í Gíneu eftir fráfall harðstjórans AP Leiðtogi Lansana Conte þótti sýna einræðistilburði meðan á áratuga valdatíma hans stóð í Gíneu. ÞEGAR á móti blæs í efnahags- lífinu snúa neyt- endur baki við dýrum lúxus- varningi en láta sér nægja það, sem minna er og ódýrara. Hvað konurnar áhrær- ir er það fyrst og fremst snyrtivör- ur. Hagfræðingar og raunar allir aðr- ir vita, að á óvissutímum fresta menn kaupum á nýjum bíl, lúxusferð, nýj- um innréttingum og þess háttar en það er ekki þar með sagt, að fólk láti ekkert eftir sér. Samkvæmt „varalit- arkenningunni“, sem svo er kölluð, fara konurnar nefnilega með meiri peninga en áður í alls konar snyrti- vörur á erfiðum tímum. Það er þeirra aðferð við að snúa á kreppuna þótt í litlu sé. „Varalitarkenningin“ eða „varalit- aráhrifin“ sýndu sig fyrst í krepp- unni miklu 1929-1933 en þá minnkaði framleiðsla í Bandaríkjunum um hvorki meira né minna en helming. Á sama tíma tók þó sala í snyrtivörum stökk upp á við og það sama átti sér stað í samdrættinum eftir 1990 og aftur um síðustu aldamót þótt í minna mæli væri. Vegna þessa er nú góður gangur hjá snyrtivöruframleiðendunum L’Oreal, Beiersdorf og Shiseido. svs@mbl.is „Varalitar- áhrifin“ sýna sig Það er aldrei verra að vera vel snyrt. Í kreppu er keypt meira af snyrtivörum JOSEF Fritzl, Austurríkismaður- inn, sem hélt dóttur sinni fanginni í kjallaranum í 24 ár og átti með henni sjö börn, reyndi að selja síðdegis- blöðum skýrslur um yfirheyrslur lögreglunnar yfir honum. Fritzl, sem er í gæsluvarðhaldi sakaður um manndráp, nauðgun, þrælahald og mannrán, hafði sam- band við fasteignasala og í gegnum hann var fjórum blöðum í Bretlandi, Þýskalandi og Austurríki boðið að kaupa yfirheyrslurnar fyrir um 680 millj. kr. Því boði var þó ekki tekið. Féð ætlaði Fritzl að nota til að greiða skuldir sínar, um 595 millj. kr. svs@mbl.is Vildi þéna á ósómanum LESENDUR breska dagblaðs- ins Financial Times hafa kosið gráðugustu fjár- málamenn þessa árs og óhætt er að segja, að þar voru margir kall- aðir en fáir út- valdir. Úrvalið af bankastjórum og öðrum fjármála- furstum, sem rökuðu til sín hundr- uðum milljóna og jafnvel milljörðum króna á sama tíma og rekstur fyr- irtækjanna var í algjöru skötulíki er óhemjumikið. Tilnefningar voru því margar og meðal annars fengu ís- lensku bankastjórarnir sinn skerf af þeim. Voru verðleikar sagðir vera þeir, að þeir hefðu ekki aðeins stað- ið yfir rústum sinna eigin banka, heldur næstum lagt íslenskt sam- félag að velli um leið. Í Evrópu komu margir „framúr- skarandi“ menn á þessum vettvangi til greina en þeir bliknuðu þó í sam- anburði við bandaríska kollega sína. Snillingar sem eiga vart sinn líka Sem dæmi um þetta má nefna, að Daniel Mudd skrapaði saman tæpa þrjá milljarða kr. síðustu tvö árin hjá íbúðalánasjóðnum Fannie Mae og Dick Syron hjá Freddie Mac rúmlega 4,2 milljörðum kr. á sama tíma. Báðum sjóðunum varð ríkið að bjarga og báðir áttu þeir stóran hlut í bandarísku fasteignabólunni, sem sprakk með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahagslífið um allan heim. Sigurvegarinn er hins vegar Richard Fuld, bankastjóri Lehman Brothers. Á árunum 2006 og 2007 hafði hann næstum 10 milljarða kr. upp úr krafsinu en síðan fór bank- inn á hausinn. Þá skuldaði hann 613 milljarða dollara. svs@mbl.is Gráðugustu fjár- málamennirnir Fuld, óumdeild- ur sigurvegari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.