Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Vonarglæta Þegar óveðursskýin hrannast upp og kröftugir vindar blása er léttir að vita af því að þrátt fyrir allt er von og birtan sigrar að lokum.
RAX
Dofri Hermannsson
|23. desember 2008
Enn rýrnar hagnaðurinn
af Kárahnjúkavirkjun
Það eru að sannast svörtustu spádómar
um afleiðingarnar af þessu voðaverki. Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að þessari
framkvæmd megi kenna um stóran hluta
þeirra vandræða sem við höfum ratað í.
Auðvitað kom fleira til –
röð afdrifaríkra hags-
tjórnarmistaka fyrri rík-
isstjórnar. Þegar lagt var
af stað með Kára-
hnjúkavirkjun (sem vel að
merkja fékkst ekki fjár-
mögnuð á markaði) var reiknað með að
núvirtur hagnaður af þessari dæmalausu
framkvæmd gæti orðið 4-6 milljarðar
króna. Það hefur mikið saxast á það síð-
an. Boranir gengu afleitlega, álverð fer
nú mjög lækkandi og áframhaldandi fjár-
mögnun á nógu lágum vöxtum lítur væg-
ast sagt illa út. Landsvirkjun er nú með
verra lánshæfismat en ríkið sem sjálft er
verr statt vegna ábyrgða sinna á Kára-
hnjúkavirkjun.
Meira: dofri.blog.is
Sigurður Þór Guðjónsson
| 23. desember 2008
Rauð jól í Reykjavík
á aðfangadagskvöld
Í morgun var talin auð
jörð í Reykjavík eftir hláku
gærdagsins þegar hitinn
komst í 8,5 stig. Mat á
snjóhulu fer eftir sér-
stökum reglum og er talin
auð jörð þó að svell-
bunkar séu og skaflar í lautum og læn-
um. Í bakgarðinum hjá mér er jörðin
flekkótt af snjó á grasflötunum.
Það mun þó taka upp í dag og ekki
síður á morgun en þá hlýnar til muna á
nýjan leik með rigningu. Það má því telj-
ast öruggt að jörð verður marauð í
Reykjavík þegar hátíðin gengur í garð.
Meira: nimbus.blog.is
EF MARKA má ný-
birta könnun MMR
telja Íslendingar al-
mennt brýnt forgangs-
verkefni, með framtíð-
arhagsæld í huga, að
leysa ímyndarvanda
lands og þjóðar eftir
hrun bankakerfisins,
efnahags- og atvinnu-
lífsins á Íslandi. Brýnna
en Evrópusambandsaðild og upp-
bygging stóriðju, en síður brýnt en
lækkun vaxta og verðbólgu. Eðlilega
og óhjákvæmilega, enda blasa við og
brenna á eigin skinni flestra lands-
manna lamandi afleiðingar vaxtaok-
urs og hárrar verðbólgu á atvinnu-
starfsemi og heimili landsins.
Þau verkefni sem þátttakendur í
könnuninni raða í forgangsröð
tengjast jafnframt öll innbyrðis og
hanga öll saman. Ímynd og orðspor
Íslands ræður því hvar á bekk við
skipumst í samfélagi þjóðanna. Það
ræður samkeppnisstöðu okkar og
þar með afstöðu fjárfesta, ferða-
manna og mögulegra kaupenda ís-
lenskrar vöru erlendis. Ímyndin;
mannorð okkar og trúverðugleiki
ræður miklu um hvort ríkisvaldinu
tekst að afla lána, styrkja gjaldeyr-
isforðann og gengi íslensku krón-
unnar og hafa hemil á vöxtum og
verðbólgu.
Þátttakendum í könnun MMR
virðist öllum ljóst að ímynd Íslands
hefur skaðast stórkostlega. Þá skoð-
un má vísast rekja beint til frásagna
af kuldalegu viðmóti og eins konar
forakt sem Íslendingar hafa mætt
erlendis, sérstaklega hjá næstu ná-
grönnum okkar svo og fréttaflutn-
ingi erlendra fjölmiðla sem nær allur
er á einn veg. „Gjaldþrot Íslands“
ber þar hæst, en hinn neikvæði
fréttaflutningur takmarkast ekki við
þá staðhæfingu, þó hún hafi orðið til
þess að setja land og þjóð í al-
þjóðlegt sviðsljós sem aldrei fyrr.
Ísland og Íslend-
ingar í sviðsljósinu
Afleiðing fréttar-
innar um gjaldþrot og
hrun íslensks efna-
hagslífs er sú að er-
lendir fjölmiðlar
fylgjast grannt með
öllum fréttum á Ís-
landi. Jafnt þeim sem
leiða líkur að orsök-
um bankahrunsins,
ábyrgðarinnar á því
og hvernig ráðamenn vísa um hana
hver á annan eða alfarið á „óreiðu-
mennina“ og bresku „hryðjuverka“
ráðherrana. Frumhlaup formanns
stjórnar Seðlabankans, yfirlýsingin
um „rússalánið“ hefur gert ekki að-
eins hann sjálfan heldur ráðamenn
alla að aðhlátursefni og svona mætti
lengi áfram telja. Ekkert af þessu er
til þess fallið að byggja upp nauð-
synlegt traust á íslenskum ráða-
mönnum eða efnahagslífi okkar.
Engar fréttir eru enn um að-
gerðaáætlun stjórnvalda eða sýn til
framtíðar. Engin vísbending um
hvenær eða hvernig við munum og
ætlum okkur að rétta út kútnum og
endurheimta mannorð okkar og trú-
verðugleika.
Hvaða orð fór af okkur áður?
Til að vega á móti skaðlegum
fréttaflutningi skiptir þó öllu máli að
bregðast við sem allra fyrst, áður en
hin skaðaða ímynd festir sig í sessi
því það liggur í augum uppi að sviðs-
ljósið hverfur af okkur og yfir á
slæmar fréttir annarra þjóða. Góðar
fréttir ná seint eða aldrei sömu at-
hygli. Þátttakendur í könnun MMR
gátu sér til um umfang neikvæðrar
ímyndar okkar erlendis. Flestir
töldu hana neikvæðasta í Bretlandi
eða 88%, 66% í Danmörku, en fæstir
eða 17% í Noregi og aðeins 18% í
Svíþjóð.
En hver er hún í raun, afstaða út-
lendinga til Íslands? Til þess að geta
kortlagt skaðann sem vinna þarf
gegn þarf fyrst að komast að því
hvaða orð fór af okkur fyrir „hrunið“
og á hverju sú ímynd byggðist, sem
aðrar þjóðir höfðu af Íslandi og Ís-
lendingum. Líkt og að ganga eftir
áttavita. Það er ekki nóg að vita af
því að hafa ratað í villu heldur verð-
ur villtur maður að vita hvar hann er
staddur til að vita hvert skuli stefna.
Könnun Arnholt Gfk Roper
2008 – gerð fyrir hrunið
Síðastliðið sumar gerði Arnholt
Gfk Roper könnun með rúmlega
20.000 þátttakendum í 20 þjóð-
löndum, svokölluðum panel-löndum,
til viðhorfa almennings þar til
ímyndar og orðspors 50 landa og
þjóða. Þar með talið, óumbeðið og
óumsamið, var könnuð ímynd Ís-
lands, enda höfðu öll hin Norð-
urlöndin gerst þátttakendur og fyr-
irséð að þau kynnu að óska
sérstakrar úrvinnslu og sam-
anburðar sem tæki til Norður-
landanna allra.
Bráðabirgðaskýrsla, „draft re-
port“ Arnholt Gfk Roper 2008, sem
geymir niðurstöður um ímynd Ís-
lands og ég átti þess nýlega kost að
kynna mér, dregur fram afstöðu og
viðhorf til Íslands og Íslendinga,
sem að mörgu leyti kom mér á óvart.
Þátttakendur eru spurðir í þaula
fjölda spurninga, sem flokkast á 6
mismunandi svið eða víddir og svör-
in ráða því hvaða einkunn löndin fá á
hverju sviðanna fyrir sig svo og í
hvaða sæti hvert og eitt þeirra rað-
ast í samanburði við hinar þjóðirnar
49.
Í þessari stuttu grein er hvorki
kostur á að fjalla nánar um þessa
umfangsmiklu könnun né er ætlun
höfundar að greina frá niðurstöðum
hennar, nema hvað varðar örfá tilvik
lesendum til glöggvunar um gildi
hennar og þýðingu sem vinnugagns.
Bein spurning í byrjun um al-
menna afstöðu til þjóða, jákvæða eða
neikvæða, skipar okkur í 22. sæti af
50. Það sæti sýnir að heimurinn fyrir
utan hafði almennt jákvæða afstöðu
til okkar. Það kom þó fram í svari við
annarri spurningu að aðeins rétt um
helmingur þátttakenda taldi sig eitt-
hvað vita um eða þekkja til Íslands,
Íslendinga eða íslenskrar vöru. Svör
við spurningum, sem kanna viðhorf
til íslenskra stjórnvalda og stjórn-
sýslu, til Íslendinga sem þjóðar og
Íslands sem valkosts fyrir fjárfesta
og til búsetu, skipa okkur fyrir ofan
miðju, í 19., 21. og 22. sæti. – Innan
þess sviðs fáum við hæstu einkunn
og höfnum í 12. sæti fyrir ábyrga
ríkisstjórn á sviðum náttúru- og um-
hverfisverndar. Sú niðurstaða er síð-
an í takt við að við náum 13. sæti
vegna fegurðar íslenskrar náttúru.
Mér kom einna mest á óvart mis-
munurinn á almennri afstöðu panel-
þjóðanna eftir landfræðilegri legu
þeirra og fjarlægð frá Íslandi. Þær
þjóðir sem liggja okkur fjærst eru
jákvæðastar í okkar garð á öllum
þeim sviðum sem könnunin tekur til,
þar á meðal þrjár Suður-Ameríku
þjóðir svo og Rússland og Pólland,
margar þær sömu og þar sem
minnst verður vart umfjöllunar um
Ísland og Íslendinga. Á hinn bóginn
andar köldu til Íslands og Íslendinga
frá tveimur af panel-þjóðunum 20
sem standa okkur næst, bæði land-
fræðilega og í sögulegu samhengi. –
Þegar hér er komið sögu er rétt að
árétta að könnun Arnholt Gfk Roper
2008, sem ég hef verið að vitna til
var gerð á nýliðnu sumri, fyrir hrun
bankanna og íslensks efnahagslífs.
Vinnugagn fyrir endurreisn-
arstarfið sem framundan er
Það má öllum vera ljóst að um-
fjöllun heimspressunnar um það
sem almennt er kallað „gjaldþrot“
Íslands hefur náð eyrum fleiri þjóða
en nokkur önnur frétt eða umfjöllun
um Ísland fyrr og síðar. Hins vegar
verður að kanna sérstaklega á hvern
hátt og hvar þessi neikvæða „frétt“
hefur valdið ímynd okkar tjóni og
kafa ofan í það hvar helstu sókn-
arfæri okkar liggi eftir sem áður.
Takmarkast skaðinn við neikvæða
afstöðu erlendra fjárfesta? Mun um-
fjöllunin hafa áhrif á eftirspurn eftir
íslenskri vöru? Mun hún draga úr
ferðamannastraumi til landsins,
þegar „útsöluferðirnar“ vegna hruns
íslensku krónunnar leggjast af, eða
heldur það aðdráttarafl sem við höf-
um haft, fyrst og síðast fyrir
ósnortna, stórbrotna íslenska nátt-
úru? Sú er líka ímynd Íslands á okk-
ar slóðum í Kína og skv. könnun
Arnholt Gfk Roper 2008 eru það ein-
mitt Asíuþjóðir sem skipa Íslandi í
efstu sætin sem áfangastaðar ferða-
manna, í 6. sæti og ofar á lista þjóð-
anna 50.
Niðurstöðum þessarar könnunar
tel ég óhjákvæmilegt annað en
stjórnvöld tryggi sér óskoraðan að-
gang að og skoði vandlega til sam-
anburðar við niðurstöður könnunar
sem þarf að gera nú eftir hrunið til
að sjá hvernig og hvar ímynd og orð-
spor okkar hefur beðið hnekki. Það
er ærið verkefni að byggja upp
ímynd Íslands í útlöndum og það
vandasama verk verður að vinna
samhent af hálfu ríkisvaldsins, hags-
munasamtaka og fyrirtækja í ferða-
þjónustu til að tryggja að fé verði
varið á sem hagkvæmastan hátt, líkt
og lagt var til í nýlegri skýrslu
nefndar forsætisráðherra um ímynd
Íslands.
Eftir Jónínu
Bjartmarz » Til að vega á móti
skaðlegum frétta-
flutningi skiptir þó öllu
máli að bregðast við
sem allra fyrst, áður en
hin skaðaða ímynd fest-
ir sig í sessi …
Jónína Bjartmarz
Höfundur er frumkvöðull í Kína, áður
alþingismaður og ráðherra.
Hver erum við sem þjóð – í augum umheimsins?
BLOG.IS