Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 20
20 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Zona Industrial da Mota • Apart. 136 - 3834-909 ILHAVO - Portugal • Telef. 234 326 560 / 1 • Fax 234 326 559 • Unninn úr ferskum þorski • Veiddur á hinum köldu og hreinu hafsvæðum Íslands og Noregs • Blóðgaður um borð • Flattur og saltaður og látinn verkast a.m.k. í 90 daga • Þannig öðlast fiskurinn hinn rétta þéttleika fyrir útvötnun svo að þú að lokum getir notið hins frábæra hefðbundna saltfisks. Gleðilega hátíð - byrgjar, vinir og aðrir Íslendingar Saltaður og þurrkaður þorskur - Gadus Morhua morhua  GUNNÞÓRA Ólafsdóttir varði doktorsritgerð sína í landfræði við School of Geographical Sciences, University of Bristol 5. desember síðastliðinn. Heiti ritgerðarinnar er „Relating to Nat- ure. The Per- formative Spaces of Icelandic Tour- ism“. Andmæl- endur voru dr. Hayden Lorimer, University of Glasgow, og dr. Yvonne Whelan, University of Bri- stol. Leiðbeinandi verkefnisins var dr. Paul Cloke, nú prófessor við Uni- versity of Exeter. Meðleiðbeinendur voru dr. John-David Dewsbury, Uni- versity of Bristol, dr. Simon Naylor, University of Exeter, og dr. Karl Benediktsson, prófessor við Háskóla Íslands. Meginmarkmið rannsóknarinnar var rannsaka heilunaráhrif ferða- laga um náttúru Íslands. Breskir ferðamenn í tveimur skipulögðum hópferðum voru til rannsóknar. Kannað var ferlið frá draumi ferða- mannsins um að fara í ferð til Ís- lands, ferðalagið sjálft og aftur heim í hið venjubundna líf. Greint var að- dráttarafl náttúru Íslands og ferða- laganna. Tengslakenningum fyrir- bærafræðinnar var beitt til að rannsaka hvernig ólíkir ferðamátar – ganga og akstur – leiddu ferða- menn og náttúruna saman á sí- breytilegan hátt og hvernig tengslin höfðu áhrif á hvernig fólk skynjaði náttúruna, sjálft sig og líðan sína. Gunnþóra fæddist árið 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunar- skóla Íslands 1983 og tók leiðsögu- mannapróf frá Leiðsöguskóla Ís- lands 1998. Árið eftir hóf hún nám í landfræði við Háskóla Íslands og lauk BS-gráðu í því fagi árið 2003. Gunnþóra á tvö börn, þau Viktor Kaldalóns f. 1987 og Sonju Kalda- lóns f. 1996. Foreldrar hennar eru þau Erna Gunnarsdóttir, f. 1927, húsmóðir og Ólafur Þorvaldsson, f. 1920, trésmiður. Ólafur er látinn. Gunnþóra starfar við stunda- kennslu við Háskóla Íslands og fræðistörf í Reykjavíkurakademí- unni. Doktor í landfræði TÖLUVERT fleiri farþegar eiga bókað flug um hátíðirnar en á síð- asta ári, fjölgunin nemur 8% og dreifist nokkuð jafnt á áfangastaði. Í fréttatilkynningu frá Flugfélagi Íslands segir að hlutfallslega mest aukning sé í flugi til Vestmanna- eyja en þangað eiga um tvöfalt fleiri farþegar bókað en á síðasta ári, einnig er töluverð aukning í flugi til Egilsstaða. Hátt í 900 farþegar áttu bókað flug í gær, Þorláksmessu, sem er töluverð aukning frá fyrra ári en þar getur haft áhrif hvaða vikudag Þorláksmessu ber upp á. Fleiri á ferð um jólin FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Ragnarsson onundur@mbl.is EKKI er nóg að stjórnmálamenn taki ákvarðanir. Ákvörðunum þarf að fylgja eftir. Aðgerðaáætlun rík- isstjórnarinnar í þágu heimilanna í landinu var formlega kynnt af for- sætis- og utanríkisráðherra hinn 14. nóvember síðastliðinn. Að mánuði liðnum er því tilvalið að athuga hvernig gengur, en talsvert hefur miðað áfram fyrir jól. Léttari byrðar af húsnæði Í fyrsta lagi átti að létta með laga- setningu greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán með því að beita greiðslujöfnunarvísitölu, þ.e. launa- vísitölu sem vegin er með atvinnu- stigi. Nauðsynleg lagabreyting var afgreidd frá Alþingi 17. nóvember. Í öðru lagi átti að fjölga úrræðum Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við almenning í greiðsluvanda, svo sem með lengingu og skuldbreytingu lána, auknum sveigjanleika og rýmri heimildum gagnvart innheimtu. Þetta var flest komið í gagnið strax í október, samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði, en lagaheimild til lengingar lána var afgreidd á Alþingi 5. desember. Í þriðja lagi átti að heimila Íbúða- lánasjóði að leigja húsnæði í eigu sjóðsins til að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga í greiðsluvanda. Lagaheimildin fyrir þessu var einnig samþykkt 5. desember. Að sögn Kristjáns Kristjánssonar, upp- lýsingafulltrúa í forsætisráðuneyt- inu, er enn unnið að útfærslu þessa máls í félagsmálaráðuneytinu og enn á hugsanlega eftir að semja við ut- anaðkomandi aðila um framkvæmd þess. Svo átti að fella niður gjöld á borð við stimpilgjöld og þinglýsing- argjöld, sem torvelda skuldbreyt- ingar og uppgreiðslu lána. 17. nóv- ember voru samþykkt lög um niðurfellingu stimpilgjalda vegna skuldbreytingar lána. Flutnings- maður frumvarpsins var fjár- málaráðherra. Hættir að skuldajafna Fella átti úr gildi heimild til að skuldajafna barnabótum á móti op- inberum gjöldum. Sú heimild var í reglugerð og hefur nú verið felld úr gildi af fjármálaráðuneytinu. Einnig átti að fella úr gildi heimild til að skuldajafna vaxtabótum á móti afborgunum lána hjá Íbúðalánasjóði. Að sögn Kristjáns Kristjánssonar er þessi liður þegar kominn til fram- kvæmda. Íbúðalánasjóður mun framvegis ekki innheimta vaxtabæt- ur á móti vanskilum fólks. Ein þeirra aðgerða sem ekki er komin í framkvæmd er að barnabæt- ur verði greiddar út mánaðarlega, en ekki á þriggja mánaða fresti. Ástæð- an er sú að 1. nóvember sl. voru þær greiddar út fyrirfram til þriggja mánaða, eins og venjan var áður. Hin fyrirhugaða breyting var hins vegar tilkynnt tveimur vikum síðar. Fyrsta mánaðarlega útborgun barnabóta verður því ekki fyrr en fyrsta febrúar. Opinberum innheimtuaðilum átti að veita tímabundnar heimildir til að vera sveigjanlegir í samningum og taka mið af aðstæðum hvers og eins. Fjármálaráðuneytið hefur gefið út tilmæli um þetta efni og telst það komið til framkvæmda. Innheimtumennirnir mildaðir Einnig átti að lögfesta tímabundn- ar heimildir til innheimtumanna rík- issjóðs um mögulega niðurfellingu dráttarvaxta, kostnaðar og gjalda í sérstökum skýrt afmörkuðum til- fellum. Fyrrnefnd tilmæli fjármála- ráðuneytisins taka að nokkru til þessa líka, en þó á að sögn Kristjáns Kristjánssonar eftir að lögfesta heimildir hvað þetta varðar. „Það er því búið að auka mjög sveigjanleika og veita heimildir til þess að menn geri það sem þeir geta, en það á eftir að lögfesta ákveðnar heimildir,“ seg- ir Kristján. Tilmæli áttu líka að berast til allra ráðuneyta og stofnana um að milda innheimtuaðgerðir gagnvart ein- staklingum. Að sögn Kristjáns getur verið að einhverjar stofnanir eigi eftir að fá þessi tilmæli. Hins vegar skipti mestu máli að sýslumenn og toll- stjórar hafa allir fengið þau skriflega því þeir eru innheimtumenn ríkis- sjóðs í langflestum tilfellum. Undir verksvið viðskiptaráðuneytisins falla þau verkefni að lækka dráttarvexti og setja þak á innheimtukostnað. Björgvin með málin í vinnslu Björgvin G. Sigurðsson hefur þeg- ar mælt fyrir frumvarpi á þingi, um endurskoðun laga um dráttarvexti með það fyrir augum að þeir lækki tímabundið. Búist er við að frum- varpið verði afgreitt sem lög fyrir jól og taki gildi 1. janúar, að sögn Þor- finns Ómarssonar, upplýsingafull- trúa viðskiptaráðuneytisins. Hitt verkefnið snýst um að nýta heimild í 12. grein laga um inn- heimtu. Ekki þarf að breyta lögum, heldur aðeins reglugerð. Það mál hefur verið sent til umsagnar hjá hagsmunaaðilum og er reglugerð- arvinnan að sögn á lokastigi. Hún kemst í gagnið á næstu dögum að sögn Þorfinns. Útflutningur bíla auðveldaður Síðast en ekki síst átti með lögum að láta endurgreiða hluta vörugjalda og virðisaukaskatt af notuðum öku- tækjum sem seld eru úr landi, svo upphæðin verði greidd eiganda við- komandi ökutækis. 11. desember síð- astliðinn var frumvarp þessa efni af- greitt frá Alþingi sem lög. Flutningsmaður þess var fjár- málaráðherra. Morgunblaðið/Jim Smart Aðstoðin á góðri leið  Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í þágu heimila er langt komin í undirbúningi  Nokkur atriði ókláruð eða bíða framkvæmdarinnar af tæknilegum ástæðum Greiðslujöfnunarvísitala Fleiri úrræði ÍLS ÍLS fái að leigja húsnæði út Niðurfelling- stimpil og þinglýsingargjalda Hætta að skuldajafna barnabótum ÍLS hætti að skuldajafna vaxtabótum Barnabætur greiddar mánaðarlega Innheimtumenn ríkissjóðs sveigjanlegri Niðurfelling dráttarvaxta o.fl. Í sérstökum tilfellum Mildari innheimtuaðgerðir gagnvart einstaklingum Lægri dráttarvextir Þak á innheimtukostnað Endurgreiðsla skatta og gjalda af notuðum bílum Félags- og trygginga- málaráðuneyti Viðskiptaráðuneyti FjármálaráðuneytiÍ framkvæmd Á döfinni Aðgerðir í þágu heimila

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.