Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 52
52 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Þegar hugurinn hvarflar til Kolbeins frænda míns verður mér efst í Kolbeinn Þorgeirsson ✝ Kolbeinn Þor-geirsson fæddist á Hæringsstöðum í Stokkseyrarhreppi 24. desember 1923. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjól- garði sunnudaginn 11. febrúar 2007 og fór útför hans fram frá Digraneskirkju í Kópavogi 19. febr- úar. huga hans glaða og góða geðslag. Þessi dýrmæti eiginleiki er því miður allt of fáum gefinn og fleiri eru þeir sem alsettir eru ósýnilegum hnýflum sem alltaf finna sér fyrirstöðu. Þannig er nú gæðum genanna misskipt hjá mann- fólkinu. Nú vill svo til að miklar bókaðar heim- ildir eru til af langa- langafa Kolbeins Þor- geirssonar, Kolbeini Jónssyni frá Múla í Aðaldal sem syðra nefndist Kolbeinn í Ranakoti. Sá var alltaf svo glaður þrátt fyrir mjög hart mótlæti í lífinu, og það svo að fólkið í hinum lágu byggðum Suðurlands taldi hann sífellt vera að breiða yfir fátækt sína og andstreymi. Það er fólki að sjálfsögðu hollt á öllum tímum að láta ekki fátæktina smækka sig, en sumum er glað- værðin jafn eðlileg og að draga andann. Kolbeinn Þorgeirsson mun í æsku hafa fengið sína lífstíðar- bólusetningu gegn áhuga á búhokri í sveit, eins og svo óskaplega mörg ungmenni á Íslandi. Það mætti andstöðu en hann hvorki heyrði það né sá, vék að öðru og var glað- ur eins og langalangafinn norð- lenski. Svo lærði hann til kennara og kenndi á Akranesi. Síðan lærði hann múrverk sem hann stundaði meðan heilsan leyfði. Orðspor Kolbeins var einstaklega gott og gildir það bæði um störf hans hin daglegu svo og félagsmál og öll kynni. Ýmislegt varð honum mótdrægt í lífinu eins og gengur. Hann var þó svo gæfusamur að dansa aldrei kringum gullkálfinn. Okkur systkinunum í Skógsnesi þótti mjög vænt um þennan frænda okkar, við hittum hann reyndar allt of sjaldan, en hlýjan og glaðværðin og það að tala við börn, það er góð minning og gleymist ekki. Eitt sinn spurðum við hvort það væri ekki gaman að eiga afmæli á aðfanga- dag? Ekki fyrir börn, sagði hann, þá hverfur afmælið inn í jólin. Næstkomandi aðfangadag verða liðin 85 ár frá fæðingu Kolbeins Þorgeirssonar. Bestu kveðjur til fjölskyldu Kol- beins. Erlingur Kristjánsson. Á árinu 1998 þegar ég hóf störf sem sýslumaður á Akra- nesi hafði ég fyrst kynni af Svani Geir- dal yfirlögregluþjóni. Hann hafði unnið í lögreglunni á Akranesi um langt skeið við góðan orðstír en veiktist alvarlega nokkru fyrr á árinu þannig að nema varð af honum annan fótinn fyrir ofan hné. Fljótlega eftir að ég hóf störf hringdi hann í mig á sýsluskrifstofuna og sagði að hann væri ákveðinn í að koma aftur til starfa í lögreglunni þrátt fyrir missinn. Og af einstaklega mikilli þrautseigju gerði hann það. Með okkur tókust ágæt og eftirminni- leg kynni í kjölfarið og ófáar Svanur Geirdal ✝ Svanur Geirdalfæddist í Grímsey 16. september 1935. Hann andaðist 12. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 19. desember. stundir ræddum við saman á sýsluskrif- stofunni eða á lög- reglustöðinni um mál líðandi stundar eða hvernig mál voru afgreidd fyrr og nú, auk óteljandi sagna af hans lífs- reynslu. Og hann hafði frá ýmsu fróð- legu að segja af upp- vaxtarárum sínum úti í Grímsey og í Skagafirði auk sagna af sjónum. Þessi reynsluheimur hans nýttist vel í starfi sem lögreglumaður á Akranesi, stað sem tengdur er sjávarútvegi sterkum böndum. Svanur kom vel fyrir sig orði og kom saman skilmerkilegri frásögn af því sem hann vildi miðla sem meðal annars endurspeglast í sög- um eftir hann sem birtar voru í Lesbók Morgunblaðsins. Svanur Geirdal var skipaður yf- irlögregluþjónn á Akranesi fram til ársins 2002 en þá ákvað hann að draga sig í hlé. Una og hann höfðu fest kaup á íbúð í miðbæ Hafn- arfjarðar tveimur árum áður. Frá því að þau fluttu til Hafnarfjarðar og þar til að hann lét af embætti keyrði hann til vinnu sinnar á Akranesi á hverjum morgni eða tók rútuna uppeftir. Mikið þurfti að ganga á til þess að Svan vantaði til vinnu að morgni. Þessi seigla og ákveðni Svans voru einungis hluti hans mannkosta. Hann var vinnu- samur, margfróður, vel lesinn og mannglöggur. Hann vildi allan vanda leysa fyrir fólk sem til hans leitaði með jákvæðum hætti og án sárinda. Hann var þolinmóður og fús til að aðstoða þegar á reyndi. Mótlæti tók hann af æðruleysi. Allt eru þetta kostir í fari manns sem sinnir löggæslustörfum á Ís- landi nú sem áður. Skarð er fyrir skildi, Svanur Geirdal er látinn. Minning hans lifir meðal okkar sem kynntumst honum á lífsleið- inni og nutum góðs af samvistum við hann. Ég sendi Unu Guðmundsdóttur, eiginkonu hans, börnum og ástvin- um samúðarkveðjur á þessari erf- iðu stundu. Blessuð sé minning vinar og góðs starfsfélaga, Svans Geirdals. Sýslumaðurinn á Akranesi, Ólafur Þ. Hauksson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út- för hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birt- ingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju. Minningargreinar ✝ Elskulegur frændi okkar, SÆMUNDUR SIGURSTEINSSON, Seljabraut 68, Reykjavík, andaðist 15. desember. Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, laugar- daginn 27. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sæbjörg Vilmundsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ADOLF ÓSKARSSON pípulagningameistari, Hrafnistu, Hafnarfirði, sem andaðist mánudaginn 15. desember, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 29. desember kl. 13.00. Ásta Vigfúsdóttir, Hörður Adolfsson, Nanna M. Guðmundsdóttir, Erla Adolfsdóttir, Jóhann Pétur Andersen, Hilmar Adolfsson, Ólöf S. Sigurðardóttir, Adolf Adolfsson, Júlía Henningsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Okkar ástkæri BJÖRGVIN JÓSTEINSSON kennari, Grandavegi 45, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 29. desember kl. 13.00. Guðrún Steingrímsdóttir, Dóra Björgvinsdóttir, Ingi Steinn Björgvinsson, Vera Buus-Nilsen, Dagný Björgvinsdóttir, Jóhann S. Bogason, Bryndís Björgvinsdóttir, Brjánn Ingason og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og jarðarför elskulegs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, HREIÐARS JÓNSSONAR klæðskerameistara, Norðurbrú 5, Garðabæ. Guð blessi ykkur öll. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, Sigurður Arnór Hreiðarsson, Kristín Ragna Pálsdóttir, Guðrún Erna Hreiðarsdóttir, Valdimar Hreiðarsson, Thanita Hreiðarsson, Birna Hreiðarsdóttir, Pétur Gunnar Thorsteinsson, Guðlaug Dröfn Hreiðarsdóttir, Ásgrímur Skarphéðinsson, Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, Ólafur Arnarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Neshaga 10, Reykjavík. Steinþór Haraldsson, Guðríður Hulda Haraldsdóttir, Ólafur Haraldsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Páll Stefánsson, Elín Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR frá Efstadal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kumbaravogs. Guð blessi ykkur öll. Guðrún K. Ottesen, Sigurður Sigurðsson, Lilja Dóra Eyþórsdóttir, Gunnhildur Sigurðardóttir, Gestur Sæmundsson, Snæbjörn Sigurðsson, Björg Ingvarsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Halldór Rúnar Vilbergsson, Ásmundur Sigurðsson, Elva Gunnlaugsdóttir, Ása Björk Sigurðardóttir, Egill Þór Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kæru vinir! Ég vil þakka ykkur öllum fyrir hlýhug og stuðning sem þið sýnduð mér og fjölskyldu minni vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, ÓLAFÍU GUÐRÚNAR OTTÓSDÓTTUR, Klapparbergi 13, Reykjavík. Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar um jól og áramót. Hreinn Ómar Sigtryggsson og fjölskylda. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HULDA STEFÁNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, lést þriðjudaginn 23. desember. Útför verður auglýst síðar. Sigurgeir Höskuldsson, Ragnheiður Clausen, Pétur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.