Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 26
26 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008                                          Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur Rangárþing eystra | Fólk safnar ýms- um hlutum, s.s. frímerkjum, pennum og ýmsu dóti en hún Sigurdís Bald- ursdóttir í Miðkrika rétt við Hvols- völl safnar jólaskrauti. Á aðventunni var sýning á ýmsum munum hennar í Héraðsbókasafni Rangæinga. Sig- urdís sem alltaf er kölluð Dísa og er frá Torfastöðum í Fljótshlíð, segist reyndar ekki vera með söfnunar- áráttu heldur sé hún bara lítið fyrir að henda gömlu og hún reyni líka að nýta ýmislegt sem til falli enda er hún hagleikskona mikil sem hefur gaman að því að föndra og prjóna. „Ég læt handavinnuna eiginlega aldrei frá mér. Þegar ég er ekki að föndra er ég að prjóna eða hekla.“ Dísa hefur reyndar búið sjálf til mik- ið af því skrauti sem hún á. „Þetta hófst eiginlega allt með því að þegar ég fór að búa 1969 þá uppgötvaði ég að ég átti ekki mikið af skrauti sem ég gat hengt á tré. Ég fór því að búa til litla pakka úr eldspýtustokkum sem ég síðan skreytti og hef gert alla tíð síðan og bæði selt og gefið og mörgum þykir vænt um þessa litlu pakka.“ Þegar Dísa fór að búa þurfti hún að gera málamiðlanir með jólasiðina eins og títt er þegar fólk ruglar sam- an reytum. „Ég leyfði manninum mínum að ráða jólatrénu en hann var vanur því að hafa skreytta birkigrein um jólin. Hann var frá einum af Heklubæjunum og ég held að margir þar hafi haft það til siðs að nota birki enda nóg af því úti við. Ég fékk hins vegar að ráða í eldhúsinu og valdi jólamatinn sem ég var alin upp við, hangiket, og það höfum við fjöl- skyldan enn í jólamatinn. Birkigrein- in hefur oftast fengið að vera á heim- ilinu um jólin en ég hef líka prófað ýmislegt annað.“ Þegar Dísa er spurð hvað af öllu skrautinu henni þyki nú vænst um og sé í hennar huga merkilegast fer það saman. „Mér þykir afar vænt um gamla spýtujólatréð sem amma mín átti og ég erfði. Það er mjög gamalt og ég fékk hagleiksmanninn Oddgeir í Tungu til að gera það upp fyrir mig. Einnig þykir mér mjög vænt um jólatré sem ég eignaðist þegar ég var sex ára og sumt af skrautinu sem var á því er þar enn. Þetta tré varðveitti móðir mín og lét mig fá þegar ég var orðin fullorðin. Mér þykir einnig voðalega vænt um gamlan jólasvein sem er úr vaxi, er reyndar kerti, hann hefur verið til frá því ég man eftir mér og er að minnsta kosti á sjö- tugsaldri en gæti þess vegna verið eldri, en sjálf er ég sextug. Við systk- inin kveiktum reyndar einu sinn á honum og sáum strax eftir því þegar við gerðum okkur grein fyrir því að með þessu móti myndi hann hverfa. Því var slökk á honum hið snarasta og mamma gerði svo við hann þannig að hann er næstum jafngóður í dag. Svo á ég tvær gamlar jólakúlur sem eru mjög fallegar og önnur þeirra varðveitir tannaför dóttur minnar.“ En er ekki voðaleg vinna að setja upp allt þetta skraut? „Ja, ég hugsa nú eiginlega alltaf um það til hvers ég sé eiginlega að þessu fyrir nokkra daga, en svo byrja ég að setja þetta upp og mér finnst það alltaf jafn skemmtilegt.“ Það þarf ekki að taka það fram að húsið hennar Dísu er allt skreytt hátt og lágt, það eru óteljandi styttur og jólahús og ýmislegt ker- amik sem Dísa hefur sjálf málað. Svo eru alls kyns fígúrur af öllu tagi, margt sem börnin hennar hafa búið til og svo auðvitað hún sjálf. Henni þykir mjög vænt um alla hlutina sem börnin hennar hafa búið til og setur þá upp fyrir hver jól. Hvað telur Dísa að þetta séu margir hlutir? Nú hlær hún dátt, „það hef ég ekki hugmynd um en þeir skipta hundruðum þó að þeir nái kannski ekki þúsund. Ég hef bara aldrei talið enda væri það mikil vinna.“ Gullin geymd í kistu Dísa geymir jóladótið sitt í gamalli kistu sem hún erfði eftir afa sinn og er kirfilega merkt árinu 1875. Hún segir að þessi kista hafi reyndar ver- ið fyrsti fataskápurinn sinn en nú hefur hún skipt um hlutverk. Dísa safnar mögru fleiru en jóla- dóti og varðveitir og heldur upp á allt gamalt. Hún segist aldrei henda neinu og ef eitthvað sé ónýtt megi e.t.v. endurnýta það. Og það hefur hún svo sannarlega gert og víst er að margt af því sem Dísa hefur gert er mjög nosturslega unnið sómir sér vel hvar sem er. Jólin ganga í garð hjá Dísu þegar hún hefur skreytt birki- greinina sína en það gerir hún venju- lega á aðfangadag og um kvöldið snæðir hún svo hangikjötslæri ásamt fjölskyldunni. Þykir vænst um elsta jólaskrautið Eldgamalt Perlujólaskraut á spýtujólatréi sem Dísa erfði eftir ömmu sína. Ljós Jólasería með myndum af jóla- sveinum og jólapoki frá um 1956. Jólaskraut Litlu pakkarnir sem Sigurdís Baldursdóttir, Dísa, býr til sem skraut til að hengja á jólatré. Morgunblaðið/Steinunn Heima Dísa í eldhúsinu heima hjá sér í Miðkrika þar sem hún skreytir vel og vandlega fyrir jólin. Kerti Dísa og bróðir hennar kveiktu á kertinu þegar þau voru lítil. Gamalt og gott Jólatréð sem Dísa eignaðist sex ára gömul.  Hefur safnað jólaskrauti frá árinu 1969 Í HNOTSKURN »Dísa í Miðkrika hefur safn-að jólaskrauti frá því hún fór að búa árið 1969. »Dísa fór strax að búa tiljólaskraut úr hlutum sem aðrir myndu henda. »Merkilegasta skrautið efvafalaust gamalt spýtu- jólatré sem amma Dísu átti. »Jólatréð er birkigrein semtekin er inn á Þorláks- messu eða aðfangadag og skreytt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.