Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 49
Minningar 49 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Himneski faðir, hátíðleik jólin oss færa, heimurinn fagnar og ómar nú söngurinn víða. Birtan á himninum berst oss með ljósinu skæra, blessun og líknin til allra sem þjást og stríða. Hátíðin öll nú helgast af miskunn þinni, hirðar á Betlehemsvöllunum náð þína finna. Himneskur friður nú vaknar í vitund minni, svo verður um hvern þann er finnur sig meðal þinna. Með fagnaðarboðskapnum veit ég að Guð gerðist maður, er gaf öllu mannkyni ljós til að rata í myrkri. Og trúin mér lýsir og þess vegna geng ég nú glaður, því gleðileg jólin þau viðhalda trú minni styrkri. Í fæðingu Jesú við finnum hve Guð er oss góður, og gæska hans öll færir mannkyni blessun svo hreina. Í Kristi á maðurinn einstakan einlægan bróður, er birtist í verkum hans, náungakærleiknum eina. Þú veist – hann í kærleika ávallt sig allan vill gefa, í elsku til manna og þjóða sem nafnið hans lofa. Og ást hans er mest fyrir þá sem að aldrei í efa, eignuðust hlutdeild í móður og barni í kofa. Þú veist að í Kristi þér kærleikur allur mun gefast, er kemur þú til hans með þeim sem að nafnið hans lofa. Og elska hans býðst þér og aldregi skalt um það efast, að náð hans í bæn mátt þú eiga er fer þú að sofa. SIGURÐUR RÚNAR RAGNARSSON, sóknarprestur í Norðfjarðarprestakalli. Í Kristi átt þú allt Frá Sigurði Rúnari Ragnarssyni Í TILEFNI af skrifum Einars Birnir í Morgunblaðinu sunnudaginn 14. des- ember um villur í myndatexta í ljósmyndabókinni Þjóðin, landið og lýðveldið vill Þjóðminjasafn Íslands koma eftirfarandi á framfæri: Einar Birnir gerir athugasemd við myndatexta í myndaskrá sem á við mynd sem sýnir ábúendur í Grafarholti í Mosfellssveit. Textinn er á þessa leið í bókinni: Sveinn Björnsson heilsar heimafólki í Grafarholti í Mosfells- sveit. Talið frá vinstri: Þórunn Hansdóttir, Bryndís Einarsdóttir Birnir dótt- ir Þórunnar, Ólafía Valdemarsdóttir sýslumannsfrú, Björn Bjarnarson bóndi í Grafarholti, Guðrún Magdalena Birnir, Björn Birnir Björnsson hreppstjóri, sonur Bjarnar og maður Bryndísar, Sveinn Björnsson, Bergur … Sveinn Björnsson heilsar heimafólki í Grafarholti í Mosfellssveit. Talið frá vinstri: Þórunn Hansdóttir, Bryndís Einarsdóttir Birnir dóttir Þórunnar, Ólafía Valdemarsdóttir sýslumannsfrú, Björn Bjarnarson eldri í Grafarholti, Guðrún Magdalena Birnir, Björn. Birnir Björnsson bóndi og hreppstjóri, sonur Bjarnar eldri og maður Bryndísar, Sveinn Björnsson, Bergur … Þjóðminjasafnið biður Einar og skyldmenni hans velvirðingar á þessum mistökum. MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR þjóðminjavörður. Um villur í myndatexta Frá Margréti Hallgrímsdóttur: Þá útrásarvíkingar veittu það vín sem Guð oss ei gaf og bláeygir borgarar neyttu, bubbinn stóð upp og kvað. Við erum svo snjallir og sætir svo útvalið riddara lið, oss auður og allsnægtir kætir og ávöxtinn þinn hirðum við. Ef garnirnar gaula af hungri í gjöfulli útrásar bót, þá klifrið í fjallanna klungri og kjammsið á gamalli rót. Þó kötturinn kúki á teppi, og krakkinn í sína brók, Þá auðmjúkur æstu þig ekki því orkan er kreppunnar bót. Á duggunum okkar við dólum. Við dáleiddum hrekklausa þjóð. Nú Babýlons baalunum ljótum við blótum af ranglátum sjóð. Ef ölið á endanum þrýtur og arðsemin er ekki ljós, við söknum þjóðar sem flýtur sofandi að feigðar ós. Til heimalands aftur við höldum hressir og úthvíldir menn, við Betlehem leysum úr böndum og bankana kaupum senn. En brjóti nú samviskan böndin, ég bið þig að sættast við mig. Þá Lasarus, hjartað og höndin er hlutskipti mitt fyrir þig. ÁRSÆLL ÞÓRÐARSON húsasmiður. Út vil eg Frá Ársæli Þórðarsyni Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is RÍKISSTJÓRNIN hefur mátt sitja undir alls konar ámælum og skömmum undanfarnar vik- ur. Stundum með réttu en oft á tíðum með röngu. Það er örugg- lega erfitt að gera svo að öllum líki, en einmitt þess vegna er af- ar nauðsynlegt að vanda vel allt sem látið er frá sér fara, hvort heldur það eru tilkynningar eða röksemdir fyrir einhverjum að- gerðum. Því nefni ég þetta, að mér fannst með ólíkindum að hlusta á þær röksemdir sem hafðar voru uppi þegar mælt var fyrir lögum um hækkun á víni og tób- aki fimmtudaginn 11. desember sl. Frumvarpið var lagt fram kl. 18 og það orðið að lögum kl. 22 sama dag. Þvílíkur hraði á mál- inu og hvers vegna skyldi það nú vera? Jú, það var talið svo mikilvægt að klára málið í hvelli til að landsmenn gætu ekki hamstrað þessa vöru daginn eft- ir. Hugsa sér, á sama tíma sem allt virðist hér á hverfanda hveli og fólk sér fram á miklar þreng- ingar og auknar álögur næstu misseri, þá er það lífsspursmál fyrir ríkissjóð að koma í veg fyr- ir að landsmenn geti keypt sér einni rauðvínsflöskunni meira á „lága verðinu“. Það getur vel verið að þessi hækkun skipti sköpum fyrir ríkissjóð að mati stjórnvalda, en rökin fyrir þess- um mikla hraða við afgreiðslu þessarra laga eru kaldar kveðj- ur til okkar og einstakur dóna- skapur við þjóðina. GUÐMUNDUR ODDSSON, fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi. Er það þetta sem við þurftum? Frá Guðmundi Oddsssyni Fyrir tæpum 40 ár- um fór 12 ára gamall snáði heiman frá sér snemma vors um leið og skólinn var búinn til starfa í sveit sem hann hafði aldrei komið í áður, engar myndir séð, var ekki skyldur og hvað þá heldur þekkti fólkið á bænum eða aðstæður. Aðdragandi að þessari ráðningu var tilviljunin ein, því drengurinn var að hjálpa móður sinni í garðinum heima og nágrannakonan, hún Jónína var að kjafta eins og konur gera, yfir girðinguna þegar síminn hringdi. Að símtali loknu kom Jónína aftur út og sagði í óspurðum fréttum að þetta hafi verið Sigurjón frændi sinn í Lokinhömrum og hann vantaði ung- ling til sumarstarfa. Ætlaði hún að láta spyrjast út að Nonna, eins og hann var kallaður vantaði fermdan strák í það minnsta. Hugsanir og vangaveltur drengs- ins fóru af stað, því hann var nú þeg- ar farinn að hugsa til sumarsins. Fyrir lá að 12 ára krakkar fengu vinnu í frystihúsi staðarins og það þekktist ekki að gera ekki neitt ef á annað borð launuð vinna bauðst. Eini ókosturinn við þessa vinnu var inniveran, sem var stórt atriði í huga drengsins. Um kvöldið eftir vand- lega íhugun ákveð drengurinn að spyrja móður sína hvort hann mætti fara í sveit til Lokinhamra. Nafnið eitt hafði einhverja dulúð, en hann vissi fyrirfram að líkurnar væru ekki miklar á ráðningu vegna of ungs ald- urs og þótt hann hefði ekki neina sérstaka minnimáttarkennd, þá hjálpaði það ekki að vera minnstur í sínum bekk. Drengurinn var frá góðu heimili og því engin þörf á að koma honum fyrir frá sjónarhóli for- eldra. Jónína náði að sannfæra Nonna frænda sinn um að hann yrði ekki svikinn af þessum strák, en bætti við í nokkurskonar aðvörunartón „að margur er knár þótt hann sé smár“. Á næsta degi var ferðin skipulögð og fékkst far með flutningabíl. Snemma að morgni lagði bíllinn af stað frá Bolungarvík áleiðis í Arnarfjörð. Stoppað var á Hrafnseyri til að hleypa drengnum út og Gulla á Hrafnseyri eins og hún var kölluð, skutlaði drengnum á vegenda í Stapadal. Vinnumaður kom þangað til að bera farangurinn og fylgja drengnum síðasta spölinn. Á góðum degi var um klukkustundar gangur um Bjargarhlíð í Lokinhamradal. Þegar hér var komið í sögu var dagurinn á enda, veður fór versnandi og áður en gangan hófst var skollið á vorhret. Ferðin sóttist seint, ær með nýborin lömb í vanda á leiðinni sem þurfti að hlúa að og fólk var orðið hrætt um ferðalangana. En að lokum var hlíðin á enda, dalurinn opnaðist, snjóföl og gráminn yfir öllu, en snáð- inn orðinn kaldur, blautur og svang- ur og velti því hlutunum ekki mikið fyrir sér fyrr en daginn eftir. Ylurinn þegar í bæ var komið, þurr föt og góður maturinn var efst í huga drengsins og hann sofnaði um leið og lagst var á koddann í baðstofunni. Morguninn eftir og fyrsta vikan var þungbær. Fyrsta minningin frá kvöldinu áður var hversu kaldrana- leg ásýndin var. Ekkert rafmagn, ekki rennandi vatn, enginn vaskur í eldhúsi, né klósett í húsinu. Langt liðið á vorið, snjóföl yfir öllu og stað- urinn algjörlega einangraður, girtur af með hamraveggjum því ekki hægt að leggja veg eins og að öllum öðrum bæjum á landinu. Hvað er jákvætt við þennan stað? hugsaði drengur- Sigurjón Guðbjartur Jónasson ✝ Sigurjón Guð-bjartur Jónasson fæddist á Lok- inhömrum í Arn- arfirði 30. nóvember 1925. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísa- firði að morgni mánu- dagsins 8. desember síðastliðins og fór út- för hans fram frá Þingeyrarkirkju 13. desember inn. Jú, fólkið var gott. Annað kom ekki upp í hugann. Það var ekki valkostur að strjúka, þetta var mitt val, hugsaði drengurinn og sumarið yrði örugg- lega lengi að líða. Þessi frásögn gæti verið upphafið á skáld- sögu eða kvikmynd, svo dramatískt var þetta í mínum huga. Sem fullorðinn maður hugsa ég oft til þessa upphafs og fyrstu kynna minna af þessum stað og fólki sem ég met svo mikils. Nonni var vel gerður maður, heiðarlegur, réttsýnn og stutt í þakklætið fyrir minnsta viðvik. Hann var virtur af samferða- fólki sínu sem mikill fjárræktarmað- ur í alla staði, afburða fjárglöggur og hugsaði betur um skepnurnar en sjálfan sig. Það er margs að minnast þau fjög- ur ár sem ég var í sveit. Í stuttu máli var þessi dvöl leikfimi í hópi margra krakka frá vori til hausts undir góðri leiðsögn. Túnin voru ekki véltæk nema að hálfu leyti og einn 18 hest- afla Ferguson á bænum án ámokst- urstækja. Þetta gerði lífið skemmti- legt fyrir vinnuglaðan ungling, þar sem hrífa, heykvísl, orf, skilvinda, strokkur og handvatnsdælan í eld- húsinu voru áhöldin í líkamsræktar- salnum. Eða fara með pækilsaltaðan bútung í strigapoka til að afvatna úti í á eða skola og klappa nýþvegnum þvotti. Nota til þess „klapp“ sem fáir þekkja í dag. Kom fyrstur á vorin og fór síðastur á haustin. Síðasta árið sem ég var í sveit náði vegurinn í Lokinhamra, túnin þá sléttuð og sumarið eftir var vélakosturinn nú- tímavæddur og bættur. Forréttindi mín felast ekki síst í að hafa náð þessum gamla tíma sem þá var horf- inn allstaðar annarstaðar á landinu og ég tala nú ekki um matinn af gömlu gerðinni hjá Siggu og heima- baksturinn, því ekkert var rafmagn- ið og frystirinn. Sömuleiðis öll árin nú í seinni tíð sem ég hef mætt í smalamennsku, náð að þekkja aðra smala sem voru í sveit hjá Nonna á undan mér og ég þekkti ekki áður. Þeir bera sama hug og ég til þessa manns sem við minn- umst nú og enginn vildi missa af að þekkja á sínum uppvaxtarárum. Lóa, Andrés, Dísa og fjölskyldur, við Birna sendum ykkur samúðarkveðj- ur við fráfall bróður og síðasta ábú- anda í Lokinhamradal. Verði Guð með ykkur. Sölvi R. Sólbergsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.