Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 51
Minningar 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
✝ HólmfríðurHelgadóttir fædd-
ist á sjúkrahúsinu á
Akureyri 15. mars
1960. Hún lést á
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 18. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Sigríður Ketilsdóttir,
f. á Finnastöðum í
Eyjafirði 23. sept.
1925, og Helgi Sig-
urjónsson, f. í Kollu-
gerði í Kræklingahlíð
11. janúar 1919.
Systkini Hólmfríðar eru: 1) Smári, f.
1946, kvæntur Önnu Jóhann-
esdóttur, f. 1947, þau eiga þrjú
börn. 2) Ketill, f. 1947, kvæntur
Önnu Gunnbjörnsdóttur, f. 1958,
þau eiga þrjú börn og á Ketill fjögur
börn frá fyrra hjónabandi, 3) Sig-
búð með Erni Þórissyni frá Auð-
brekku, f. 19. júlí 1958. Sonur
þeirra er Bernharð bóndi í Auð-
brekku, f. 8. janúar 1979, kvæntur
Þórdísi Þórisdóttur frá Miðkoti í
Vestur-Landeyjum, f. 24. nóv-
ember 1981. börn þeirra eru Berg-
vin Þórir, f. 17. júlí 2001, Anna
Ágústa, f. 4. nóvember 2002, Ísak
Óli, f. 5. janúar 2005, og Karin
Thelma, f. 8. september 2006.
Hólmfríður ólst upp í Hólakoti í
Eyjafjarðarsveit til fjögurra ára
aldurs, síðan í Torfum í Eyjafjarð-
arsveit. Að loknu gagnfræðaprófi
fluttist hún til Akureyrar og hóf
störf við verslunar- og fram-
leiðslustörf hjá KEA, síðan stund-
aði hún umönnunarstörf bæði á
leikskóla og öldrunarheimilum á
Akureyri. Bóndi í Auðbrekku
1999-2002. Hún var mjög virk í fé-
lagsstörfum, meðal annars í Leik-
félagi Hörgdæla, Kvenfélagi Hörg-
dæla, verkalýðsfélaginu Einingu
og Framsóknarflokknum.
Útför Hólmfríðar fer fram frá
Möðruvallakirkju í Hörgárdal
laugardaginn 27. desember nk. og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
urjón, f. 1948, kvænt-
ur Sólrúnu Önnu
Sveinbergsdóttur, f.
1955, Sigurjón á einn
son frá fyrra hjóna-
bandi og Sólrún þrjú
börn. 4) Níels, f. 1951,
kvæntur Sveinbjörgu
Helgadóttur, f. 1950,
þau eiga fimm börn.
5) Jónína Sigurveig, f.
1953, gift Kristjáni
Gunnþórssyni, f.
1945, þau eiga þrjú
börn. 6) Guðjón Þór,
f. 1956, kvæntur Erlu
Halls Hallsdóttur, f. 1938, þau eiga
eina uppeldisdóttur og Erla á þrjú
börn af fyrra hjónabandi. 7) Reg-
ína, f. 1958, hún á tvær dætur. 8)
Gunnhildur, f. 1966, hún á þrjú
börn.
Árið 1978 hóf Hólmfríður sam-
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Með þessum orðum skáldsins
kveðjum við þig, kæra Hoffa, og
erum þess fullviss að í nýjum
heimkynnum þínum er sumarnótt.
Af mörgu er að taka, minningar
hrannast upp, en þær munum við
geyma í hjarta okkar. Þökkum þér
samfylgdina og biðjum þér bless-
unar Guðs.
Sendum ástvinum þínum öllum
samúðarkveðjur.
Guðjón Þór og Erla.
Kveðja frá Kórfélögum í
kirkjukór Möðruvallaklaust-
ursprestakalls
Þegar við nú kveðjum kæra vin-
konu okkar og kórfélaga Hólmfríði
Helgadóttur, viljum við minnast
hennar með nokkrum orðum.
Hoffa, eins og hún var oftast
kölluð, er nú látin 48 ára að aldri
eftir nokkurra ára baráttu við
krabbamein. Hún tókst á við veik-
indin með miklu æðruleysi og
styrk. Hoffa gekk til liðs við
Kirkjukór Möðruvallaklaustur-
sprestakalls fyrir um tuttugu árum
síðan og söng með kórnum eins
lengi og hún treysti sé til. Hún var
mjög dugleg í öllu félagsstarfi og
sinnti því af miklum dugnaði og
gleði. Hún lagði mikla alúð við
kórstarfið, til dæmis voru kór-
möppurnar hennar vel skipulagðar
og öllum nótnablöðum raðað upp
af nákvæmni. Kom það sér oft vel
fyrir okkur hin að leita til hennar
og var það lítil fyrirhöfn fyrir hana
að finna nótnablöðin langt aftur í
tímann.
Hoffa var mjög hugmyndarík að
finna fjáröflunarleiðir fyrir kórinn.
Við minnumst margra ógleyman-
legra kórferðalaga með henni,
bæði innan lands og utan.
Einnig minnumst við allra sam-
verustundanna í Möðruvallakirkju
og í hinum sóknarkirkjunum í
kring. Hoffa var jákvæð mann-
eskja og tókst á við örlög sín af
mikilli yfirvegun. Þegar veikindin
ágerðust var það ekki síst tónlistin
og trúin sem gerði henni lífið
bærilegra.
Við þökkum þér, elskulega vina,
fyrir samfylgdina og kveðjum þig
með þessu fallega bænarversi
Lilju Kristjánsdóttur. Innilegar
samúðarkveðjur sendum við Benna
syni hennar og allri fjölskyldunni.
Guð ég þakka vil þér,
að í þinni hendi ég er.
Þökk að ætíð þú leggur mér lið,
er í lausnarans nafni ég bið.
Gef mér fúsleik svo fagnandi ég,
dag hvern feti þinn hjálpræðisveg,
uns þú opnar mér himinsins hlið
og mitt hjarta á um eilífð þinn frið.
Það er sárt að þurfa að kveðja
svona lífsglaða konu eins og hana
Hólmfríði eða Hoffu, eins og hún
var oftast kölluð. Hoffa var mikil
barnakona og var alltaf gaman að
vera í kringum hana sem barn. Ég
man enn hvað mér þótti það gam-
an þegar hún sagðist vilja ættleiða
mig, þó að það væri nú meira í
gríni en alvöru.
Minningin er enn svo sterk þeg-
ar ég gisti hjá henni í sveitinni að
það er eins og það hafi verið fyrir
fáeinum árum. Þá var hún ekki í
vandræðum með að hugga litla
stelpu með heimþrá. Hoffa hafði
svo góða nærveru að það var ekki
annað hægt en að líða vel í kring-
um hana.
Hoffa mín, ég vona innilega að
þér líði betur núna.
Elsku Benni og fjölskylda, megi
guð gefa ykkur styrk á þessum
erfiðu tímum.
Hrönn Valgeirsdóttir.
Hólmfríður
Helgadóttir
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR LÍNDAL BENEDIKTSSON,
Neðri-Hundadal,
lést laugardaginn 20. desember á Landspítalanum.
Útför fer fram frá Kvennabrekkukirkju Dalasýslu,
þriðjudaginn 30. desember kl. 14.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11E fyrir
alúðlega umönnun og hlýju.
María G. Líndal og fjölskylda,
Svana Guðmundsdóttir og fjölskylda.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÞORBJARNARDÓTTIR,
lést aðfaranótt Þorláksmessu, 23. desember, á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson,
Sigurður Guðmundsson, Sigríður Snæbjörnsdóttir,
Þórður Ingvi Guðmundsson, Guðrún Salóme Jónsdóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður og afa,
BÖÐVARS M. GUÐMUNDSSONAR
bónda,
Efri-Brú,
Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Selfossi, fyrir góða umönnun og hlýju.
Börn, tengdabörn
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
STEFÁN GUÐMUNDSSON,
lést þriðjudaginn 9. desember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir eru færðar til hjúkrunarfólks
á 14G á Landspítalanum.
Bára Egilsdóttir og börnin.
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
RAGNHILDUR HULDA ÓLAFSDÓTTIR
frá Látrum í Aðalvík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Keflavík
mánudaginn 22. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
30. desember kl. 14.00.
Ásthildur Árnadóttir, Óli Jón Bogason,
Guðlaug Eiríksdóttir,
Sigríður Árnadóttir, John Myer,
Ragnhildur Árnadóttir, Hörður Falsson.
✝
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR VALDIMARSSON,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést laugardaginn 20. desember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn
29. desember kl. 14.00.
Ragnar Þórðarson, Þórey Karlsdóttir,
Arna Ragnarsdóttir,
Brynhildur Þórðardóttir,
Þórður Ólafur Ragnarsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR KR. JÓHANNESSON,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
að kvöldi sunnudagsins 21. desember.
Einar Þórðarson, Bergljót Jóhannsdóttir,
Matthildur Þórðardóttir, Lárus Einarsson,
Jóhannes Þórðarson, Margrét Sigmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.