Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 70
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
ÍSLENSKT hiphop hefur löngum
dúsað í skugganum og ekki náð
nema eyrum innmúraðra og inn-
vígðra í rappsenunni. Stöku lista-
menn hafa komist inn í megin-
strauminn síðan neistinn kviknaði
upp úr 1995 en það heyrir til und-
antekninga, jafnvel þó að stemn-
ingin grasseri neðanjarðar. Intro-
beats, sem rappáhugamenn þekkja
úr Forgotten Lores, kallaði til
nokkra kunningja úr reykvíska
rappheiminum og lögðu þeir til
texta, hver í sínu lagi. Úr varð þessi
fjórtán laga plata og ef eitthvað er
að marka pakkann er tímabært að
íslenska rappið hasli sér varanlegan
og sýnilegan völl í íslensku tónlistar-
lífi – það er greinilega nóg að gerast.
Það er gaman að heyra téðan hóp
rappara, sem telur meðal annars
Bent Rottweilerhund, Dóra DNA,
Didda Fel og 7Berg ásamt fleirum,
rappa alfarið á íslensku. Íslenskur
rímnaarfur nær vitanlega aftur í
aldir og því út af fyrir sig rökrétt
framhald að kveða nútímarímurnar
á móðurmálinu. Það er vel, alltént
ferst flytjendum hér flutningurinn
bráðvel úr hendi. Vitaskuld eru text-
arnir ríkulega enskuskotnir hér og
hvar, og það sem meira er, stemn-
ingin virðist á stundum fengin að
láni úr Compton-hverfi Los Angel-
es. Eins og segir í laginu „Lúkurnar
upp“: „En ef þú kemur með allt
fokkin’ krúið [skothvellur og dauða-
hrygla] – bitch, þett’er búið!“ And-
inn er þó skemmtilegur á því plöt-
unni í það heila og fjandskapur
gagnvart náunganum mætir afgangi
þó að meintum aukvisum sé sagt til
syndanna af og til.
Lögin á plötunni eiga fleira sam-
eiginlegt en að hafa skemmtilegan
kveðskap til að bera, nefnilega að
vera bundin saman af bráðgóðri
músík. Tónarnir eru jafnan í bak-
grunni til að láta röddunum fremsta
hluta sviðsins eftir, en engum
leynist hversu flott undirspilið er.
Hér er einfaldlega bullandi fag-
mennska á ferðinni og rappstand-
ardinn er greinilega hár á Íslandi
um þessar mundir. Margir rímna-
smiðir sem teljast til spámanna er-
lendis teldust fullsæmdir af því sem
hér ber fyrir eyru. Kennir hér
margra grasa þó að bakbeinið sé
oftar en ekki djassað og vel svalt
fönk.
Það ætti því að vera öllum að ljóst
að hér er af nógu að taka. Dóri DNA
á hörkuskemmtilegt framlag til
plötunnar, lagið „Á vökunni“, G.
Maris og Byrkir B flytja „Ertu
með?“ með stæl og Bent og Diddi
Fel eiga sömuleiðis frábært lag,
„Böst“. Loks verður að nefna lagið
„Borg óttans“ með Forgotten Lo-
res. Virkilega flott lag. Er þá aðeins
fátt eitt talið enda staðallinn hár
sem fyrr segir og lögin eru fjórtán.
Það er vonandi að þessi stórgóða
plata geri sitt til að draga íslenskt
hipphopp út úr húsasundunum og út
á stétt því það er greinilegt að þar
kraumar grúvið sem sjaldan fyrr.
Tívolí Chillout hlýtur að teljast
prýðilega til þess fallin að breiða út
boðskapinn því hér er sjaldan sleg-
inn feiltaktur. Framtak Introbeats
með þessari útgáfu er því tímabært
og þarft og ljóst að í kjölfarið þurfa
fleiri innan senunnar að taka af
skarið og koma sínu efni í umferð.
Eigum við að segja að hér hafi eldur
verið kveiktur? Ég er á því.
Reykjavík rímar vel
TÓNLIST
Introbeats – Tívolí Chillout bbbmn
Jón Agnar Ólason
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
650kr.
allar myn
dir
allar sýni
ngar
alla daga
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR -ALLA DAGA
Australia kl. 3 - 6:30 - 10 B.i. 12 ára
The day the earth... kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Zack and Miri ... kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Quantum of Solace kl. 3 - 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Saw 5 kl. 10:20 B.i. 16 ára
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
650k
r.
HEIMSFRUMSÝNG Á MAGNAÐRI STÓRMYND Í ANDA INDEPENDENCE
DAY
BYGGÐ Á EINUM BESTA VÍSINDATRYLLI ALLRA TÍMA!
KLUKKAN TIFAR
OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI
LOKIÐ!
EKKERT
GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR
650k
r.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
KLUKKAN TIFAR
OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI
LOKIÐ!
EKKERT
GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR
- S.V., MBL
Stærsta BOND-mynd allra tíma!
GLEÐILEG JÓL SÝNINGARTÍMAR OG TILBOÐ GILDA FYRIR
- S.V., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND”
-VJV -TOPP5.IS/FBL
HÖRKUSPENNANDI MYND
ÚR SMIÐJU LUC BESSON
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
“Dónaleg og sóðaleg
gamanmynd.
Alveg frábær.”
- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
650k
r.
LEIKURINN
HELDUR ÁFRAM...
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA!
650k
r.
The Day the Earth ... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Four Christmases kl. 4 - 6 B.i. 12 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 3:20 B.i. 14 ára
Australia kl. 5:30 - 9 B.i. 12 ára
Skoppa og Skrítla í bíó kl. 2:30 - 4 LEYFÐ
Inkheart kl. 3:20 - 5:40 - 8 -10:20 B.i.10 ára
Taken kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Inkheart kl. 2 - 6 - 8 B.i.10 ára
Skoppa og Skrítla í bíó kl. 2 - 3:30 - 4:45 B.i. 7 ára
Australia kl. 6 - 9 B.i.12 ára
The Day the Earth stood still kl. 10 B.i.12 ára
Four Christmases kl. 4 B.i.12
ATH. SÝNINGAR KL. 2 GILDA AÐEINS LAU 27. OG SUN 28. DESEMBER
650k
r.
ÆVINTÝRAMYND
AF BESTU GERÐ
Bráðskemmtileg mynd þar sem
heimur galdra og ævintýra lifnar við
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borg
Stórkostlegt epískt meistaraverk
frá leikstjóra Moulin Rouge!
- Þ.Þ., DV - V.J.V., -TOPP5.IS/FBL
-S.V., MBL -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- Ó.H.T., Rás 2