Árdís - 01.01.1966, Blaðsíða 81
Ársrit Bandalags lútérskra kvenna
79
Emelia Oddson
1893—1965
Emelía Oddson var fædd 1. júlí
1893 að Sólheimum í Geysisbyggð.
Foreldrar hennar voru landnáms-
hjónin Tómas og Ólöf Björnsson
og hjá þeim ólst hún upp til full-
orðinsára. Hún naut alþýðuskóla-
menntun í byggð sinni og á sama
tíma vandist hún við heimilsitörf
og að hlynna að sjúkum, því að
móðir hennar var heilsulítil í mörg
ár og oft rúmföst.
Emma, því svo var hún vanalega
kölluð, giftist Vilhjálmi Oddssyni
árið 1914 og fluttist á heimili hans,
sem var skammt frá Sólheimum,
og þar bjuggu þau allan sinn bú-
skap.
Máske hafa þau aldrei verið talin
efnuð eftir nútíma mælikvarða, en
þau voru samhent, hamingjusöm, glaðvær og gestrisin. Oft þegar
vinir þeirra komu í heimsókn mátti heyra söng og hljóðfæraslátt
fram eftir nóttunni, því Vilhjálmur hafði ágæta tenórrödd og lék
á fiðlu. Emma var ætíð með kaffi, því ekki máttu gestir þeirra
fara án þess að þiggja góðgerðir.
Vilhjálmur lézt árið 1954 og harmaði hún fráfall hans til
æviloka.
Fyrir rúmum sjö árum fór Emma að finna til lasleika, sem
ágerðist með ári hverju. Hún var undir læknishendi, ýmist heima
eða á sjúkrahúsi. Þá tíma, sem hún gat verið heima, var hún glöð
og hress í anda og talaði sjaldan um veikindi sín. Síðustu þrjá
mánuðina, sem hún lifði, var hún í Arborg Memorial Hospital og
þar dó hún hinn 16. október 1965.