Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 4

Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 4
4|Morgunblaðið Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Það er svo mikilvægt, sér-staklega nú á tímum, aðframhaldsskóla- og há-skólanemar taki þátt í svona verkefni en með því eru þau að gefa til samfélagsins og læra að bera ábyrgð,“ segir Elín Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri mentorverkefnisins Vinátta. „Fyrir mörg börn er þátt- taka í verkefninu líflína og ljósi punkturinn í vikunni. Flestir hafa kynnst einhverjum á lífsleiðinni sem hefur komið inn í líf manns á ákveðnum tíma, skilið eitthvað gott eftir sig en fer svo og kveður. Það er því alltaf hægt að horfa til baka til þessa tíma, til þessa einstaklings sem gaf þér margar góðar stundir. Nem- arnir eru slíkar fyrirmyndir í lífi barnanna og allt eru þetta heil- steyptir einstaklingar sem eru mikið í íþróttum og jafnvel félagsmálum. Það er því aðallega verið að gefa börnunum góðar stundir, góðar upp- lifanir og jákvæðar og heilbrigðar fyrirmyndir í lífi þeirra.“ Mikil forréttindi Verkefnið Vinátta tengir saman þrjú skólastig, háskóla-, framhalds- skóla og grunnskóla. Nemi úr há- skóla eða framhaldsskóla tekur að sér grunnskólabarn í eitt skólaár og er góð fyrirmynd í lífi barnanna. Elín segir að báðir aðilar læri heilmikið á þessu verkefni en verkefnið er rekið af Velferðarsjóði barna á Íslandi og upphafsmaður þess var Valgerður Ólafsdóttir. „Vináttuparið hittist einu sinni í viku út skólaárið, þrjá tíma í senn og það er svo gaman að sjá hvað börnin eru stolt af þessum stóru vinum sínum. Þetta verða svo mikil forréttindi, bæði fyrir nemann og barnið. Neminn er þó hvorki kennari né sálfræðingur heldur bara hann sjálfur og gefur það sem hann hefur að gefa. Saman skapa þau svo samverustundir en það er á þeirra valdi hvað þau gera. Neminn er þó alltaf fullorðni, þroskaði aðilinn í sambandinu og hann á að vita sín mörk,“ segir Elín og bætir við að ýtt sé undir að samverustundin sé ódýr. „Það er skemmtilegra að hafa þetta hóflegt og vera frumlegur. Það er ýmislegt sem vinirnir gera saman, fara á kaffihús, föndra, fara í sund og margt fleira. Að miklu leyti eru nem- arnir líka að gera eitthvað sem börn- in stinga upp á. Þarna er reynslu- heimur þessa tveggja aðila að skarast og þau eru að læra hvort af öðru og kynnast heimi hvort annars.“ Ósköp venjuleg börn Elín segir að því miður séu fleiri grunnskólabörn sem sæki um verk- efnið en nemar til að sinna þeim. „Við bjóðum ákveðnum árgöngum í ákveðnum skólum að taka þátt og þá er öllum boðin þátttaka. Allir sem taka þátt í verkefninu gera það af fúsum og frjálsum vilja, það er eng- inn látinn í verkefnið. Þegar við fáum fleiri umsóknir en við ráðum við þá höfum við samband við tengilið okk- ar í grunnskólanum og í samráði við hann forgangsröðum við börnin sem við teljum líklegust til að njóta góðs af því að taka þátt. Það eru oft börn sem hafa lent í einelti, börn af erlend- um uppruna, börn sem eru fé- lagslega illa stödd en allt er þetta ósköp venjuleg börn. Einfaldlega eru þetta bara börn á Íslandi, af íslensk- um eða erlendum uppruna,“ segir Elín og bætir við að verkefnið bjóðist börnum frá 7-12 ára aldri. „Þau börn sem eru í miklu félagslegu starfi og mjög upptekin fá ekki eins mikið út úr þessu og þau nýta verkefnið ekki eins vel og þau sem eru í litlu fé- lagslegu starfi. Fyrir þau sem eru í miklu félagsstarfi verður þetta enn eitt verkefnið en fyrir börn sem eru í litlu félagsstarfi er þetta kannski það eina sem þau geta hlakkað til alla vikuna.“ Verkefnið virkar Um þessar mundir er áttunda starfsár Vináttu að hefjast og Elín segir verkefnið hafa tekist mjög vel. „Þetta hefur skilað óskaplega miklu til barnanna og til nemanna líka. Þetta eru stórglæsilegar krakkar og yndisleg börn sem við fáum í verk- efnið. Verkefnið er líka svo frábært af því að það virkar. Auðvitað getur það komið fyrir að sambönd gangi ekki en við erum með mikið ut- anumhald um verkefnið, nemana og börnin. Við fylgjumst grannt með og erum með einstaklingsviðtöl og hópaviðtöl. Nemarnir eru allir með tengilið sem þeir tala við ef eitthvað kemur upp á og við leysum það um leið. Í 99 prósentum tilvika er hægt að leysa vandann. Í meginatriðum gengur verkefnið frábærlega og þetta er líflína fyrir mörg börn.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Elín Þorgeirsdóttir: „Vináttuparið hittist einu sinni í viku, þrjá tíma í senn og það er svo gaman að sjá hvað börnin eru stolt af þessum stóru vinum sínum. Þetta verða svo mikil forréttindi, bæði fyrir nemann og barnið.“ Vinir Hrund Erlingsdóttir og John Smith Labandero eyða tíma saman vikulega. Líflína fyrir mörg börn Það er mikilvægt að börn eigi sér góðar fyr- irmyndir en tugir reyk- vískra barna eiga sér framhalds- eða há- skólanema sem vin í verkefninu Vinátta. Þessi jákvæðu tengsl eru sumum börnum líf- lína. Þau hlakka til alla vikuna. Það er augsýnilega kærleikur á milli John Smith Labandero, átta ára, og Hrundar Erlingsdóttur, nítján ára, þegar þau setjast niður til að ræða við blaðamann. Hrund nemur í Kvennaskólanum í Reykjavík en þar tekur hún þátt í verkefninu sem val og fær þrjár einingar fyrir. Hrund segir verkefnið hafa verið svipað og hún bjóst við. „Það kom mér eiginlega helst á óvart hvað þetta var gefandi. Í byrjun hélt ég að þetta væri bara fyrir mig, að hitta John og gera eitthvað saman en maður fær svo rosalega mikið til baka. Til dæmis þakklætið frá foreldrunum sem er rosa- legt og það jafnast alveg á við einingafjöldann hvað maður fær rosalega mikið til baka. Svo er þetta góð afsökun fyrir mig að fara á teikni- myndir og þrívíddarmyndir í bíó. Maður fær að vera lítill aftur, fara út í snjókastskeppni og gleyma sér svolítið.“ Hrund og John eru nú ekki sammála hver vann í snjókastskeppninni. Hrund bendir á John en John segir að þau hafi nú bara bæði unnið. „Hann kastaði mikið lengra en ég,“ segir Hrund en John segir það bara vera vegna þess að hann æfir fót- bolta. „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og ég hlakka til þegar Hrund kemur. Ég ætla að halda áfram að hitta Hrund.“ Aðspurður hvort hann hafi fengið kartöflu í skóinn um jólin segist John aldrei fá kartöflu í skóinn þar sem hann sé ekki óþekkur. Hrund tekur undir það. „John er voða- lega ljúfur og algjört draumabarn.“ Alltaf skemmtilegt Það er ýmislegt sem Hrund og John hafa gert saman, til að mynda farið í húsdýragarðinn, föndrað jólakort, farið í bíó og svo bjuggu þau til sína eigin heimasíðu sem John segir að hafi verið erfitt en skemmtilegt. Hann segist hafa gert fullt af skemmtilegum hlutum með Hrund og til dæm- is farið í bíó en hann hafði þá aldrei farið í bíó áð- ur. „Mitt hlutverk er að efla hann þannig að við reynum að gera sem mest saman tvö en stundum hittum við önnur vináttupör líka. Ég á eftir að sakna hans þegar verkefninu lýkur en ég veit ekki hvort það sé á hinn bóginn,“ segir Hrund og hlær. „Ég fer alltaf ánægð frá samvistum okkar. Stundum getur verið erfitt að púsla þessu inn í dagskrána en ég er alltaf rosalega ánægð með daginn þegar ég er búin. Ég myndi hiklaust ráð- leggja öðrum að gera þetta því þetta á mjög vel við mig. Ef ég á slæman dag og hitti John þá verður dagurinn miklu betri. Ég mæli hiklaust með þessu því þetta gefur manni svo mikið til baka. Svo hefði ég ekki getað verið heppnari með barn, það eru engin vandamál.“ Þakklætið er gríðarlegt Svæðisleiðsögunám um Reykjavík og nágrenni Almennt um námið Námið tekur eina önn og veitir svæðisleiðsöguréttindi. Kennt er þrjú kvöld í viku frá mánudegi til miðviku- dags, auk æfingaferða um helgar. Kennsla hefst mánudaginn 19. janúar. Inntökuskilyrði Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi. Æskilegt er að hafa gott vald á einu erlendu tungumáli. Nánari upplýsingar á www.mk.is, í síma: 594 4025 eða á netfanginu: lsk@mk.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.