Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 8

Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 8
8|Morgunblaðið Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Starfshættir skóla eruákvarðaðir af skólunumsjálfum og leggur mennta-málaráðuneytið tiltölulega almennar línur á grundvelli nám- skrár. Þannig boðar ráðuneytið ekki aðferðafræði hvorki kennslu né mats en hefur orðið þess áskynja og lagt sig fram um að styðja við fjölbreytni í námsmati. Þar á meðal símatinu sem er al- mennt í kennslufræði samtímans talinn eðlilegri þáttur í skólastarfi heldur en mjög mikið prófamiðað mat,“ segir Þórir Ólafsson, sér- fræðingur hjá menntamálaráðu- neytinu. Á könnu skólanna Þórir segir þær línur sem lagðar séu í gegnum námskrár yfirleitt ekki mjög ákvarðandi eða sund- urgreinandi um framkvæmd skóla- starfs heldur fyrst og fremst rammi utan um það. Útfærslan svo sem val á kennsluefni, kennsluhátt- um og námsmati á könnu og ábyrgð sé síðan skólanna. Íslenskir skólar séu almennt prófastýrðir ef svo megi segja þar sem skrifleg próf eru í mörgum tilvikum loka- áfanginn í matinu en umræða um símat hafi nú færst í aukana. Því til stuðnings sé vert að halda til haga að ný löggjöf um framhaldsskóla, sem tók gildi síðastliðið sumar, leggi nokkra áherslu á slíkt. Sam- kvæmt löggjöfinni er skólaárinu ekki skipt í kennsludaga og próf- adaga, eins og lögin frá árinu 1996 kváðu á um, sem endurspegli með- vitaða afstöðu til fjölbreyttara námsmats. Annarprófum slaufað Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi starfar nánast eingöngu eftir hinum nýju lögum, enda hug- myndafræði hans mótuð á sama tíma. Einungis símat er notað til að meta námsárangur, en nemendur útskrifast með stúdentspróf af fé- lagsfræði- eða náttúrufræðibraut að loknu þriggja ára námi. „Nú lif- um við í upplýsingatækniþjóðfélagi þar sem mögulegt er að ná sér í fróðleik og fylgjast með allan sólar- hringinn. Það er því engin þörf á því að eyða svo stórum hluta af hverju skólaári í að láta nemendur svara spurningum sem framhaldslíf þeirra er dæmt eftir. Skólinn er vinnustaður og vinnan er unnin jafnt allt skólaárið með því að meta nemendur regulega. Þetta er gert með skriflegum prófum eða verk- efnaskilum í formi ritgerða, leik- rita, myndböndum eða öðru slíku formi þar sem allir nemendur hafa fartölvu til afnota. Á fimm vikna fresti fá nemendur síðan endurgjöf og einkunn á skalanum ófullnægj- andi, í lagi eða mjög gott, kenn- arinn skrifar leiðbeinandi at- hugasemdir eftir atvikum og þannig fá nemendur svokallað leið- sagnarmat út árið. Í lok annar fá nemendur einnig einkunn á bilinu einn til tíu í hverri námsgrein en hugmyndin er á næsta ári að hafa ekki annir heldur einfaldlega skóla- ár,“ segir Ársæll Guðmundsson, skólameistari menntaskólans. Formfast prófakerfi Ársæll segir að kannanir meðal nemenda hafi sýnt að þeir séu mjög ánægðir með fyrirkomulagið. Þeir fari vissulega í próf en mun- urinn sé sá að þau séu ekki sett upp í formföstu prófakerfi þar sem trúað er að tveggja tíma próf í lok annar sýni færni nemandans í til- tekinni námsgrein. Hann segir um- hugsunarefni að þeir nemendur sem nú séu við að hefja mennta- skólanám séu fæddir inn í upplýs- ingatækniþjóðfélag. Því eigi að nýta styrkleika þeirra á því sviði og leyfa þeim að nota tölvur, msn, far- síma og iPod í náminu. Þá var einnig gerð tilraun í skólanum til að nota svokallaðan „open source“ hugbúnað í námi og kennslu. Með honum má nálgast ritvinnslu og töflureikni ókeypis, en hið opinbera setur háar fjárhæðir í leyfisgjöld til slíkra kaupa á ári hverju. Ársæll segir að þessi tilraun hafi ekki leitt til neinna vandræða og þannig hafi sparast gífurlegar fjárhæðir. Vinna jafnar yfir veturinn Í Kvennaskólanum í Reykjavík hefur símat farið vaxandi en er þó enn mest notað á lokaári. Algengt er að nemendur á lokaári séu í fimm eða sex fögum á önn og fari í tvö lokapróf, en þó allt í upp fjögur eftir því hvaða valgreinar þau velja sér. „Það hefur orðið meira um sí- mat, bæði í framhaldsskólum og á háskólastiginu, á undanförnum ár- um. Okkur finnst krakkarnir vinna jafnar yfir veturinn með þessum hætti og með auknu símati mætti líka nýta veturinn betur þar sem mikill tími fer í það að halda próf,“ segir Oddný Hafberg, aðstoð- arskólameistari Kvennaskólans. Oddný segir einnig að með aukinni upplýsingatækni hafi orðið auðveld- ara að taka upp símat og þeir sem hafi kynnst því, bæði nemendur og kennarar, verði hrifnir af slíku. Með nýrri löggjöf sé búið að auð- velda notkun símats þar sem áður hafi verið meiri reglur um fjölda kennslu- og prófdaga. Nú sé hugs- unin jafnvel að símat verði í aukn- um mæli notað í stað prófa. Morgunblaðið/Valdís Thor Oddný Hafberg „Okkur finnst krakkarnir vinna jafnar yfir veturinn með þessum hætti.“ Stutt við fjölbreytni í námsmati Þegar jólin nálgast og eins þegar fyrstu geislar vorsólarinnar fara að skína sitja framhaldsskólanemar, líkt og fleiri, sveittir við próflestur. Jóla- og vor- próf hafa hingað til verið órjúfanlegur hluti af skólastarfi, en síðastliðin ár hefur símat verið tekið upp í auknum mæli í framhaldsskólum landsins. Morgunblaðið/RAX Ánægja Ársæll Guðmundsson segir kannanir hafa sýnt að nemendur séu ánægðir með fyrirkomulagið. mbl.is ókeypis smáauglýsingar                                           !  "#$% &'()   *    +    ! ,                 -      +     +   .         ! ,  /    .           + ,           +   0      1        +                    

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.