Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 12
12|Morgunblaðið
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Munurinn á þessu námi og frum-kvöðlanáminu er fyrst ogfremst sá að fólk þarf ekkiendilega að leggja fram fast-
mótaða hugmynd heldur er einblínt á að
nemendur geti unnið að hugmyndum sínum
eða annarra síðar meir. Ramminn utan um
námið er sá að við viljum gjarnan reyna að
kenna til dæmis þau fjármála- og markaðs-
fræðifög sem kennd hafa verið í frum-
kvöðlanáminu en með, má segja, tækjum og
tólum listaskólans. Námið er hugsað sem
tveggja ára diplómanám en verður fléttað
saman við frumkvöðlanámið þannig að nem-
endur þaðan geta komið inn í námið á öðru
ári. Síðan stefnum við að því að búa til
þriðja árið líka, þannig að fólk geti útskrif-
ast með BA gráðu. Við undirbúning náms-
ins höfum við átt í samræðum við Listahá-
skólann, Hönnunarmiðstöð Íslands, Háskóla
Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
alls staðar hefur verið tekið vel í það að
taka þátt í hugmyndalegum undirbúningi,“
segir Magnús Árni Magnússon, fram-
kvæmdastjóri skóla skapandi greina.
Hlustað á listamanninn
Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og
myndlistarmaður, er einn þeirra sem komið
hafa að undirbúningsferli námsins. „Ég
fékk eiginlega í fyrsta skipti að upplifa að
vera listamaðurinn sem hlustað er á út frá
þeirri reynslu sem ég hef verið að miðla á
námskeiðum og fyrirlestrum. Þetta nám er
fersk tilraun til þess að skapa nýjar for-
sendur í viðskipta- og listnámi sem gengur í
raun út á að afhjúpa samhengið milli oft
gjörólíkra hluta og hvernig þeir mætast í
hverjum og einum einstaklingi. Námið litast
verulega af trausti á þá eiginleika sem
hverjum og einum eru gefnir og birtast í
innsæi, tengihæfni og sköpunareiginleikum
af ýmsu tagi sem eiga rætur í svo mörgu.
Ég held það sé ekki eldfimt að tala um við-
skiptalist þar sem tímabært er orðið að
slaka á þeim ótta að viðskipti séu hin miklu
spillingaröfl því þau eru í raun samskipti og
af minni reynslu er listsköpun það líka þar
sem hún snýst í raun og veru fyrst og
fremst ekki um það að sanna sig heldur
eiga samspil við umhverfi sitt og næsta
mann. Þess vegna þarf þetta ekki að vera
feimnismál og ég hef undrast í mörg ár
hvað við eigum gríðarlega mikið af ónýttum
tækifærum í fólki,“ segir Þorvaldur.
Grunnur að nýjum forsendum
Þá segir Þorvaldur praktíska hlið náms-
ins mjög nytsamlega og í raun sé þar verið
að leggja grunn að nýjum forsendum í list
og menningu. Menn fái verkfæri til að vera
mótandi og í raun frumkvöðlar í verkefnum
í sköpun sem kannski byggist á að tengja
ólíka aðila án þess að þurfa til þess eina
hugmynd sem menn þurfa að verja frekar.
Frekar sé byggt á forvitni og að fólk fái sýn
til að tengja saman glóandi rafmagnsvírana
sem liggi fyrir framan það. „Það er gríð-
arlega praktískt að fólk ljúki námi sem
gengur út á að það verði þeir aðilar sem
þora að hafa þessa sýn og fylgja henni eftir.
Þannig verða nemendurnir draumaframleið-
andinn sem bíður ekki eftir listvörunni og
ætlar svo að markaðssetja hana heldur er
jafnvel upphafsmaðurinn sjálfur, en leyfir
síðan öðrum að framkalla sínar hugmyndir í
gegnum þann vettvang sem skapaður er,“
segir Þorvaldur sem einnig mun koma að
kennslu í náminu.
Glóandi vírar tengdir saman
Morgunblaðið/RAX
Gott samstarf Magnús og Þorvaldur þróa nýtt nám í viðskiptalist.
Í skóla skapandi greina innan
Keilis, miðstöðvar vísinda,
fræða og atvinnulífs, hefur nú
verið sett saman nýstárlegt
nám. Um er að ræða tveggja
ára diplómanám í viðskiptalist,
sem má segja að sé sprottið út
frá frumkvöðlanámi skólans
sem hófst síðastliðið haust.
Ekki finnst öllum allar náms-
greinar jafn skemmtilegar og
stundum getur verið erfitt að
halda athygli yngstu nemendanna.
Í stærðfræði getur verið sniðugt
að setja upp smá leik eða jafnvel
keppni í kringum námsefnið.
Börnin geta þá til dæmis keppt
um hver er fljótastur að klára tíu
dæmi rétt og fær sá sem er
sneggstur eitthvert smáræði í
verðlaun, eins og epli eða annan
ávöxt. Eftir á er síðan hægt að
gefa öllum eitthvað smávegis að
narta í, enda skiptir jú ekki öllu
máli að vinna, frekar að taka þátt
og læra. Ýmiss konar leikir eru
einnig til í kringum tölur sem
sniðugt er að nota til að auðvelda
yngri kynslóðinni lærdóm og
heimanám.
Leikur
að tölum
gítar
skóli ólafs gauks
Gítargaman
Innritun hefst á morgun, mánudag
Sláið á þráðinn í síma 588 3730, sendið tölvupóst, ol-gaukur@islandia.is
eða komið við í skólanum Síðumúla 17, kl. 14-17 virka daga
Kennsla hefst 26. janúar
FRÍSTUNDAKORT Í FULLU GILDI
• Skemmtilegt tónlistarnám, gulli betra
• Ævilöng inneign sem aldrei rýrnar
• Áratuga reynsla, þekking, fyrsta flokks
kennsla og einstaklega hlýlegt húsnæði
• Gítarar á staðnum, allt kennsluefni innifalið,
þar á meðal nýr geisladiskur með undirleik við
vinsælustu, íslensku sönglögin
• Lauflétt og lifandi gítarnám fyrir alla, yngri sem
eldri, byrjendur eða lengra komna
Lögum okkur tímabundið að aðstæðum og
LÆKKUM VERÐIÐ VERULEGA
hjá þeim sem innritast og ganga frá greiðslu fyrir 15. janúar
• Lánum gítara til heimaæfinga endurgjaldlaust meðan birgðir endast
• Ekki seinna vænna að undirbúa
útileguna í sumar með því að geta spilað
svolítið á vinsælasta hljóðfærið í dag