Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 23
Morgunblaðið |23 Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Háskólinn á Bifröst og ListaháskóliÍslands bjóða upp á þverfaglegtdiplómanám sem er fyrsta sinnartegundir á Íslandi. Námið, sem kallast Prisma, byggist á skapandi og gagnrýn- inni hugsun og burðarfögin tvö eru heimspeki og fræðigreinar lista. Hrund Gunnsteinsdóttir, forstöðumaður Prisma, segir námið í raun vera búið til sem viðbrögð við ástandinu sem hefur skapast hérlendis síðustu mánuði. „Ég hafði sett saman námskeið sem byggist á skapandi gagnrýninni hugsun í alþjóðlegu samhengi og sé svo viðtal við Hjálmar Ragnarsson í Morg- unblaðinu þar sem hann talar um að það þurfi að bjóða fólki upp á nám sem veitir því tækifæri til að öðlast nýja færni og víkka út svið sitt. Ég setti mig í samband við hann og fer síðan á fund með Jóni Ólafssyni hjá Bifröst. Í kjölfar þess byrja ég að setja saman nám sem uppfyllir ákveðnar kröfur, þverfaglegt nám sem byggist á skapandi og gagnrýninni hugsun.“ Þurfum að vera meðvituð Námið er byggt þannig upp að það varir í átta vikur og það er metið í 16 einingar á há- skólastigi. Hrund segist búast við um 80-120 manns víðsvegar að úr samfélaginu. „Skráning hófst um miðjan desember og viðbrögðin eru mjög góð. Þessi tegund af námi er eitthvað sem mér finnst alltaf eiga vel við en fólk er ein- staklega móttækilegt fyrir núna. Sennilega hefur námið sterka tilvísun í okkar samfélag því við sjáum núna að við þurfum á því að halda að vera meðvituð, gagnrýnin og skapandi. Grunnskilyrði er stúdentspróf en fólk sem sækir námið er líka með meistaragráðu og doktorsgráðu. Okkur langaði að bjóða nám- skeiðið ókeypis fyrir fólk en það er erfitt að biðja um styrki og nú er búið að skera niður framlög til menntamála. Hins vegar fór ég á fund með stéttarfélögum og fagfélögum til að kanna hvort hægt væri að niðurgreiða námið fyrir félagsmann. Þetta er ekki lánshæft nám en margir hjá stéttarfélögunum eru mjög spenntir fyrir því og til dæmis ætlar Blaða- mannafélag Íslands að niðurgreiða námið að fullu fyrir félagsmenn sem hafa nýverið misst vinnuna. Það mikilvægasta sem við höfum er að halda áfram að virkja þessa auðlind sem við höfum í fólki sem er að missa vinnuna.“ Fjölmargir sérfræðingar Námið er kennt í Reykjavík og að sögn Hrundar verður því skipt upp í þrjár lotur. „Einu sinni í hverri lotu eyðum við deginum í Háskólanum á Bifröst og þar er námið brotið upp. Annars er námið alla daga vikunnar og einu sinni í viku kemur gestafyrirlesari eftir hádegi. Það er þá einhver sem segir okkur eitt- hvað skemmtilegt sem er að gerast á ólíkum sviðum í samfélaginu, eitthvað nýtt og spenn- andi sem dýpkar innsýn okkar í eitthvað sem við höfum alltaf vitað af en höfum ekkert pælt í. Svo eru fastir hópavinnutímar fjóra tíma í viku en svo bætast alls kyns vinnufundir ofan á það, segir Hrund og bætir við að það séu yfir 50 sér- fræðingar sem koma að náminu. „Námið er byggt upp þannig að sérfræðingarnir koma inn í klukkutíma eða tvo. Þetta eru aðilar sem eru að deila með okkur því sem þeim liggur á hjarta eða því sem þeir hafa sérhæft sig í. Allir sem við höfum leitað til um að koma að kennsl- unni hafa tekið ofsalega vel í þetta og það er mikill velvilji.“ Skapandi og gagnrýnin hugsun mikilvæg Morgunblaðið/Valdís Thor Hrund Gunnsteinsdóttir: „Sennilega hefur námið sterka tilvísun í okkar samfélag því við sjáum núna að við þurfum á því að halda að vera með- vituð, gagnrýnin og skapandi. Grunnskilyrði er stúdentspróf en fólk sem sækir námið er líka með meistaragráðu og doktorsgráðu.“ Atburðir síðustu mánuði sýna að öll þurfum við að vera gagnrýnin og meðvituð en nýtt diplómanám í Háskól- anum á Bifröst og Listahá- skóla Íslands byggist einmitt á skapandi og gagnrýninni hugsun. Námið var í raun búið til sem viðbrögð við ástandinu hérlendis undanfarna mánuði. Franskan er freistandi ! Alliance Française í Reykjavík Frönskuskóli – menningarmiðstöð - bókasafn Tryggvagötu 8 · S: 552 3870 alliance@af.is · www.af.is Innritun hefst 5. janúar 2009. Franska „à la carte“ í Alliance Française: Almenn frönskunámskeið · Samtalsnámskeið · Einkatímar · Fjarnám · Námskeið fyrir börn · Námskeið fyrir unglinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.