Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 26
26|Morgunblaðið Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur joinhanna@gmail.com Ætli sviðsskrekkurinnhafi ekki verið versturí upphafi, en svo hefurleiðin bara legið upp á við því þetta er svo skemmtilegt. Það var bara erfitt að standa fyrir framan fólk til að byrja með. Svo hvarf hnút- urinn í maganum eins og dögg fyrir sólu mjög fljótlega,“ segir Ísak Ernir Róbertsson, 13 ára nemandi í Smára- skóla, sem er á sínu fjórða ári í söng- og leiklistarskólanum Sönglist. „Þetta byrjaði allt með því að mamma mín plataði mig á sum- arnámskeið hjá Sönglist af því að ég hékk bara heima án þess að hafa neitt fyrir stafni á sumrin. Mér leist ekkert á þetta í byrjun og þverneitaði að fara, en lét til leiðast til að gleðja mömmu mína. En ég sé sko ekki eftir því að hafa farið að ráðum mömmu þetta sumar. Mér fannst námskeiðið svo svakalega skemmtilegt, ákvað að halda áfram og nú er ég harðákveð- inn í því að verða leikari þegar ég verð stærri. Þetta var sem sagt allt henni mömmu að kenna,“ bætir Ísak Ernir við og brosir. Ísak er í Smára- skóla í Kópavogi og á að fermast í vor. Áður en hann fór í Sönglist var hann að læra á trommur hjá Skóla- hljómsveit Kópavogs en segist hafa orðið að leggja kjuðana á hilluna þar sem allt í einu hafi verið allt of mikið að gera hjá sér. „En ég stefni að því að fara í trommunám að nýju. Ég stefni líka að því að gerast leikari þegar ég verð stærri og líka snjó- brettakappi því það er svo skemmti- legt.“ Skemmtilegur félagsskapur „Ég hef alltaf verið harðákveðin í því að gerast leikkona og hef vitað það mjög lengi,“ segir Auður Finn- bogadóttir, sem er í 10. bekk í Árbæj- arskóla. „Ég byrjaði í Sönglist 11 ára gömul þegar ég fluttist heim frá Dan- mörku. Þetta er reynsluríkur heimur og góð undirstaða ef maður á annað borð hyggst leggja leiklistina fyrir sig og í Sönglist lærir maður leiklist, söng og dans og eignast fullt af skemmtilegum vinum.“ Þau Auður og Ísak eru sammála um að erfiðast sé að stíga fram á sviðið í fyrsta skipt- ið, en svo sé það ekkert mál. Sviðs- skrekkurinn venjist bæði fljótt og vel. „Og nú er svo komið að þegar maður fær tækifæri til að fara á svið, þá bara grípur maður það tækifæri með bros á vör og eins og ekkert sé sjálfsagð- ara,“ segir Auður, sem hefur líkt og Ísak fengið sín tækifæri í jólasýn- ingum Borgarbarna og í nem- endasýningum Sönglistar sem haldn- ar eru tvisvar á ári, í lok haust- og vormissera. Saxað á biðlistann „„Nemendafjöldi Sönglistar telur nú ríflega 420 krakka á aldrinum 7 til 20 ára sem þýðir að við erum með fleiri nemendur en margur grunn- skólinn,“ segja þær Erla Ruth Harð- ardóttir og Ragnheiður Hall, skóla- stýrur Sönglistar, sem hefur sitt aðsetur í Borgarleikhúsinu. Þær Erla Ruth og Ragnheiður kynntust sjálfar á unglingsárum í Verslunarskóla Ís- lands. Haustið 1998 ákváðu vinkon- urnar að snúa bökum saman og stofna söng- og leiklistarskóla fyrir börn og unglinga sem notið hefur sí- vaxandi vinsælda þessi tíu ár sem hann hefur verið starfandi. Þá var Erla orðin sprenglærð leikkona frá The Guildford School of Acting and Dance og Ragnheiður búin með söng- kennaranám frá Söngskólanum í Reykjavík auk þess sem hún bætti síðar við sig kennaranámi frá Kenn- araháskóla Íslands. „Í nokkur und- anfarin ár höfum við ekki getað ann- að eftirspurn svo við brugðum á það ráð síðastliðið haust að opna und- irbúningsdeild í Borgartúninu og fjölga listhópum um tæpan helming eða úr fjórum í sjö til að saxa eilítið á biðlistann því það voru svo margir frábærir nemendur, sem áttu auðvit- að rétt á því að tilheyra listhópi. List- hóparnir eru svo uppistaðan í Borg- arbörnum, barna- og unglingaleikhúsi Sönglistar. Borg- arbörn stóðu meðal annars að jóla- sýningunni „Rétta leiðin“ í Iðnó á ný- liðinni aðventu, en jólasýningar Borgarbarna eru árlegur viðburður fyrir hver jól auk þess sem ein- staklega metnaðarfullar nem- endasýningar eru haldnar tvisvar á ári. Einnig eru Borgarbörn með sýn- ingar á forvarnarleikritinu Alsæla, sem er jafningjafræðsla um skaðsemi fíkniefna. Þegar skólastýrur eru innt- ar eftir því hvort von sé á einhverjum viðbætum við skólann segja þær að stofnun verði sérstök söngleikjadeild í byrjun árs, ásamt því að Sönglist fer í samstarf við kennsluprógrammið „Virkir þáttakendur“. Þar er um að ræða nám fyrir börn, tveggja ára og upp úr sem byggist á því að nem- endur taki virkan þátt í gegnum hljóðfæraleik, söng og dans. Kenn- arar í „Virkir þáttakendur“ eru þær stöllur Hildur Guðný Þórhallsdóttir og Þórdís Heiða Kristjánsdóttir. Þær hafa farið með þessa kennslu víða í leik-, grunn- og tónlistarskóla og hlotið mikið lof fyrir.“ Morgunblaðið/Golli Sönglist Erla Ruth Harðardóttir og Ragnheiður Hall eru skólastýrur Sönglistar. Sviðsskrekkurinn hverfur mjög fljótt Upprennandi stjörnur Auður Finnbogadóttir, 16 ára, og Ísak Ernir Róberts- son, 13 ára, eru sammála um að erfiðast sé að stíga á sviðið í fyrsta skiptið. Þau stíga sín fyrstu spor á sviði hjá Sönglist og eftir fyrsta sviðs- skrekkinn er námið bara gefandi og einkar skemmtilegt, segja upprennandi stór- stjörnur á Íslandi. • TUNGUMÁL • ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA Islandzki dla audzoziemców Icelandic as a second language • HANDVERK OG LISTIR • HEILSA OG ÚTLIT • TÖLVUR OG REKSTUR • TÓNLIST • SÖNGNÁM OG LEIKLIST • NÁMSAÐSTOÐ • MATUR OG NÆRING • FJARNÁM VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI • DAGFORELDRANÁMSKEIÐ Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860. Ný námskrá kemur út um miðjan janúar og verður aðgengileg á netinu: www.nhms.is STARFSENDURHÆFING HAFNARFJARÐAR Kennsla í grunnnámi og einingabæru námi hefst 12. janúar. Námskeið á vorönn 2009 hefjast 26. janúar! MÍMIR símenntun E in n t v e ir o g þ r ír 4 .2 52 Stuttar námsleiðir fyrir fólk á vinnumarkaði Grunnmenntaskólinn Er fyrir flá sem hafa stutta skólagöngu a› baki og vilja styrkja stö›u sína í almennum greinum. Almennar námsgreinar á framhaldsskólastigi Stær›fræ›i, íslenska, enska og danska. Námskrá er á framhaldsskólastigi en kennslua›fer›ir og námskrá mi›ast vi› flarfir og reynslu fullor›inna einstaklinga. Öryggisvar›anám Öryggisvar›anám er fyrir starfandi öryggisver›i. Aftur í nám Er fyrir fólk sem á vi› lestrarör›ugleika e›a lesblindu a› strí›a. Færni í fer›afljónustu Er fyrir flá sem starfa vi› fer›afljónustu e›a stefna a› starfi í atvinnugreininni. Námi› er ætla› 20 ára og eldri. Mi›a› er vi› a› hægt sé a› stunda námi› me› vinnu og áhersla er á a› fla› sé sni›i› a› flörfum og reynslu fullor›inna einstaklinga. Kostna›ur vegna námsins er a› mestu greiddur af Fræ›slumi›stö› atvinnulífsins. Einnig eiga margir rétt í starfsmenntasjó›um verkal‡›sfélaga. Uppl‡singar og innritun í síma 580-1800 www.mimir.is VORÖNN 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.