Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 27
Morgunblaðið |27
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Danskar sjónvarps-þáttaseríur hafa veriðmjög vinsælar hér á landiundanfarin ár og ber þá
hæst seríur á við Kroniken, Matador
og Örninn. Seríurnar hafa verið vin-
sælar víða annars staðar og vilja
margir meina að nú sé gullöld í
leiknu sjónvarpsefni í Danmörku. Í
byrjun mars heldur Endurmenntun
Háskóla Íslands námskeið sem ber
nafnið Danski sjónvarpsseríugald-
urinn en þar verður farið í hug-
myndafræðina á bak við dönsku
þættina. Sveinbjörn I. Baldvinsson
handritshöfundur leiðbeinir á nám-
skeiðinu en hann vann að dönsku
seríunum Taxa og Forsvar. „Á nám-
skeiðunum verður leitast við að svara
þeirri spurningu hvað það sé sem
gerir það að verkum að dönsku serí-
urnar slá í gegn. Það varð ákveðin
breyting um miðjan tíunda áratug
síðustu aldar og það má segja að
Taxa sé fyrsta serían í þessari ný-
bylgju í dönsku sjónvarpi. Það er
engin tilviljun hvernig þessi nýbylgja
kom til og hvað var gert til þess að
svo mætti verða.“
Fundu ákveðin svör
Sveinbjörn segir að Danirnir hafi
ekkert endilega fundið upp hjólið
hvað varðar vinsældir sjónvarps-
sería. „Þeir skoðuðu markvisst hvað
það væri sem gerði það að verkum að
fólk horfði á seríur frá öðrum löndum
viku eftir viku og veltu fyrir sér
hvernig væri best að skapa eitthvað
álíka úr eigin veruleika. Það var sú
grundvallarspurning sem þeir lögðu
upp með og segja má að þeir hafi
fundið ákveðin svör. Námskeiðið
heitir sjónvarpsseríugaldur og það er
nú oft þannig að á bak við það sem
manni finnst vera galdur, að það er
engin fjölkynngi á bak við það þegar
upp er staðið. Þetta er spurning um
vinnu, fagþekkingu og metnað,“ seg-
ir Sveinbjörn og bætir við að óhætt
sé að segja að það sé gullöld í leiknu
sjónvarpsefni hjá Dönum. „Núorðið
vinna Danir sjónvarpsseríurnar í
samvinnu við önnur lönd og fjár-
magna þær að verulegu leyti utan frá
því þær eru fyrirfram seldar. En
þetta er ekki tilviljun og þetta er ekki
heppni. Það er mikil þróunarvinna og
miklar pælingar á bak við þetta.“
Á bernskuskeiði
Aðspurður af hverju Íslendingar
séu svona hrifnir af dönsku þátt-
unum segist Sveinbjörn telja að það
sé vegna þess að þeir séu nær okkar
veruleika en margar aðrar seríur.
„Lengst af höfum við heldur ekki
haft neitt íslenskt efni af þessu tagi
til að horfa á en það virðist sem betur
fer vera að vænkast. Íslensk sjón-
varpsseríugerð er komin mjög vel af
stað en er á bernskuskeiði. Við erum
ekki ennþá farin að gera langar serí-
ur af þessu danska tagi heldur erum
við fyrst og fremst að gera fjögurra
eða sex þátta seríur. Það gilda önnur
lögmál um þannig seríur,“ segir
Sveinbjörn sem hefur skrifað tvær
íslenskar sjónvarpsþáttaseríur,
Mannaveiðar og Hamarinn sem
verður sýndur í haust. „Auðvitað fer
ekki hjá því að maður reyni að læra
af eigin reynslu af að hafa unnið við
langar danskar seríur en þetta er
auðvitað ekki alveg það sama.“
Höfundur Önnu Pihl mætir
Námskeiðið hefst 11. mars og alls
er hist fjórum sinnum. „Það sem er
ætlunin að gera þessi kvöld er að
skoða brot úr einhverjum af þessum
seríum og fjalla um hvað við sjáum,
hvað er á bak við þetta og hvað það
er sem gerir það að verkum að þetta
nær til áhorfenda með þeim hætti
sem það hefur gert. Svo fáum við til
okkar gest, Dorte W. Høgh, sem hef-
ur meðal annars skrifað töluvert af
hinni vinsælu seríu um lögreglukon-
una Önnu Pihl. Ég geri ráð fyrir því
að hún fjalli sérstaklega um þá
reynslu.“
Fagþekking og metnaður
Morgunblaðið/Ómar
Sveinbjörn I. Baldvinsson: „Danir skoðuðu markvisst hvað það væri sem gerir það að verkum að fólk horfir á
seríur frá öðrum löndum viku eftir viku og hví skyldu þeir ekki gera slíkt að eigin veruleika.“
Danskar sjónvarps-
þáttaseríur hafa verið
mjög vinsælar á Ís-
landi undanfarin ár
og á námskeiði hjá
Endurmenntun Há-
skóla Íslands verður
farið í saumana á
hvað liggur að baki
þessari velgengni.