Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 29

Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 29
Morgunblaðið |29 Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Ígildi eru um 300 til 400 samningar viðskóla víðs vegar um heiminn og árlegasendum við rúmlega 200 skiptistúdentatil annarra landa. Einnig eru nú hér 800 erlendir stúdentar og þar af er helmingur skiptistúdentar sem koma á vegum samstarfs- samninga við HÍ. Alþjóðaskrifstofan hefur umsjón með Nordplus, menntaáætlun nor- rænu ráðherranefndarinnar, sem nær til allra skólastiga og fullorðinsfræðslu. Þátttakendur í Nordplus eru Norðurlöndin auk Eystrasalts- landanna. Einnig annast alþjóðaskrifstofan í samstarfi við Rannsóknarþjónustu HÍ og í samræmi við samning við menntamálaráðu- neytið rekstur landsskrifstofu mennta- áætlunar Evrópusambandsins. Sú áætlun nær til allra skólastiga, meðal annars Erasmus, sem nær til háskólastigsins, auk fullorð- insfræðslu og starfsmenntunar. Auk þess rek- ur Alþjóðaskrifstofan upplýsingastofu um nám erlendis sem er opin almenningi en þangað leita aðallega þeir sem huga að háskólanámi erlendis,“ segir Karítas Kvaran, forstöðumað- ur Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands. Hægt að sækja til ótal landa Karítas segir að kennaraskipti milli landa fari vaxandi svo og starfsmannaskipti innan háskóla þar sem starfsmenn í stjórnsýslum háskólanna heimsæki erlenda háskóla til að læra af koll- egum sínum. Langflestir fari til Norður- landanna í stúdentaskipti svo og Evrópulanda eins og Spánar, Þýskalands og Ítalíu. Einnig sé töluvert um skiptinám til Bandaríkjanna og Kanada. Á undanförnum tveimur árum, eftir að farið var að kenna kínversku við Háskóla Ís- lands og við hann stofnað Konfúsíusarsetur, kín- verskt menningarsetur, hefur samstarf við kín- verska háskóla einnig verið aukið. Þannig fór rektor nýverið til Kína og gerði samning við tvo nýja skóla. Sömu sögu er að segja um Japan en samstarf hefur aukist við japanska háskóla síðan japönskukennsla var tekin upp fyrir nokkrum árum og fara nú um 10 manns á ári til Japans. Fleiri fjarlæga staði má nefna sem Alþjóðaskrif- stofan hefur samninga við, til að mynda Ástralíu, Nýja-Sjáland og Suður-Ameríku. Samþykkt námsáætlun „Til að geta sótt um skiptinám þurfa nem- endur að hafa lokið í það minnsta einu námsári hér heima og semja námsáætlun sem deildin þeirra þarf að samþykkja til að hún teljist gild. Við tökum síðan við umsókninni, en ef margir vilja fara og námspláss eru fá þurfum við að forgangsraða en oftast kemst fólk þangað sem það vill. Við sjáum síðan um að koma umsókn- unum áfram út og tökum einnig við umsóknum frá skiptinemum frá okkar samstarfsskólum. Það segir sig sjálft að þeir sem eru í tungu- málanámi fara mikið út en annars eru nemend- urnir úr flestum námsgreinum. Þó er vissulega misjafnt hversu mikið deildirnar hvetja nem- endur til að stunda nám erlendis. Sumt meist- aranám er til dæmis þannig að það er kennt í litlum hópum þar sem ekki er hægt að bjóða mjög fjölbreytt úrval námskeiða og mögu- leikar á slíku því meiri í stórum skólum erlend- is. Í raun tökum við núorðið á móti miklu fleiri erlendum nemendum en við sendum en í upp- hafi var þetta á hinn veginn. Þá komu færri þar sem tungumálið var mikil fyrirstaða en nú er í boði fjölbreytt úrval námskeiða á ensku sem hefur auðveldað þeim að koma,“ segir Karítas. Aldrei að vita um framhaldið Karítas segist enn ekki vita hvernig þetta ár verði með breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu en skrifstofunni hafi borist heilmargar fyr- irspurnir. Framhaldið fari síðan eftir því hvernig fyrirgreiðsla hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna verður og hversu háir styrkir frá Nordplus og Erasmus verða. Um leið segir Karítas að það sé aldrei að vita nema áhuginn aukist þar sem margir sæki nú aftur í nám. Vissulega mætti vera miklu meira um styrki fyrir nemendur, til dæmis þá sem fara til Bandaríkjanna, en í langflestum skólum þar hefur þó tekist að semja um niðurfellingu á skólagjöldum, svokallaða gagnkvæma nið- urfellingu. Annars þurfi nemendur að borga sitt uppihald sjálfir sem gæti orðið erfiðara í ár. Bætt kunnátta í tungumálum Hjá skrifstofunni geta kennarar einnig sótt um styrki í Erasmus til að setja upp hrað- námskeið í samstarfi við erlenda samtarfs- aðila. Þá hafa grunn- og framhaldsskólar tekið þátt í fjölbreyttum samstarfsverkefnum við önnur lönd. Landslagið heillaði „Mér fannst mjög spennandi að koma til Ís- lands þar sem ég er að læra umhverfis- landafræði. Umhverfi landsins, jarðfræði þess og fallegt landslagið heillaði mig, en það var einmitt eftir að hafa horft á heimildarmynd um hverfandi jökul á Íslandi sem ég ákvað að velja þetta nám,“ segir Rachel Mathieu, skipt- istúdent frá University of Montreal í Kanada. Hún segir aðalmuninn á námi sínu hér og heima að einkunnagjöf sé gjörólík. Í Montreal- háskólanum sé meira um regluleg próf og skýrslugerð en hérlendis virðist meira um slíkt við lok annar. Þannig hafi hún aldrei áður farið í próf sem gilti heil 100 prósent áður en hún kom til Íslands. Æ fleiri erlendir stúdentar Morgunblaðið/Valdís Thor Karítas Kvaran Flestir fara til Norðurlandanna en aðrir halda mun lengra í stúdentaskipti. Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands annast meðal annars stúdenta- og kennaraskipti Háskóla Íslands og gerð samstarfssamninga við er- lenda háskóla fyrir hönd há- skólans. Auk þess sér skrif- stofan um ýmis önnur erlend samstarfsverkefni fyrir menntastigið á landsvísu. Í nýjum heildstæðum lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla skapast ný tækifæri til eflingar menntunar á Íslandi og hefur að- koma foreldra um leið verið stór- aukin. Fagna breytingunum Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir samtökin fagna sér- staklega breytingum sem lúta að auknum sveigjanleika milli skóla- stiga, meira sjálfstæði skóla og að efla eigi aðkomu foreldra að skóla- starfi barna sinna. Í nýjum lögum eru nemendur og þarfir þeirra sett- ar í forgrunn og fræðsluskylda til 18 ára aldurs tryggir jafnræði allra barna til náms. Heimili og skóli, landssamtök foreldra, sjá ótvíræð tækifæri til eflingar menntunar á Íslandi með nýju lögunum með sjálfstæðari skólum, aukinni fagvit- und kennara og virkari aðkoma foreldra að skólastarfi barna sinna. Sveigjanlegur framtíðarskóli Heimili og skóli áttu fulltrúa í nefndunum þremur sem sáu um endurskoðun, á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi og unnu sem hagsmunaðilar foreldra að gerð nýju menntastefnunnar sem nú hef- ur litið dagsins ljós. Í vinnu við end- urskoðunina lögðu Heimili og skóli áherslu á að skapa framtíðarskóla sem væri sveigjanlegur og veitti öll- um börnum jöfn tækifæri til náms. Ný heildstæð löggjöf er ótvíræður vísir að slíkum framtíðarskóla sem samtökin styðja heilshugar. Lengi býr að fyrstu gerð Sjöfn segir foreldra skipta sköp- um fyrir árangur barna sinna í námi, eins og máltækið segir; Lengi býr að fyrstu gerð. Ný löggjöf skapi foreldrum ný tækifæri til aukinnar þátttöku í skólastarfinu, en leggi um leið ríkari skyldur á herðar þeirra að styðja við nám barnanna. Á leikskólastigi felist meginbreyt- ingin í sérstöku foreldraráði við hvern leikskóla sem lögfest sé í fyrsta sinn. Á grunnskólastigi sé meginbreytingin fólgin í nýju skólaráði sem meðal annars komi í stað núverandi foreldra- og kenn- araráða og foreldrafélög sem nú eru lögbundin en áður var starf- semi þeirra valkvæð. Á framhalds- skólastigi skuli skipa foreldraráð við hvern framhaldsskóla og for- eldrar fái áheyrnarfulltrúa í skóla- nefnd. Dugnaður Aðkoma foreldra að námi hefur góð áhrif á börnin. Aukin aðkoma foreldra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.