Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 34

Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 34
34|Morgunblaðið Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Samtökin utan um námiðheita International Bacca-laureate Organization(IBO) og eru með höf- uðstöðvar í Sviss og Bretlandi. Námið sjálft er tvö ár auk árs undirbúnings en við lok þess velja nemendur sér síðan sex greinar til þess að stunda hin tvö árin. „Námsgreinum er skipt í flokka eins og til dæmis tungumál eða raungreinar og nemendur þurfa að velja sér eina grein úr hverjum flokki. Móðurmál er fyrsti flokk- urinn og er þar kennd bæði ís- lenska og enska. Íslenskan er að mörgu leyti sambærileg bók- menntakennslu í framhaldsskólum þar sem til að mynda eru lesnar Njála og Sjálfstætt fólk, auk ljóða og nútímabókmennta. Þá býðst er- lendum nemendum að læra sitt móðurmál í sjálfsnámi og þá reyn- um við að útvega þeim aðstoðar- mann, en innan skólans eru hæg heimatökin ef málið er þýska, franska, spænska eða danska. Næsti flokkur er erlent tungumál sem getur verið enska eða þýska, franska, danska eða spænska og krakkarnir sitja þá tíma með öðr- um MH-nemum. Þriðji flokkur er félagsgreinar þar sem kennd er sálfræði og saga, fjórði raun- greinar þar sem kennd er eðlis-, efna- og líffræði, fimmti stærð- fræði á nokkrum stigum en í sjötta flokknum geta þau síðan valið annað hvort myndlist eða annað fag úr flokki tungumála, raun- eða félagsgreina. Þetta gef- ur aukinn sveigjanleika til að nem- endur geti valið eftir áhugasviði,“ segir Soffía Sveinsdóttir, deildar- stjóri IB-brautarinnar. Staðlað nám Hún segir að hingað til hafi er- lendir nemar sótt mikið í námið svo og íslenskir krakkar sem búið hafa erlendis með foreldrum sín- um, verið í alþjóðlegum skólum erlendis og ekki fengið markvissa íslenskukennslu. Einnig sé námið tilvalið fyrir afburðanámsmenn sem vilji ljúka stúdentsprófi á styttri tíma. Námið sé mjög staðlað og komi öll lokapróf að utan þangað sem þau séu síðan send aftur og yfir- farin, en hluti af einkuninni er einnig verkefni og ritgerðir. Hverju fagi er skipt í meðalstig og hærra stig og þurfa nemendur að velja þrennt af hvoru. Á hærra stigi er farið í meira námsefni og ítarlegar þannig að ekki er sama þyngd á öllu fyrir alla nemendur. Góður undirbúningur Auk greinanna sex þurfa nem- endur að gera rannsóknarritgerð sem er í raun eins og BA eða meistararitgerð í smækkaðri mynd þar sem rétt uppbygging og heimildanotkun þarf að vera til staðar. Þá læra nemendur þekk- ingarfræði sem er eins konar heimspeki þar sem tengdar eru saman mismunandi námsgreinar og miðað er við að þeir sjái hlut- ina frá ólíkum sjónarhornum. Einnig gera nemendur sjálfstæð verkefni í áfanga sem á ensku kallast CAS sem stendur fyrir creativity, action og service. Í honum stunda nemendur líkams- rækt, gera eitthvað skapandi eins og til dæmis að semja ljóð, vera í hljómsveit eða taka þátt í nem- endafélaginu og taka að sér sam- félagsþjónustu eins og vinnu fyrir Rauða krossinn og Blindraheimilið sem dæmi. Mælt með stöðuprófum Soffía segir aðsóknina aukast jafnt og þétt og að í náminu séu nú tæplega 100 nemendur. Soffía segir námið vera krefjandi en það veiti góðan undirbúning fyrir há- skólanám. Umsóknir eru metnar eftir einkunnum sem þurfa að vera yfir meðallagi og þarf enska nemenda að vera mjög góð. Fyrir námið eru í boði stöðupróf í ensku og stærðfræði sem Soffía segir að nemendur séu hvattir til að taka. Góður grunnur til háskólanáms Morgunblaðið/Valdís Thor Soffía Sveinsdóttir deildarstjóri: „IB námið er mjög krefjandi en það veitir góðan undirbúning fyrir háskólanám.“ IB-nám var upphaflega hugsað sem nám fyrir diplómatabörn þannig að þegar þau flyttust á milli landa ættu þau þess kost að vera í sambærilegu námi í nýju landi. Námið er í boði í mörgum löndum en hefur verið hér á landi í Menntaskól- anum við Hamrahlíð síðan árið 1997. Morgunblaðið/Kristinn Stúdentar Svokallað IB-nám hefur verið kennt hér á landi í Mennta- skólanum við Hamrahlíð síðan árið 1997 en námið er tilvalið fyrir afburða námsmenn sem vilja ljúka stúdentsprófi á styttri tíma. Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar þannig að betri námsárangri. Vönduð blanda fiski- og kvöldvorrósarolíu sem eflir og styrkir: • Hugsun • Einbeitingu • Sjón • Hormónajafnvægi Einstakt gegn lesblindu og ofvirkni. Hentar fólki á öllum aldri. Fæst í fljótandi formi og hylkjum í lyfja- og heilsuverslunum. Efalex er einstök samsetning úr hreinni kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum. Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem eykur færni okkar til þess að læra. Það getur verið erfitt að setjast nið- ur eftir ágætis jólafrí og byrja að læra aftur. Sérstaklega getur það verið erfitt ef fríið hefur verið mik- ið lengra en það og jafnvel mörg ár. Hins vegar er nauðsynlegt að halda áætlun í námi svo ekki sé verið að frumlesa efnið fyrir próf. Hér eru nokkrar hugmyndir um góðar námsvenjur: Afslappaðar axlir Komdu í veg fyrir allan sársauka í höndum eða öxlum. Margir nem- endur nota hendurnar meira og minna allan daginn, í tölvum, við að fletta bækur eða jafnvel að senda vinum smáskilaboð. Að sama skapi getur álag aukið líkur á vöðva- bólgu. Það er því mikilvægt að sitja rétt við tölvuna og passa að stilla skjá, stól og borð í rétta hæð. Góður svefn Það er mikilvægt að koma sér upp góðum svefnvenjum því hugur- inn þarf að vera vel hvíldur og tilbú- inn í átök dagsins. Það er erfitt að lesa bækur fræðilegs efnis ef lítið var sofið. Gott er að venja sig á að fara alltaf á svipuðum tíma að sofa og hafa hæfilegan hita í herberginu. Hollari og betri matur Þeir nemendur sem finna oft fyr- ir þreytu ættu að skoða mat- arvenjur sínar. Með því að velja hollan mat má auka orkustigið verulega. Til að mynda getur einn banani á erfiðri stund gert gæfu- muninn. Ekki fresta verkefnum Nemendur eiga það til að finna upp á ótrúlegustu hlutum til að gera einmitt þegar tími er til að læra, til dæmis að fara út með hundinn, þrífa baðherbergið eða hringja í gamlan vin. Oft finnst okkur sem við yrðum sáttari við að læra ef við gerðum eitthvað skemmtilegt fyrst en sjaldnast er það rétt. Lærðu núna, leiktu þér síðar. Bættu minnið Það eru til ótal margar leiðir til að bæta minnið og gera æfingar því tengdar og margar slíkar má finna á veraldarvefnum. svanhvit@mbl.is Lærðu vel og mikið Rétt staða Það er mikilvægt að sitja rétt við lærdóm til að minnka líkur á vöðvabólgu auk þess sem þá er mögulegt að læra lengur án óþæginda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.