Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 35
Áhugi er drifkraftur náms Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is ÍKópavogi er verið að leggjalokahönd á leikskólann Að-alþing en hann verður ummargt ólíkur hefðbundnum leikskólum, að sögn Guðrúnar Öldu Harðardóttir, leikskólastjóra Að- alþings. Kópavogsbær byggir skól- ann en Guðrún Alda ásamt Sigurði Þór Salvarssyni munu reka leikskól- ann. „Við ætlum að fara nýjar leiðir í mörgu og til dæmis ætlum við að hafa öflugra upplýsingatæknistarf en á mörgum öðrum stöðum,“ segir Guð- rún Alda. „Börnin vinna þá á skap- andi hátt í tölvum, ekki í tölvuleikjum heldur munu þau nota tölvur sem verkfæri í starfinu. Í leikskólanum verður ekki mikið af hefðbundnum leikföngum en mikið af hlutum og endurnýtanlegum efnivið til að leika sér með. Við erum að stíla inn á að börnin noti ímyndunaraflið. Við verð- um meðal annars með vísindasmiðju, listasmiðju og byggingasmiðju og það verður mjög mikið af efnivið til að byggja úr og til dæmis tæki og tól til þess að búa til skugga.“ Innri agi verður ráðandi Guðrún Alda segir að skólinn verði í anda Reggio Emilia en það sé þó ekkert eitt ákveðið. „Við komum til með að nota fljótandi námskrá sem er upprunnin frá Reggio-skólanum. Fljótandi námskrá er námskrá sem verður til jafnóðum. Skóli sem notar fljótandi námskrá segir ekki fyr- irfram hvernig haustið verður heldur mótast námskráin eftir áhugasviði viðkomandi barnahóps og for- eldrahóps. Rannsóknir sem og al- menn skynsemi benda til þess að áhugi sé drifkraftur náms og þess vegna byggjum við námskrána á áhuga hópsins. Hóparnir í leikskól- anum verða því ekki fastnegldir og ef það er val hjá börnunum fá þau að velja sem þýðir líka að þau verða að fá að velja að segja nei,“ segir Guð- rún Alda og bætir við að þetta verði leiðtogaleikskóli. „Við viljum leggja meiri áherslu á frumkvöðlastarf og finna nýjar skapandi leiðir. Aginn verður öðruvísi en í mörgum öðrum skólum, við ætlum frekar að efla innri agann þannig að börnin vita að eitthvað sé siðferðislega rangt í stað þess að einhver segi þeim það eða þau fái rautt spjald. Við leggjum minni áherslu á ytri aga en meiri á innri aga. Það tilheyrir líka frum- kvöðlastarfinu að vera með gagnrýna hugsun. Börnin gleypa þá ekki við öllu sem býðst og telst vera mik- ilvægt í nútímasamfélagi, gleypa ekki það nýjasta og flottasta og eru fangar hluta en eru kannski ekki sátt innra með sér.“ Valdefling Guðrún Alda talar um að stjórn- unarformið í leikskólanum verði brotið upp þannig að valdeflingin verði meiri. „Það hugtak kemur til með að lita stjórnunina og starfið með börnunum. Börnin munu fá að ráða miklu um starfið og sömuleiðis foreldrarnir. Foreldrarnir verða því meiri þátttakendur í lífi barna sinna sem og munu börnin sjálf hafa meira að segja um sitt eigið líf og eigið nám og lýðræðið fer þannig alveg inn í innsta kjarna,“ segir Guðrún Alda og tekur fram að leikskólinn verði opn- aður í byrjun mars. „Við höfum feng- ið fullt af starfsumsóknum og þær eru skemmtilega fjölbreyttar, leik- skólakennarar, grunnskólakennarar, hönnuðir, listafólk og ljósmyndarar. Mjög menntaður og spennandi hóp- ur.“ Staðalímyndir brotnar upp Í leikskólanum verður kyn- fræðilegu sjónarhorni haldið á lofti en Guðrún Alda segir að kynin verði þó ekki aðskilin. „Við viljum horfa á einstaklingana og við munum nota mikið af ljósmyndaskráningum og segulbandsupptökum til að skoða starfið og hvernig fullorðna fólkið kemur fram við börnin, hvort við töl- um öðruvísi við stúlkur en drengi. Þannig reynum við að brjóta upp þessar staðalímyndir. Litir geta stýrt starfinu ótrúlega mikið og ef það er til dæmis kominn bleikur litur á eitt- hvað þá stjórnar það hverjir velja það. Þannig notum við litina til að brjóta starfið upp og munum stund- um rugla litunum. Þannig setjum við kvenlegt leikefni með efnivið sem stúlkur velja síður, eins og þrívídd- arbyggingum. Ef þær velja eitthvað síður þá aðlögum við námssvæðið þannig að þær velji það. Þannig finn- um við áhuga þeirra og hlustum eftir því í hvaða leikjum þær eru og hvern- ig við gætum ögrað þeim.“ Morgunblaðið/RAX Guðrún Alda Harðardóttir Meiri valdefling í leikskólanum Aðalþingi. Í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi fá börn og for- eldrar að móta námskrána í samráði við leikskól- ann enda er áhugi drifkraftur náms. Kynfræðilegu sjónarhorni verður líka haldið á lofti þar og reynt verður að brjóta niður staðalímyndir. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Leikskólastarf Markmiðið með Reggio Emilia stefnunni er að ýta undir gagnrýna hugsun barna. Morgunblaðið |35 Í Reggio Emila er megináhersla lögð á sjálfsuppgötvunarnám. Barnið verður að öðlast skilning á því umhverfi sem það býr í og þarf því að fá að kanna það af eigin raun. Frumkvæðið kemur frá barninu sjálfu en hlutverk leiðbeinandans felst aðallega í því að skapa aðstæður til þess að barnið fái tækifæri til að upplifa og kanna. Þess vegna þarf að vekja forvitni og sjálfstæða hugsun þess. Markmiðið með stefnunni er að ýta undir gagnrýna hugsun barna. Talið er að börn hafi miklu flóknari meðfædda hæfileika til þess að lesa umhverfi sitt og afla sér fróðleik en áður var talið. Börn eiga því að fá að gera mikið af rannsóknum og til- raunum til þess að lesa umhverfi sitt og verða þau að fá tækifæri til þess að skynja heiminn út frá sínum eigin forsendum. Það þarf að leyfa þeim að nýta alla þá hæfileika sem börnin búa yfir og örva þá eftir bestu getu. Þetta ýtir undir sjálfstæða og gagnrýna hugsun og hjálpar þeim að taka afstöðu til hluta á sínum eigin forsendum. Reggio Emilia AIESEC eru alþjóðleg, ópólítísk og sjálfstæð samtök sem rekin eru af stúdentum og nýútskrifuðum háskólanemum án hagnaðar. Í boði hjá samtökunum eru 4000 starfsþjálfunartækifæri í 110 lönd- um en aðildarlöndum fer sífellt fjölgandi. Fjögur starfssvið Lengd starfsþjálfunarinnar er frá tveimur mánuðum upp í eitt og hálft ár og skiptast starfssviðin í stjórnun, tæknistarfsþjálfun, kennslu og þróunaraðstoð. Stjórn- un er ætluð þeim sem til dæmis læra viðskiptafræði eða sálfræði, tæknisvið þeim sem læra til dæm- is verkfræði eða tölvunarfræði. Í mörgum störfum á kennslusviði er nauðsynlegt að hafa kenn- aramenntun en þó ekki öllum, í Suður-Ameríku eru til að mynda mörg störf við að kenna ensku. Flest störfin eru launuð fyrir utan þróunarstarfsþjálfun, en þar fær fólk mat og húsnæði gegn vinnu, og miðast launin við lágmarkslaun í hverju landi fyrir sig. Þurfa að standast enskupróf Skilyrði fyrir því að fara í slíka starfsþjálfun eru að hafa lokið minnst tveimur árum í háskóla, nema ef um þróunaraðstoð er að ræða, og að þátttakendur séu ekki eldri en þrítugir. Við umsókn er greitt 40.000 króna gjald en hluti þess er fyrir greiðslu enskuprófs sem þátttakendur verða að stand- ast. Þeir sem nýlega hafa tekið TOEFL próf eða annað sambæri- legt próf í ensku eru undanskildir og lækkar þá gjaldið. „Maður heyrir á fólki í kringum sig að það íhugar nú aðra mögu- leika og hvernig það geti bjargað sér á meðan ástandið er svona slæmt. Við búumst því við aukinni eftirspurn nú á nýju ári en sam- tökunum hefur tekist vel að fást við kreppuna erlendis þannig að tækifærin hafa ekkert minnkað hjá okkur. Flestir fara héðan til Evrópu eða Asíu og hafa Þýska- land, Indland og Kína verið meðal vinsælustu áfangastaðanna. Við stílum sérstaklega inn á núna að fólk geti fengið sumarstörf í gegn- um AIESIC og hafi þannig kost á að gera eitthvað,“ segir Freyja Oddsdóttir hjá samtökunum. mari- a@mbl.is Starfsþjálfun erlendis Fræðandi Það eru 4000 starfsþjálfunartækifæri í boði hjá AIESEC.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.