Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 37
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Það er talað um að frumkvöðlar verði ekki sístmikilvægir í að leiða Ísland út úr kreppunnienda hefur sjaldan verið mikilvægara að ný ogbetri fyrirtæki verði til á Íslandi. Við-
skiptasmiðja Klaks, Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífs-
ins, býður upp á Hraðbraut nýrra fyrirtækja sem er
frumkvöðlastuðningskerfi, að sögn Eyþórs Ívars Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Klak. „Hugmyndin á bak við
þetta nám var sú að við vildum búa til námsefni og þekk-
ingarmiðstöð sem myndi auka veg frumkvöðlakennslu
og ýta undir þekkingu. Þegar talað er um frumkvöðla er
alltaf talað um fjármagn, sem vissulega er nauðsynlegt
en það gleymist oft að tala um þekkingu. Af rannsóknum
um frumkvöðla vitum við að ástæða þess að félög ná ekki
þeim árangri sem ætlað var og jafnvel engum árangri er
að þau hafa ekki þá þekkingu sem til þarf. Sú við-
skiptaþekking er af skornum skammti því viðskipta-
þekkingin sem oftast er talað um er sérsmíðuð fyrir stór-
fyrirtæki og flestar okkar kenningar eru byggðar á
rekstri stórfyrirtækja en ekki rekstri sprotafyrirtækja.“
Besta þekking sem möguleg er
Eyþór talar um að það sem Klak vildi gera væri að
tryggja að frumkvöðlar fengju bestu þekkingu sem
möguleg væri. „Við fórum því og töluðum við áhættu-
fjárfestingarsjóðina sem sáu að kjörið væri að vera sam-
ferða okkur því þeir setja fjármagn í svona fyrirtæki en
hafa ekki bolmagn til að veita þeim þessa þekkingu. Með
fjármagni og þekkingu eru miklu meiri líkur á að fyr-
irtæki nái árangri,“ segir Eyþór og bætir við að á fyrstu
önn námsins hafi reyndir frumkvöðlar sótt námið og
fengið svo mikið út úr því að í raun mætti tala þar um
viðsnúning. „Önnur önn námsins hefst núna í janúar en
sérkenni Viðskiptasmiðjunnar er til dæmis það tengsla-
net sem frumkvöðlar komast í. Hér eru helstu fræði-
menn og frumkvöðlar sem við vitum um og þeir leiðbeina
í þessu námi. Auk þess er hér hægt að vera í beinum
samskiptum við reynda og nýja frumkvöðla. Við tengj-
umst síðan öllu sprotaumhverfinu og erum með aðstöðu
fyrir frumkvöðlafyrirtæki þannig að við erum nokkurn
veginn með fingurinn á púlsinum.“
Hentugt fyrir hópa
Það er ekki nauðsynlegt að skrá sig í allt námið heldur
er líka mögulegt að taka eina önn eða jafnvel einstök
námskeið en allt miðar þetta að því að gera frumkvöðlum
kleift að sækja nauðsynlega þekkingu til þess að gera
viðskiptahugmynd að veruleika og hjálpa sprota-
fyrirtækjum að vaxa og dafna. „Við erum með 25-30 stutt
námskeið sem við köllum örnámskeið en þau miðast við
tíu tíma í kennslu. Námskeiðin eru helst á fimm sviðum;
fjármálum, markaðsmálum, stefnumótun, stjórnun og
nýsköpun. Námskeiðin eru á kvöldin og um helgar því
námið er sniðið þannig að fólk geti verið í einhverju öðru
með en miðast þó fyrst og fremst við að fólk eyði dag-
vinnunni í það að búa til fyrirtæki,“ segir Eyþór og bend-
ir á að hópar geti sótt um námið sem og einstaklingar.
„Það er oft þannig að einstaklingar eru með hugmyndina
en við höfum ýtt á að fá hópa inn vegna þess að það eru
meiri líkur á að það sé hægt að gera slíka hugmynd að
veruleika því það þarf oft mikið til. Þess vegna höfum við
í rauninni boðið þeim einstaklingum sem skrá sig inn að
fá 2 fyrir 1 þannig að þeir geti boðið einhverjum ókeypis
með sér.“
Ráðgjafastjórn með reynslu
Hraðbraut nýrra fyrirtækja er þriggja anna nám og
fyrsta önnin fer í að vinna í viðskiptahugmyndinni og
fara vel í gegnum hana því yfirleitt er eytt alltof litlum
tíma í það, að sögn Eyþórs. „Nemendurnir skrifa þá eða
endurskrifa viðskiptaáætlun. Á annarri önninni er hug-
myndin prófuð á markaði, prótótýpan, frumgerðin, er
útbúin og hún kláruð. Á þriðju önninni gerum við kröfu
um að fyrirtæki sé farið að selja. Þá eru fyrirtækin líka
komin með ráðgjafastjórn sem er skipuð fólki úr at-
vinnulífinu en í hana hef ég fengið forstjóra og aðra
toppa í fyrirtækjum. Þá fá fyrirtækin hugmyndafræði til
lengri tíma og hvernig megi búa fyrirtæki inn í framtíð-
ina. Ég hef rannsakað ráðgjafastjórnir við Viðskiptahá-
skólann í Kaupmannahöfn og þar hef ég séð gríðarlegan
árangur þegar ráðgjafastjórnir eru útbúnar fyrir sprota-
fyrirtæki. Um leið og fyrirtæki eru komin í rekstur þá
eru líka komnar upplýsingar um hversu líklegt það er til
árangurs og þá kemur ráðgjafarstjórnin sterk inn,“ segir
Eyþór og leggur áherslu á það að þetta sé ekki síst gott
tækifæri fyrir fyrirtæki sem hafa þurft að svelta ein-
hverjar góðar hugmyndir. „Núna væri tækifæri að bjóða
nokkrum starfsmönnum svona tækifæri, að fara í nám
með einhverja hugmynd úr fyrirtækinu sem gæti sann-
arlega skapað meiri verðmæti.“
Photos
Nám fyrir frumkvöðla Hraðbraut nýrra fyrirtækja er nám sem Viðskiptasmiðja Klaks býður upp á og segja má að
námið sé nokkurs konar frumkvöðlastuðningskerfi sem getur komið sér vel.
Með þekkingu og
fjármagni geta
fyrirtæki náð árangri
Eyþór Ívar Jónsson Framkvæmdastjóri Klaks, Ný-
sköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins.
Það þarf bæði fjármagn og mikla
þekkingu til að frumkvöðlafyrirtæki
nái að vaxa og dafna en oft hefur
verið skortur á því síðarnefnda. Í
viðskiptasmiðju Klaks er boðið upp á
einstakt nám sem nýtist frum-
kvöðlum vel.
Morgunblaðið |37
smáauglýsingar mbl.is