Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 40
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Hugsunin er sú að ungmennin renni íraun saman við innfædda, geristhluti af því samfélagi sem þau flytj-ast til. Þar búa þau hjá fjölskyldu,
stunda sitt nám, og taka þátt í lífinu eins og þau
hefðu fæðst á staðnum. Mikil áhersla er svo á
að skiptinemarnir læri málið enda er það lykill-
inn að samfélaginu,“ segir Eyrún Eyþórs-
dóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi.
Göfug markmið
AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og skipti-
nemasamtök sem stofnuð voru af bandarískum
sjúkraflutningamönnum í fyrri heimsstyrjöld-
inni. „Markmiðið með AFS var að auka skiln-
ing milli þjóða með nemendaskiptum og þannig
mögulega koma í veg fyrir styrjaldir,“ segir
Eyrún en samtökin hafa starfað á Íslandi í um
hálfa öld. „Fyrst var eingöngu skiptinám í
Bandaríkjunum í boði en starfsemin hefur vax-
ið í áranna rás og nú er AFS með skrifstofur í
50 löndum og hægt að stunda skiptinám í enn
fleiri löndum.“
Ekki bara skiptinám
Þó AFS sé best þekkt fyrir skiptinám skipu-
leggja samtökin einnig ferðir sjálfboðaliða til
að sinna samfélagslegum verkefnum út um all-
an heim: „Sjálfboðaliðar á okkar vegum eru til
dæmis að vinna með fátækum börnum, kenna
meðal annars ensku í skólum eða starfa á mun-
aðarleysingjahælum. Aðrir taka að sér verk-
efni á sviði umhverfisverndar og enn aðrir
vinna að innflytjendamálum, í raun gera þeir
allt milli himins og jarðar,“ segir Eyrún en
sjálfboðaliðastarfið er opið fólki frá 18 ára
aldri.
AFS býður einnig upp á það sem kallað er
sumardvöl; styttri dvalir í um 1-2 mánuði þar
sem áherslan er þá aðallega á tungumálanám.
„En fjölbreytnin er samt til staðar og til dæmis
bjóðum við nú upp á dvöl við fornleifauppgröft í
Túnis undir leiðsögn fagfólks og vonandi að við
sendum þangað íslensk ungmenni næsta sum-
ar,“ segir Eyrún.
Aðalburðurinn í starfinu er þó skiptinámið
og hafa samtökin sent yfir 3.000 Íslendinga í
skiptinám þann tíma sem þau hafa starfað og á
síðasta ári einu fóru 146 íslensk ungmenni í
AFS skiptinám og íslenskar fjölskyldur tóku á
móti 46 nemendum frá öðrum löndum.
Frá hálfu og upp í heilt ár
Skiptinámið er opið ungmennum á aldurs-
bilinu frá 15 til 19 ára. „Við bjóðum upp á
hálfs árs vist, en langflestir velja heils-
ársprógrammið. Þannig fæst miklu meira úr
dvölinni enda tekur það yfirleitt 3-4 mánuði
bara að komast almennilega inn í tungumálið
og menninguna,“ segir Eyrún.
Eins og fyrr sagði búa skiptinemar AFS
endurgjaldslaust hjá fjölskyldum. „Þetta er
fólk sem hefur bæði húsrúm og hjartarými til
að taka við aukameðlimi í fjölskylduna. Nem-
inn verður hluti af fjölskyldunni, ef fjölskyldan
fer út að borða fer hann með og ef heim-
ilisfólkið fer í frí slæst skiptineminn með í för.
Fjölskyldan veitir honum það sama og öðrum
börnum á heimilinu, en til að vera ekki fjár-
hagsleg byrði þarf nemandinn sjálfur að skaffa
sér vasapeninga,“ segir Eyrún en skólagjöld,
tryggingar og ferðakostnaður eru innifalin í
þáttökugjöldum.
Til mikils ætlast
Ríkar kröfur eru gerðar til umsækjanda og
ekki getur hver sem er orðið AFS skiptinemi.
„Umfram allt þurfa umsækjendur að vera víð-
sýnir og vera andlega tilbúnir til að takast á við
þau umskipti sem felast í því að flytja á fram-
andi slóðir. Það er alls ekkert auðvelt og ekki
fyrir hvern sem er að takast á við,“ segir Ey-
rún. „Umsækjendur þurfa líka að hafa staðið
sig í skóla og fengið góð ummæli frá kennara.
Sum námslönd samþykkja til dæmis ekki um-
sækjendur sem hafa fallið í einhverju fagi ein-
hvern tíma á námsleiðinni.“
Umsóknarferlið fer þannig fram að sótt er
um rafrænt á heimasíðu AFS og umsækjandi
tekinn í viðtal í kjölfarið. Gangi allt að óskum
tekur þá við framhaldsumsókn sem felur meðal
annars í sér heilsufarsskoðun, að umsækjandi
skrifi ritgerð um sjálfan sig og foreldrar hans
sömuleiðis. Þeir sem svo eru samþykktir til
skiptinámsdvalar geta síðan valið sér 1-5 lönd
þar sem þeir vilja læra en það veldur loks á
gistilandinu að samþykkja hvaða umsækj-
endum er tekið við. Áður en farið er út í heim
þurfa skiptinemarnir að sitja námskeið sem
ætlað er að auðvelda þeim umskiptin og aðlög-
unina. Eftir heimkomuna eru svo haldin fram-
haldsnámskeið til að byggja ofan á þá reynslu
og þekkingu sem skapaðist.
Efni í leiðtoga
„Við ræðum það oft okkar á milli hjá AFS að
það færi kannski betur á því að kalla þetta leið-
togaþjálfun, því ávinningurinn er slíkur fyrir
flesta skiptinema. Að fara út í heim 16-17 ára
gamall og ómótaður og takast á við það sem
fylgir vistaskiptunum krefst mikils hugrekkis
og seiglu. Skiptinemarnir eflast mikið við þá
reynslu sem þeir hljóta og snúa til baka með
aukið sjálfstraust og mikilvæga þekkingu í far-
teskinu,“ segir Eyrún. „Rannsóknir AFS hafa
sýnt að þessir nemendur mennta sig iðulega
vel og verða framarlega í því sem þeir taka sér
fyrir hendur seinna á lífsleiðinni.“
Leggja heiminn að fótum sér
Morgunblaðið/Valdís Thor
Eyrún Eyþórsdóttir, framkvæmdastjóri AFS: „Umfram allt þurfa umsækjendur að vera víðsýnir og vera andlega tilbúnir til að takast á við þau
umskipti sem felast í því að flytja á framandi slóðir.“
AFS á Íslandi hefur starfað í rösklega hálfa öld og sent yfir 3.000 skiptinema út um allan heim
www.afs.is
Það er ómögulegt að sitja svangur
við lærdóminn og gott að hafa
eitthvað við höndina til að narta í.
Eins er nauðsynlegt að fá sér sopa
af vatni reglulega til að maður
verði ekki þreyttur og fái höf-
uðverk. Ýmiss konar næringarefni
eru þekkt fyrir að vera afar góð
fyrir heilastarfsemina, c-vítamín
er til dæmis sagt geta aukið
snerpu hugans en brómber eru til
að mynda stútfull af því vítamíni.
Handfylli af graskersfræjum á dag
eru einnig sögð uppfylla daglega
sinkþörf líkamans en það er nauð-
synlegt til að skerpa á minni og
hugsanastarfsemi heilans.
Næring
fyrir hugann
40|Morgunblaðið
ÁSKRIFTARSÍMI 569 1100
Viltu læra táknmál?
Almenn táknmálsnámskeið hefjast 12. janúar nk.
Bjóðum einnig upp á sérsniðin námskeið fyrir hópa
og skóla. Skráning og nánari upplýsingar
í síma 562-7702 eða anney@shh.is
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
www.shh.is