Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 43
Morgunblaðið |43
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Ég hugsa að það sé ólýs-anlegt að spila á gítarsem maður hefur smíð-að sjálfur,“ segir Gunn-
ar Örn Sigurðsson gítarsmiður
sem leiðbeinir á gítarsmíð-
anámskeiði hjá Tækniskólanum.
„Námskeiðið er haldið í þriðja
sinn núna en eftir eitt námskeið er
hver nemandi búinn að smíða sinn
gítar. Ég er með tvær týpur sem
hægt er að smíða, Telecaster og
Stratocaster. Námskeiðið fer
þannig fram að það er ekki mikið
um glósur heldur er kennslan
fremur í formi spjalls um gítara
og hvernig þetta er gert,“ segir
Gunnar Örn og bætir því við að
það fari svo eftir viðkomandi nem-
anda hvort hann geti smíðað ann-
an gítar eftir námskeiðið. „Það fer
eftir því hvort nemandinn tekur
vel eftir og hvað hann punktar
mikið hjá sér.“
Getur verið flókið
Gunnar talar um að það séu
helst karlmenn sem sækja nám-
skeiðið en þó hafi ein kona setið
fyrsta námskeiðið. „Hún hafði
enga reynslu af smíðum en smíð-
aði frábæran gítar. Það er nefni-
lega ekki nauðsynlegt að hafa
reynslu af smíðum til að koma á
námskeiðið. Reyndar getur smíðin
verið flókin en oft er það þannig
að það sem maður kann ekki er
flókið. Þetta getur því vafist fyrir
sumum en það er misjafnt hvernig
svona leikur í höndunum á fólki. Í
raun er þetta svipað því að spila á
gítar, það virkar ekkert flókið
þegar menn kunna það en þegar
menn eru að læra á gítar getur
það verið flókið,“ segir Gunnar og
bætir við að námskeiðið sé í rúm-
lega tvo mánuði eða um 100
klukkustundir. „Það tekur þann
tíma að smíða einn gítar frá
grunni því við smíðum allt. Nem-
endur fá fjórar spýtur og úr því
verður gítar, tvær spýtur í búkinn
og tvær í háls. Allt tréefni er inni-
falið í námskeiðinu en nemendur
þurfa að kaupa „hardware“ og
„pickup“ sem eru stilliskrúfur, raf-
kerfið, hljóðboxið og fleira.“
Fínn hljómur
Námskeiðið er tvisvar sinnum í
viku og kennt er frá klukkan fimm
til tíu að kvöldi. „Þetta eru mjög
frambærilegir gítarar og meira en
það. Menn hafa því verið mjög
ánægðir með sína gripi en oft eru
nemendurnir spilarar í einhverri
hljómsveit eða að byrja að spila.
Hljómurinn er fínn í gítarnum en
það veltur líka á því hvað er keypt
í gítarinn. Fyrst og fremst þarf
viðurinn að hljóma, hann þarf að
hljóma til að geta framlengt yfir í
magnara úr „pickup“. En þetta
hefur komið vel út og vissulega
endurspeglar gítarinn viðkomandi
smið því menn eru misjafnlega
vandvirkir. Sama hvernig getan er
þá eru menn alltaf jafn ánægðir
þegar verkinu er lokið og gítarinn
tilbúinn. Það er mjög skemmtilegt
að upplifa það að hafa smíðað gít-
ar sem er hægt að nota og allt
virkar vel. Flestir fá mun meira út
úr því en að fara út og kaupa sér
gítar.“
Morgunblaðið/Valdís Thor
Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður: „Það er ekki nauðsynlegt að hafa
reynslu af smíðum til að koma á námskeiðið.“
Viðurinn þarf
að hljóma
Nemendur á
gítarsmíðanámskeiði
Gunnars Arnar Sig-
urðssonar eru himinlif-
andi þegar þeir fá gít-
arinn sinn í hendurnar
enda er ólýsanlegt að
spila á gítar sem maður
hefur smíðað sjálfur.
Að smíða gítar Allir þáttakendur á
námskeiðinu smíða sinn gítar.
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda -
framhalds –
og talæfingaflokkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
Íslenska
fyrir útlendinga I - IV
10 vikna námskeið
60 kennslustundir
Icelandic
for foreigners I - IV
10 weeks courses
60 class hours
Kurs jezyka
islandzkiego dla
obcokrajowcow I - IV
Kurs10-tygodniowy
60 godzin lekcyjnych
Verklegar greinar
Bókband
Frístundamálun
Glerbrennsla
Silfursmíði
Skrautritun
Trésmíði
Útskurður
Innritun í síma 564 1507
á vef skólans http:// kvoldskoli.kopavogur.is
eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla við Furugrund
Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans
http:// kvoldskoli.kopavogur.is
NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2009
Saumanámskeið
Að endursauma föt
og hanna að nýju
Crazy quilt
Fatasaumur/
Barnafatasaumur
Skrautsaumur
Baldering
Skattering
Þjóðbúningur - saumaður
Tölvunámskeið
Fingrasetning
Tölvugrunnur
Tölvugrunnur II
Word
Ritvinnsla
EXCEL
Förðunarnámskeið
Förðunarnámskeið
Að farða sig og aðra
Matreiðslunámskeið
Bökur
Fríðubökur
Gómsætir bauna – pasta –
og grænmetisréttir
Gómsætir hollir
suðrænir réttir frá
Miðjarðarhafslöndunum
Hráfæði
Ítölsk matargerð
Matarmiklar súpur
og heimabakað brauð
Matargerð fyrir karlmenn I
Grunnnámskeið
Matargerð fyrir karlmenn II
Framhaldsnámskeið
Garðyrkjunámskeið
Garðurinn allt árið
Trjáklippingar
Trjárækt í
sumarbústaðalandinu
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR ÁRIÐ 2011
óskar eftir...
bhs.is
bifrost.is
fa.is
fb.is
fg.is
fiv.is
fnv.is
frae.is
fsh.is
fss.is
fsu.is
fva.is
hi.is
hr.is
idan.is
idnskolinn.is
klak.is
misa.is
mk.is
simey.is
tskoli.is
unak.is
va.is
vma.is
Samtök iðnaðarins - www.si.is
vel menntuðu fólki til starfa. Í boði eru
spennandi og vel launuð störf í áliðnaði,
byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni, matvæla-
iðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði og
upplýsingatækni.
Iðn-, verk- eða tæknimenntun er skilyrði.
Reynsla af framleiðslustjórnun, gæðastjórnun
og markaðssetningu er kostur.
Íslenskir verkmenntaskólar, háskólar og
fræðslustofnanir bjóða metnaðarfullt nám
sem veitir aðgang að þessum störfum.
Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA