Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 45
Morgunblaðið |45
Allir hafa gagn og gaman að því að
læra eitthvað nýtt, jafnt ungir sem
aldnir. Ætlir þú að sækja námskeið
sem krefst heimalærdóms skaltu
skapa þér þægilegan stað heima
fyrir til að læra. Taktu til á gamla,
góða skrifborðinu og komdu skipu-
lagi á hlutina með möppum og
hirslum ef þörf er á. Mörgum finnst
líka notalegt að læra við kertaljós
og þá er mikilvægt að opna reglu-
lega gluggann til að ferskt loft sé í
herberginu. Farðu síðan reglulega
með óhreint leirtau inn í eldhús til
að það safnist ekki upp.
Röð og regla
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Það virðast margir Íslend-ingar stefna til Noregs íkreppunni og freista þessað fá vinnu þar. Í tilefni
af því ætlar málaskólinn Lingva að
bjóða upp á ókeypis námskeið í
norsku og einungis þarf að greiða
innritunargjald í skólann sem er
5.000 krónur. Paolo Turchi, skóla-
stjóri málaskólans, segist með
þessu vera að endurgjalda Íslend-
ingum greiðann. „Ég hef verið inn-
flytjandi hér í 20 ár og mér hefur
alltaf verið tekið opnum örmum. Ís-
lendingar hafa verið yndislegir við
mig í öll þessi ár og mér líður illa
þegar Íslendingar eru atvinnulausir
og þurfa að flytja af landi brott.
Mér hefur alltaf liðið vel á Íslandi.
Ég vil því nota skólann til að sýna
þakklæti og býð því alla Íslendinga
sem vilja læra norskt talmál vel-
komna.“
Mikil eftirspurn
Þetta verður í fyrsta sinn sem
skólinn býður upp á námskeið í
norsku en það kemur í stað
dönskunámskeiða sem skólinn hef-
ur boðið upp á. Paolo segir að eft-
irspurnin eftir norskunámskeiði
hafi verið mikil. „Fólk er að hugsa
um að flytja út en öfugt við það
sem hefur gerst síðustu ár er Dan-
mörk ekki efst á lista. Íslendingar
eru með mikla verkkunnáttu og
þeir eru eftirsóttir í Noregi. Við
höfum því ákveðið að kenna norskt
talmál og æfingar í talmáli en mið-
að er við að nemendur hafi grunn-
þekkingu í dönsku, sænsku eða
norsku úr grunnskóla eða annars
staðar frá. Námskeiðið verður
tvisvar sinnum í viku í fjórar vikur
og leiðbeinandinn fer yfir lestur
dagblaða og kennir fólki það sem
skiptir máli ef fólk er að flytja til
Noregs, hvað þarf að vita um sam-
félagið og hvaða orðaforða er nauð-
synlegt að hafa.“
Kenna talmál
Lingva var stofnaður árið 2004
og er því rúmlega fjögurra ára
gamall. Paolo segir að í skólanum
séu alltaf kennd að minnsta kosti
tíu tungumál í einu. „Við erum til
að mynda með íslensku fyrir út-
lendinga sem hefur verið mjög vin-
sælt síðustu árin. Við kennum að-
allega íslenskt talmál og kennum
fólki að tala áður en það lærir mál-
fræðina. Við erum líka með fram-
andi mál, eins og japönsku, arab-
ísku, grísku og kínversku. Við
kenndum arabísku í fyrsta sinn fyr-
ir áramót og því var vel tekið, við
erum því að kenna hana í annað
sinn núna. Svo erum við að bjóða
upp á grísku í fyrsta sinn. Við
kennum námskeiðin þannig að
nemendur byrja að tjá sig á tungu-
málinu strax í fyrsta tíma. Við
kennum því stafrófið ekki strax
heldur lærir fólk fyrst að bjarga
sér á tungumálinu og svo restina.
Það þarf engan grunn til þess, bara
að mæta í tíma, vera opinn og
þora. Hjá okkur eru heldur engin
próf.“
Enskan vinsæl
Námskeið Lingvu eru kennd
seinnipartinn eða á kvöldin og flest
námskeiðin vara í um fjórar vikur
en kennt er tvisvar sinnum í viku.
Paolo segir námið vera mjög mark-
visst. „Við gerum ráð fyrir að fólk
þurfi ekki að læra heima heldur er
mjög mikið gert í tímum og þar fer
enginn tími til spillis,“ segir Paolo
og bætir við að spænskan og ítalsk-
an séu vinsælustu tungumálin í
skólanum. „Enska er líka vinsæl,
það er alveg ótrúlegt en það eru
ansi margir Íslendingar sem þurfa
enskukennslu. Þeir lesa kannski og
kunna ensku en hafa enga þjálfun
til að tala ensku. Ég er með þrjá
hópa í ensku þar sem er verið að
beita talmáli.“
Mikil eftirspurn eftir
norskunámskeiði
Morgunblaðið/Valdís Thor
Paolo Turchi Í málaskólanum Lingva er boðið upp á námskeið í alls kyns
framandi málum, til dæmis arabísku, grísku og kínversku.
Það hefur verið mikil
eftirspurn eftir norsku-
námskeiðum og mála-
skólinn Lingva ætlar
því að bjóða upp á
ókeypis námskeið þar
sem einungis þarf að
greiða innritunargjald.
Í skólanum er einbeit-
ingin á talmál.
smáauglýsingar
mbl.is
MÍMIR
símenntun
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
.2
52
Uppl‡singar og innritun í síma 580-1800 www.mimir.is
VORÖNN
2009
Smásagnagerð, þorskastríð,
golfreglur, ungbarnatákn,
að hanna og sauma og
ákveðniþjálfun
fiorskastrí›in flrjú
Gu›ni Th. Jóhannesson
fiorskastrí› Íslendinga vi› Breta voru framhald á sjálfstæ›isbaráttu
fljó›arinnar. Hér er rakin saga fleirra.
Smásagnager›
Ágúst Borgflór Sverrisson
Markmi›i› me› námskei›inu er a› nemendur geti skrifa›
frambærilegar smásögur.
Golfreglur fyrir byrjendur
Mikilvægt er a› kunna reglurnar flegar vi› stígun fyrstu skrefin
á vellinum.
Ungbarnatákn - Örvun málflroska
Elsa Gu›björg Björnsdóttir og Margrét Pétursdóttir
Á námskei›inu ver›ur fari› í hvernig samskiptaformi›
ungbarnatákn er og hva› greinir fla› frá táknmáli.
A› hanna og sauma
Ásdís Ósk Jóelsdóttir
Markmi›i› er a› endurn‡ta gamalt og skapa n‡jar, einfaldar
persónulegar flíkur.
Ákve›nifljálfun - Fyrir konur
Jóna Margrét Ólafsdóttir
Ákve›nifljálfun fjallar um fla› hvernig fólk getur byggt upp
sjálfstraust og veri› öruggara í samskiptum.
fietta eru dæmi um námskei›
sem eru í bo›i hjá okkur. Einnig kennum vi›
18 tungumál á mörgum stigum.