Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 46
46|Morgunblaðið
Kennir fólki
sjálfsþekkingu
Morgunblaðið/Ómar
Egill Örn Egilsson: „Þörfin fyrir sjálfsvörn getur orðið að raunveruleika
hvar sem er og við erum að kenna fólki að berjast til að verja líf sitt.“
Að geta varið sjálfan sig við allar aðstæður og sam-
tímis þekkt veikleika sína og styrk í daglegu lífi er
hverjum manni nauðsynlegt að mati Egils Arnar
Egilssonar. Kristján Guðlaugsson hitti hann að
máli og ræddi við hann um sjálfsvarnarlist.
frá fyrirfram ákveðinni tækni eins
og tíðkist í öllum klassísku bardaga-
stílunum sem kenndir eru.
„Það sem scientific fighting kenn-
ir þér eru æfingar sem kallast „cue
drill“ á ensku, en þær byggjast á
ákveðinni tækni, þó að þú vitir ekki
hvað er í vændum. En þú lærir að
lesa ákveðnar bendingar, sem segja
þér hvað andstæðingurinn ætlar
sér. Þetta eru æfingar sem eru
gerðar út frá bardaga eða átökum,
sem eru nær því að líkjast alvöru
bardaga. Scientific fighting kennir
enga dansa, hvort sem það er kallað
kata eða form, því æðsta formið er
hið formlausa form. Takmarkið er
að vera ekki fastur í neinu ákveðnu
formi, einfaldlega vegna þess að
bardaginn getur tekið á sig öll
form,“ segir Egill Örn.
Hann segir sjálfsvarnarkerfið
augljóslega mjög líkamlegt en legg-
ur þó áherslu á að sjálfsþekking og
sjálfsagi séu lykilatriði. Þrátt fyrir
raunverulegar bardagaæfingar er
lítið um meiðsli, en þátttakendur
hafa plasthlífar og nægar varnir til
að forðast þau.
Byrjaði að æfa sem barn
„Það getur enginn lært að synda
án þess að vökna og það sama gildir
um þessa tegund sjálfsvarnar. Það
verður að gera æfingarnar eins
raunhæfar og mögulegt er til þess
að þær virki,“ segir Egill Örn.
„Það er einstaklingsbundið hvar
styrkur fólks liggur og hver og einn
verður fyrst og fremst að læra að
þekkja sjálfan sig. Það má orða það
þannig að verið sé að berjast við
egóið. Við erum ekki að æfa eða
þjálfa til að byggja upp egóið heldur
þvert á móti.“
Egill Örn kveðst alltaf hafa haft
mikinn áhuga á sjálfsvarnaríþrótt-
um og byrjaði að æfa kornungur.
„Ætli ég hafi ekki verið sjö eða
átta ára þegar ég byrjaði að æfa
skipulega. Reyndar byrjaði ég í kar-
ate en þetta vatt svo upp á sig og ég
hef fundið minn stíl í scientific fight-
ing, ef hægt er að kalla það sér-
stakan stíl. Því í raun og veru er sci-
entific alls ekki sérstakur stíll
heldur formlaus og alhliða bardaga-
tækni. Þetta er mitt verkfæri til að
skoða heiminn og ég lít á þetta eins
og hvert annað listform,“ segir Egill
Örn.
kristjanlg@gmail.com
Egill Örn rekur námskeið íscientific fighting, eðavísindalegri sjálfsvarn-artækni ef hugtakinu er
snarað lauslega yfir á íslensku.
„Hér er um að ræða sjálfsvarn-
artækni sem sækir margt til ann-
arra sjálfsvarnarkerfa, en er þó al-
gerlega sjálfstæð. Scientific
Fighting er rökhugsun bardagans,
óháð nokkrum stíl eða kerfi. Gengið
er algjörlega út frá virkni í sjálfs-
vörn eða bardaga án nokkurra tak-
markana. Allt er æft í eins raun-
verulegum aðstæðum og hægt er,“
segir Egill Örn.
Engin belti eða gráður
Ólíkt því sem gerist í bardaga-
íþróttum eins og karate, kung-fu,
taekwon-do eða öðrum slíkum, er
ekki keppt í scientific fighting og
það eru hvorki veittar gráður, verð-
laun, belti né haldnar í heiðri sér-
stakar viðhafnir.
„Þetta á ekkert skylt við íþróttir
eða keppni og er alls ekki um neinar
reglur. Þetta fjallar einfaldlega um
sannleikann. Þörfin fyrir sjálfsvörn
getur orðið að raunveruleika hvar
sem er og við erum að kenna fólki
að berjast til þess að verja líf sitt.
Þess vegna æfum við meðal annars í
skóm því fæstir eru berfættir ef eða
þegar ráðist er gegn þeim,“ segir
Egill Örn.
Bardaginn getur endað standandi
eða á jörðinni. Það eru engin sér-
stök form sem fylgja scientific figh-
ting.
„Við tölum um 4 fjarlægðir í bar-
daga, sem eru spörk, sem er mesta
fjarlægðin í líkamlegri snertingu, í
öðru lagi slag eða kýlingar, þá ná-
vígi þar sem hné, olnbogar og svo
framvegis er notað, og loks glímu-
tök, hvort heldur er standandi eða
liggjandi. En það sem er mikilvæg-
ast er fordómalaust hugarfar.
Sjálfsþekkingin nýtist líka í daglegu
lífi og æfingarnar miða raunar að
því að þeir sem æfa verði betri
menn fyrir vikið. Þetta er lífsstíll en
ekki íþrótt sem þú æfir tvisvar,
þrisvar í viku,“ segir Egill Örn.
Æfingar í bardaga
Egill Örn segir að þessi fjögur
stig hafi verið samin til að einfalda
kennsluna, en þar sem sérhver átök
eða bardagi sé algjörlega ófyr-
irsjáanlegur geti maður ekki æft út
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Símenntun Háskólans á Akureyri er með miklaog fjölbreytta námskeiðsdagskrá á vorönnskólans og því sannarlega í sóknarhug. ElínMargrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri
segir það hafa aukist verulega að fólk viðhaldi og auki
við sína menntun. „Ég tel það vera mjög eðlilegt því
það eru miklar framfarir á öllum sviðum, hvort sem er
tækni, vísindi eða annað, þannig að þetta er mik-
ilvægur og þarfur vettvangur fyrir fólk sem vill við-
halda og uppfæra sína þekkingu. Við erum með alls
kyns fræðandi námskeið, í raun allt sem við erum beð-
in um eða náum í. Ef við finnum að markaðurinn hefur
áhuga og við finnum kennara erum við tilbúin að gera
hvað sem er.“
Styttri og lengri námskeið
Hjá Símenntun Háskólans á Akureyri má sækja
lengra nám sem og styttri námskeið. „Lengsta námið
okkar er þriggja missera rekstrar- og viðskiptanám en
við höfum verið með það í nokkur ár. Námið er nánast
eins og fyrsta árið í viðskiptafræðinni og gefur mögu-
leika á að setjast inn á annað ár á viðskipta- og raun-
vísindadeild skólans. Svo höfum við verið með mann-
auðsstjórnun sem er ein önn en við höfum boðið upp á
það undanfarin ár við miklar vinsældir. Önnur nám-
skeið sem við erum með eru meira og minna styttri
námskeið, allt frá þriggja tíma námskeiðum upp í
svona þrjá daga,“ segir Elín og tekur fram að símennt-
unin sé nokkurs konar útibú frá Háskólanum á Ak-
ureyri. „Við erum í sjálfstæðum rekstri út frá háskól-
anum þannig að það nám sem fram fer hér þarf að
standa undir sér en við leigjum aðstöðu í háskólanum.
Margir af okkar leiðbeinendum eru líka kennarar í Há-
skólanum á Akureyri.“
Námskeið á meistarastigi
Elín talar um að vinsælustu námskeiðin hjá símennt-
uninni séu námskeið sem varða fjármál og rekstur og
uppeldis- og kennslufræði. „Við höfum stílað inn á há-
skólamenntaða og þá helst kennara, heilbrigðisstarfs-
menn og viðskiptamenntað fólk. Þeir
sem sækja helst okkar námskeið eru
háskólamenntaðir sem vilja bæta við
sig námi og uppfæra sína þekkingu.
Við erum mjög reglulega með ný
námskeið, sérstaklega á uppeldis- og
kennslufræðisviðinu þar sem oft eru
einhverjar nýjar kenningar og aðferð-
ir sem er vinsælt að fræðast um. Svo
erum við líka með nokkur námskeið á
meistarastigi sem við kennum í sam-
starfi við háskólann. Á vormisseri
bjóðum við upp á tvö námskeið á meistarastigi. Það er
annars vegar námskeið í klínískri leiðsögn fyrir há-
skólamenntaðar fagstéttir sem sinna leiðsögn nemenda
á heilbrigðissviði og síðan ætlum við að vera með nám-
skeið um krabbamein, orsakir, greiningu og meðferð
sem er líka fyrir háskólamenntaðar fagstéttir í heil-
brigðisþjónustu.“
Mikið um fjarnám
Mörg af námskeiðum Símenntunarinnar eru kennd í
fjarnámi og þar á meðal fyrrgreint námskeið um
krabbamein. „Skólinn er í samstarfi við símennt-
unarstöðvar vítt og breitt um landið þannig að við
bjóðum upp á hluta af okkar námskeiðum á þessum
stöðum. Við viljum gjarnan bjóða sem flest námskeið í
fjarnámi en auðvitað þurfum við ákveðinn fjölda nem-
enda þar sem við þurfum að greiða fyrir móttöku nám-
skeiða. Við höfum því miðað við að hafa þrjá nemendur
á hverjum stað til að standa undir kostnaði. Námskeið
í mannauðsstjórnun sem við höfum verið með und-
anfarin ár höfum við sent á 5-10 staði í fjarnámi en þá
þarf fólk ekkert að koma í skólann sjálfan. Raunar er
einstaka nám skipulagt þannig að fólk kemur einu
sinni eða tvisvar í skólann. Þá hefur það aðallega verið
til þess að fólk kynnist aðeins innbyrðis og kynnist
skólanum en það er þá eingöngu í lengri námskeiðum.
Eins höfum við verið í samstarfi við Félagsmálaskóla
alþýðu og kennt út um allt land en þá höfum við skipu-
lagt námið þannig að fólk hefur komið hingað í upp-
hafi, til að sjá okkur og sjá aðstöðuna hérna.“
Aukið við háskólamenntun
Undanfarin ár hefur það færst verulega í vöxt að fólk viðhaldi og auki við
sína menntun og hjá Símenntun Háskólans á Akureyri má sækja bæði
styttri og lengri námskeið. Hluti námskeiðanna er kenndur í fjarnámi.
Elín Margrét
Hallgrímsdóttir
NÁMSKEIÐ FYRIRLESTRAR VINNUSTOFUR ÞJÁLFUN
Þekkingarmiðlun hefur starfað með flestum fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi
undanfarin 7 ár.
Árið 2008 kenndi 21 leiðbeinandi alls um 23.000 nemendum.
Fjöldi námskeiða sem boðið er uppá er 63, m.a. á sviði stjórnunar, samskipta,
stefnumótunar, starfsmannasamtala, teymisvinnu, erfiðra starfsmannamála,
umhverfismála, liðsheildar, tímastjórnunar, þjónustu, vinnustaðarmenningar
o.fl. o.fl.
Fjöldi fyrirlestra sem boðið er upp á er 80.
Fjöldi vinnustaða sem keyptu námskeið og fyrirlestra árið 2008 var 231.
Flest námskeið eru sérsniðin að óskum vinnustaða.
Þekkingarmiðlun er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki sem hefur fjögur megingildi að
leiðarljósi sem eru Metnaður, Fagmennska, Þjónusta og Ábyrgð.
Leiðbeinendur gefa reglulega námskeið og fyrirlestra til góðgerðarmála.
Á árinu 2008 nutu SOS-barnaþorpin fjárhagslegs styrks.
Kíktu á www.thekkingarmidlun.is