Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 47

Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 47
Morgunblaðið |47 Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Innan skólans starfa það semvið köllum sex gáttir íslensksatvinnulífs og þátttakenda aðþeirri þekkingu sem Háskól- inn í Reykjavík býr að. Síðastliðið ár var algjört metár hjá okkur og ljóst að Íslendingar eru að gera sér grein fyrir því að það er mikils virði að taka þátt í námskeiðum og ekki bara rekstrarkostnaður. Meðal gáttanna er stjórnmennt sem þjón- ar íslenskum fyrirtækjum með námskeiðum fyrir stjórnendur, sér- fræðinga og almenna starfsmenn. Þar höfum við unnið náið með stórum fyrirtækjum eins og til dæmis íslensku bönkunum, Lands- virkjun og Rio Tinto og það er gam- an að sjá að fyrirtækin nota svokall- aða ROI-mælikvarða sem mæla raunverulegt virði þess sem nám- skeiðin skila inn í fyrirtækin. Önnur gátt er fagmennt þar sem við sjáum um námskeið í nýjum störfum eins og til dæmis fyrir viðskiptaráðu- neytið um löggildingu bæði verð- bréfa- og fasteignasala. Hér er hægt að sækja diplómanám sem veitir háskólaeiningar og við- urkenningu en einnig getur fólk sótt til okkar staka áfanga,“ segir Guðrún Högnadóttir, fram- kvæmdastjóri Opna háskólans. Tvíþættur gróði Guðrún segir marga fara í nám samhliða starfi og mörg fyrirtæki greiði fyrir slíkt auk þess sem þau séu niðurgreidd af stéttarfélögum. Gróðinn sé tvíþættur, annars vegar þekkingin sem viðkomandi fær en einnig ECTS einingar á há- skólanámi sem má nýta við háskóla. Þá býður skólinn nú sérstök nám- skeið fyrir þá sem misst hafa vinn- una og er greitt fyrir það af stétt- arfélögunum. Á þeim er fylgt því sorgarferli að missa vinnuna, allt frá því að viðkomandi missir starfið og þarfnast úrræða um fjármál og útrás fyrir reiði yfir í það að horfa á nýsköpun, lífsgildi og markmið. „Við búumst við metaðsókn á allar okkar námsbrautir á nýju ári enda eru fyrirtækin ekkert endilega að slá af í þessu og sjá að þau eru að skapa virði með því að mennta sitt fólk,“ segir Guðrún. Ókeypis áskrift að fyrirlestrum Hjá Opna háskólanum er einnig hægt að gerast áskrifandi að svo- kölluðu hávarpi eða podkast. Þar gefst fólki færi á að fá nýjan fyr- irlestur reglulega í formi hlaðvarps í gegnum net skólans. Aðgangurinn er án endurgjalds en fólk getur gerst áskrifendur í gegnum itunes eða hlustað beint í gegnum tölvuna. Um er að ræða fyrirlestra á heims- mælikvarða frá innlendum og er- lendum sérfræðingum en efnið er afar fjölbreytilegt líkt og hvað er gervigreind og hvað eiga fjöl- skyldur að gera í kreppunni? Fjöl- margir hafa þegar gerst áskrif- endur og er þetta hluti af framlagi skólans til þess ástands sem nú rík- ir. Nýtt kennsluefni í lífsleikni Meðal þess sem opni háskólinn sér nú um er að innleiða og þróa nýtt kennsluefni í lífsleikni fyrir ní- unda og tíunda bekk. Efnið byggist á 25 ára leiðtoga- og stjórn- unarfræðum sem nefnast 7 venjur til árangurs, eða The Seven Habits of Highly Effective People eftir Stephen Covey, og hefur verið kennt við Háskóla Reykjavíkur um nokkurt skeið. Búið er að yfirfæra námsefnið á áskoranir unglinga og gefa út kennsluefni sem lýtur að því að byggja upp unglinga sem ein- staklinga til að takast á við þær áskoranir sem bíða þeirra þannig að þeir séu hæfari til að velja réttar leiðir í lífinu. Öruggari með breytt viðhorf „Námsefnið felst mikið í þátttöku unglinganna þar sem þeir vinna með sjálfa sig og setja sér framtíð- arsýn. Ég hef verið að prufukenna efnið í fjórum níundu bekkjum í Ás- láksskóla í Hafnarfirði, Grunnskóla Seltjarnarness og Garðaskóla í Garðabæ í haust. Það hefur verið virkilega gaman að sjá árangurinn hjá krökkunum á þessum fjórum mánuðum. Þau eru öruggari, já- kvæðari og með breytt viðhorf. Hugmyndin er sú að prufukenna námsefnið til að aðlaga það íslensk- um aðstæðum og spara kennurum þannig þá vinnu sem fer í að inn- leiða slíkt í kennslustundir. Í vor verður síðan haldið námskeið fyrir kennara í námsefninu þar sem þeir hljóta réttindi til að kenna það. Þá verður líka gerð könnun varðandi hagi og líðan grunnskólanema og þessi 100 krakka hópur notaður til samanburðar svo það verður áhuga- vert að sjá hvað kemur út úr því. Með þessu nýja efni er annars veg- ar ætlað að byggja unglingana upp innan frá þannig að þau hafi skarp- ari sýn á hvað þau vilji gera, hvert þau vilji fara og hvaða ábyrgð þau beri á sínu lífi. Hins vegar hvernig best sé að vinna með öðrum til að ná sem mestum árangri. Þar leggj- um við ríka áherslu á samstarf við foreldra enda er besta forvörnin að vera í góðu sambandi við þá. Ég er mjög sátt við viðbrögð unglinganna, þau eru mjög spennt yfir verkefn- unum og hafa gjarnan samband við mig utan kennslustunda og gefa mér góð ráð um hvað megi betur fara, eins hafa þau stofnað sér- stakan hóp á Facebook tengdan þessu,“ segir Elín María Björns- dóttir, verkefnastjóri hjá Opna há- skólanum. Heil í gegnum brothætt ár Meðal verkefna sem unglingarnir gera er að byggja upp framtíðarsýn í gegnum alls kyns æfingar og myndbönd þar sem tekin eru fyrir gildi, langanir og myndræn sýn. Efnið verður síðan sett inn í sér- staka bók hvers og eins við lok skólaársins. „Ég held að Íslendingar megi vera stoltir af ungu þjóðinni í dag, þetta eru upp til hópa klárir krakk- ar og kraftmiklir og ég held að með smá hvatningu gætu þau orðið virkilega árangursrík. Það er líka mikilvægt að þau komist heil í gegnum þessi brothættu ár sem unglingsárin eru því þá verða aðrar áskoranir síðar meir auðveldari,“ segir Elín María. Menntun fólks skapar virði Klár æska Elín María segir íslensku þjóðina mega vera stolta af ungling- unum sínum enda upp til hópa klárir og kraftmiklir krakkar. Morgunblaðið/Valdís Thor Dýrmætt Guðrún Högnadóttir segir Íslendinga gera sér grein fyrir því hve mikils virði sé taka þátt í námskeiðum. Opni háskólinn í Há- skólanum í Reykjavík hefur verið starf- ræktur síðan í ágúst síðastliðnum. Hann starfar með allt frá æðstu stjórnendum og stjórnarmönnum til ís- lenskra skólabarna í samstarfi við íslenska og erlenda aðila. Framvegis - miðstöð um símenntun er sjálfstætt starfandi fræðslufyrirtæki sem býður upp á námskeið og lengri námsleiðir fyrir sjúkraliða og aðrar heilbrigðisstéttir, starfsfólk í félagsþjónustu sem og þjónustu- og skrif- stofufólk. Framvegis býður einnig upp á íslenskukennslu fyrir útlendinga og klæðskerasaumar námskeið fyrir vinnustaði, stéttarfélög og hópa. Nýjung í starfsemi Framvegis eru stutt kvöldnámskeið um fjármál heimil- anna, lögfræði hversdagsins, gerð starfsferilsskrár og framkomu í atvinnu- viðtölum. Brúum bilið - Framvegis www.framvegis.is framvegis@framvegis.is Sími 581 4914 • Þriðja og fjórða árið á stúdentsbrautum. • Skipstjórnanám fyrir skemmtibáta og báta undir 12 m. • Allir áfangar í vefkennsluumhverfi. • Námið kostar einungis 4.250 kr. á önn fyrir utan námsgögn. • Skráning á vef skólans. • Umsóknarfrestur til 9. janúar og til 14. janúar fyrir skipstjórnarnámið. www.fas.is • fas@fas.is • Sími: 470 8070 Skólameistari Fjarnám á vorönn 2009  Heimilisiðnaðarfélag Íslands Nethylur 2e, 110 Reykjavík s. 551 5500 hfi@heimilisidnadur.is www.heimilisidnadur.is Heimilisiðnaðarskólinn býður úrval námskeiða Kennum fólki að framleiða fallega og nytsama hluti með rætur í þjóðlegum menningararfi Næsta námskeið hefst mánudaginn 19. janúar n.k. Kennsludagar: Mánudagar og fimmtudagar frá 20:00 til 21:30 auk eftirfylgdartíma, alls 14 klst. Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir, sérfræðingar í klínískri sálfræði. Kynningarverð: 42 000. Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Skráning og fyrirspurnir í símum 5340110 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s . Vellíðan án lyfja með verkfærum sálfræðinnar Fjögurra vikna námskeið Kvíðameðferðar- stöðvarinnar til að takast á við vanlíðan, álag og spennu. Kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að skoða og breyta hugsunum og viðbrögðum sem viðhalda kvíða og depurð. Öflugar slökunar- og hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.