Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
UMFERÐIN í nýliðnum janúar
reyndist meiri á 15 talning-
arstöðum Vegagerðarinnar á
hringveginum en í janúar 2008.
Nemur aukningin 4,3%.
Þetta er sama þróun og varð í
Hvalfjarðargöngunum í janúar,
þegar umferð jókst um 0,9%. Frá
miðju síðasta ári dró verulega úr
umferð á þjóðvegunum og var það
rakið til stórhækkunar á eldsneyti.
Engar skýringar liggja fyrir
hvers vegna umferð eykst nú á nýj-
an leik.
Á Suðurlandi jókst umferðin um
10,2%, um 2,8% í nágrenni höf-
uðborgarinnar og 1,2% á Vest-
urlandi.
Á Austurlandi varð gríðarlegur
samdráttur, eða tæp 26%. Á Norð-
urlandi var umferðin 4% minni en
sama mánuð í fyrra. Umferðin í jan-
úar var álíka og sama mánuð 2007.
sisi@mbl.is
Umferð eykst
á þjóðvegun-
um að nýju
Morgunblaðið/Golli
FÉLAG íslenskra
stórkaupmanna
(FÍS) telur veru-
lega ágalla á
nýju laga-
frumvarpi um
Seðlabanka Ís-
lands. „Það er
ákveðið áhyggju-
efni að peninga-
stefnunefndin
skuli ekki vera
faglega samsett sérfræðinga-
nefnd,“ segir Páll Rúnar Mikael
Kristjánsson, hdl. og lögfræðingur
FÍS. Bendir hann á að vönduð og
vel ígrunduð peningamálastefna sé
hornsteinn þeirrar endurreisnar
sem framundan sé. Samkvæmt
lagafrumvarpinu er ráðgert að
nefndin sé skipuð seðlabankastjóra,
tveimur starfsmönnum Seðlabank-
ans og tveimur sérfræðingum sem
ráðnir eru af seðlabankastjóra. FÍS
telur hins vegar mikilvægt að tekið
sé skýrt fram hvaða hæfnisskilyrði
nefndarmenn eigi að uppfylla.
Gagnrýna
lagafrumvarp
Páll Rúnar Mikael
Kristjánsson
ALLIR þingmenn Sjálfstæðisflokks,
Framsóknar og Frjálslynda flokks-
ins auk Jóns Magnússonar eða 36
þingmenn, lögðu í gær fram þings-
ályktunartillögu um veiðar á
hrefnu og langreyði og að veiðileyfi
yrðu gefin út til næstu fimm ára.
Hvalveiðimál komu til umræðu á
Alþingi í gær þegar Steingrímur J.
Sigfússon, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, svaraði fyr-
irspurn Marðar Árnasonar um
gjaldeyristekjur af sölu hvalafurða.
Í fyrra var verðmæti útfluttra
hvalaafurða rúmar 95 milljónir kr.
Mörður sagðist hafa útreikninga al-
þjóðlegu dýraverndarsamtakanna
IFAW sem sýndu að kostnaður við
flutning hvalkjötsins með flugi yfir
norðurpólinn jafngilti um 112 millj-
ónum kr. Jón Gunnarsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði við mbl.is í gær
að þessi kostnaður væri stórlega
ýktur. 95 milljónirnar væru fob-
verð, þar sem flutningskostnaður
leggst ofan á og greiðist af kaup-
anda.
36 þingmenn
vilja hvalveiðar
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÁÆTLA má að tekjur vegna sölu á
farmiðum í hvalaskoðun á Húsavík
árið 2007 hafi numið um 129 millj-
ónum kr. sé miðað við 41 þúsund
gesti í hvalaskoðun. Útgjöld ferða-
manna sem fóru í hvalaskoðun voru
að jafnaði rúmar 13 þúsund krónur á
dag, en marktækur munur var á út-
gjöldum ferðamanna eftir því hvort
þeir fóru í hvalaskoðun eða ekki. Af-
þreying er stærsti útgjaldaliður
ferðmanna á Húsavík. Áætluð heild-
arvelta vegna hvalaskoðunarferða-
manna er því tæpar 650 milljónir ár-
ið 2008.
Þetta er meðal þess sem lesa má í
skýrslu sem Rannveig Guðmunds-
dóttir og Andri Valur Ívarsson unnu
sumarið 2008 hjá Þekkingarsetri
Þingeyinga og styrkt var af Nýsköp-
unarsjóði námsmanna. Alls fengust
520 svör úr könnun sem lögð var fyr-
ir ferðamenn. Markmið rannsókn-
arinnar var að leggja mat á mik-
ilvægi ferðaþjónustu fyrir Húsavík,
með áherslu á hvalaskoðun og reikna
út óbein margfeldisáhrif. Í svörum
ferðamanna kemur fram að 78%
allra ferðamanna á Húsavík fóru í
hvalaskoðun, en það samsvarar 40%
allra þeirra ferðamanna sem fóru í
hvalaskoðun við Ísland árið 2007.
Eins og sjá má í meðfylgjandi
gröfum sögðu 85% ferðamanna að
hvalaskoðun hefði haft mjög mikil
eða mikil áhrif á komu þeirra til bæj-
arins. Jafnframt voru gestir sem
fóru í hvalaskoðun beðnir að til-
greina hvenær sú ákvörðun hefði
verið tekin að fara í hvalaskoðun frá
Húsavík.
31 starf á ársgrundvelli
Alls sögðust 63% gesta hafa ákveð-
ið að fara í hvalaskoðun frá Húsavík
áður en komið var til landsins, en 26%
ákváðu það á ferð sinni um Ísland. Í
flestum tilvikum eru það ferðamenn
frá Mið-Evrópu, Suður-Evrópu og
Bretlandseyjum sem skipulagt hafa
hvalaskoðun frá Húsavík áður en
ferðast er til landsins, en fólk frá
þessum löndum er jafnframt fjöl-
mennasti hópur hvalaskoðunargesta
á Húsavík.
Fram kemur í skýrslunni að alls
voru um 47 stöðugildi hjá hvalaskoð-
unarfyrirtækjum og Hvalasafninu yf-
ir ferðamannatímann 2007 eða ígildi
tæplega 20 starfa á ársgrundvelli. Því
til viðbótar voru 11 manns í fullu
starfi allt árið um kring og heildar-
starfsígildi á ársgrundvelli því 31
starf.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar má draga þá ályktun að
hvalaskoðun sé afþreying sem skap-
að hafi Húsavík sterka ímynd sem
áhugaverður staður að heimsækja.
„Greinilegt er að ferðaþjónusta og
tilkoma hvalaskoðunar hafa talsverð
efnahagsleg áhrif á svæðið. Með
auknum fjölda ferðamanna hefur
skapast eftirspurn eftir aukinni
þjónustu og fyrirtækjum í ferða-
þjónustu fjölgað nokkuð,“ segir m.a.
í skýrslunni. Bent er á að þrátt fyrir
talsverðan fjölda ferðamanna í bæn-
um sé dvalartíminn í styttra lagi.
Þannig dvelji dagsferðamenn að
meðaltali í hámark 6 klst. í bænum,
en næturgestir um einn og hálfan
dag. Skýrsluhöfundar benda á að
mikil tækifæri liggi í því að fjölga
ferðamönnum á Húsavík og jafn-
framt lengja dvalartíma þeirra í
bænum.
78% allra ferðamanna
á Húsavík í hvalaskoðun
Áætlaðar heildartekjur vegna hvalaskoðunarferðamanna á
Húsavík 650 milljónir árið 2008 samkvæmt nýrri rannsókn
! "!
FERÐAMÁLASTOFA lét um
mitt ár 2007 ParX við-
skiptaráðgjöf IBM gera fyrir
sig könnun meðal almennings
í fimm Evrópulöndum á áhrif-
um hvalveiða í atvinnuskyni á
ímynd Íslands og íslenska
ferðaþjónustu. Könnunin náði
til ríflega fimm þúsund ein-
staklinga á aldrinum 16-75
ára, búsettra í Þýskalandi,
Svíþjóð, Bretlandi, Frakk-
landi og austurströnd Banda-
ríkjanna.
Tæp 59% svarenda sögðu
hvalveiðar Íslendinga í at-
vinnuskyni hafa mjög eða
frekar neikvæð áhrif á við-
horf þeirra til Íslands. Rösk
44% sögðu hvalveiðar Íslend-
inga í atvinnuskyni hvorki
mundu auka né minnka líkur
á að þau heimsæktu Ísland.
silja@mbl.is
!"!#"$ % "&!''()*+'
$( ,$
,"$
!"!#"$ % "&!''()*+' -&&(
"# !$" ."''"#"$ / "012#"!%)(
!"!#*!2&"$ $+ .+,,#$
/ !%)'",(
$3*(
4$5 4!"!#" % "&!''()*+'
/ %*($ / "# 4
)-*1" 6)"'
!"!#"$ % "&!''()*+'
$( )1/5.-$"$
7%*($ / "# 5$#")& & 6)"')
'-)&( /$
#
-&8($913, 2)"
/"
:12#$ ," $;&& / "# &"*" /*!3#('
(
4!"!#"$ % "&!''()*+'$
Áhrif hval-
veiða á ímynd