Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 46
46 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Þegar blaðamaður gengur inn í lista-mannakommúnu á Smiðjustígnumtekur andi sköpunarkraftsins á mótihonum. Andinn angar ekki af bjór og
sígarettum eins og ímynd rokks og róls heldur
iðjusemi og hugmyndaríki. Í húsinu starfa rúm-
lega þrjátíu listamenn sem leggja stund á tón-
list, myndlist og fatahönnun.
Blaðamaður fær að snuðra um húsið, sem er
um 300 fm á tveimur hæðum, í fylgd Kristjáns
Freys Halldórssonar, trommara hljómsveit-
arinnar Reykjavík!, sem titlast umsjónarmaður
þess.
„Það var undir lok árs 2007 sem við í hljóm-
sveitinni Reykjavík! vorum að leita okkur að
húsnæði. Ég hafði samband við fjárfestinga-
félagið Festar, sem á nokkra reiti í miðbænum,
og þeir redduðu okkur litlum kofa sem er víð-
frægur, við Laugaveg 17, sem hýsti áður plötu-
búðina Grammið. Þar æfðum við ásamt Skak-
kamanage, FM Belfast og Borko. Þegar
ákveðið var að rífa Grammið leituðum við aftur
á náðir Festa og fengum þá þetta hús sem áður
hýsti m.a. plötuútgáfur og lager Japis,“ segir
Kristján spurður út í aðdraganda þess að þau
fengu aðstöðu þarna. „Húsið er stórt svo ég leit-
aði á náðir vina og kunningja til að fylla það en
ég vissi að marga vantaði húsnæði undir sköp-
un sína. Við erum búin að vera hér í ár núna og
það hefur nánast sami kjarninn verið í húsinu
þann tíma,“ segir Kristján.
Engar svæsnar sögur
Tónlistin tekur neðri hæð hússins, en þar æfa
ásamt Reykjavík! hljómsveitirnar FM Belfast,
Borko og Retro Stefson auk fleiri einyrkja í
tónlist og plötuútgáfunnar Kimi Records sem
hefur þar sína aðstöðu sunnan heiða. Á efri
hæðinni tekur annað við, þar hafa sjö listamenn
og fatahönnuðir vinnuaðstöðu og má sjá þar
verk upp um alla veggi og vinnuborð þakin efni.
Á slíkum vinnustað þarf gott skipulag til að
forðast árekstra og segir Kristján litla drama-
tík hafa átt sér stað á milli kommúnumeðlima.
„Við skiptumst í raun í tvo hópa, hér er fólk að
vinna á skrifstofutíma og svo æfa hjómsveit-
irnar á milli 17 og 24 en það er bannað að búa til
hávaða eftir miðnætti.
Til að fólk geti stundað sína sköpun verður að
vera skipulag og virðing borin fyrir tíma ann-
arra,“ segir Kristján en hefur fátt að segja þeg-
ar blaðamaður reynir að draga upp úr honum
einhverjar svæsnar sögur. „Fólk lítur á þetta
sem vinnustað og virðir það, ég hef því miður
engar partísögur. Við höfum fengið að hafa
þessa aðstöðu í friði en auðvitað koma stundum
vinir okkar við ef þeir vita af okkur á æfingu.“
Á húsfundum er unnið úr ágreiningi komm-
únubúa, ef einhver er, og þrifnaðardagar eru
svo haldnir reglulega.
Undirbúa samkrull
Þeir sem leigja aðsöðu í Smiðjunni, eins og
húsið er stundum kallað, mega eiga von á því að
þurfa að yfirgefa húsið með skömmum fyr-
irvara ef eigendur þess ákveða að rífa það.
Kristján segir mikla eftirspurn vera hjá lista-
mönnum eftir slíku húsnæði í miðbænum og að
síminn hjá honum stoppi ekki. Fólk sé stöðugt
að reyna að bætast í hóp Smiðjubúa.
Fyrir áramót héldu listamennirnir opið hús
Hljómsveitaræfing Þónokkrar hljómsveitir æfa í húsinu og fleiri vilja ólmar bætast í hópinn.
Skipulagið Allt er í röð og reglu og
þrifnaðardagar eru haldnir reglulega.
Smiðjan Listakonan Inga María vinnur að list sinni á
efri hæðinni ásamt sjö öðrum listamönnum.
Morgunblaðið/Heiddi
Trommarinn Kristján Freyr Halldórsson er vanari að vera fyrir aftan trommusettið þegar hann slær takt Reykjavíkur!
Uppi Myndskreytirinn Myrra vinnur á efri hæðinni innan um fatahönnuði og aðra furðufugla.
Á Smiðjustígnum dvelja um þrjátíu listamenn undir sama þaki Tónlistarmenn, myndlistarfólk og
fatahönnuðir vinna saman í sátt og samlyndi Mikil eftirspurn hjá listamönnum sem vilja inn
Engan hávaða eftir miðnætti!
» Það var troðfullt hér nokkr-ar helgar fyrir áramót. Við
buðum upp á kakó og pip-
arkökur, vorum með bóka-
upplestra og tónleika og hönn-
uðir og tónlistarmenn sýndu
og seldu sitt.
fyrir gesti og gangandi sem þeir kölluðu Hasar
Basar. „Það var troðfullt hér nokkrar helgar
fyrir áramót. Við buðum upp á kakó og pip-
arkökur, vorum með bókaupplestra og tónleika
og hönnuðir og tónlistarmenn sýndu og seldu
sitt.
Við erum nú að undirbúa meira samkrull
þeirra sem eru með aðstöðu hér, pælingin er að
fá ólíka menn hér innanhúss til að vinna eitt-
hvað saman. Við fengum smástyrk úr Tónlist-
arsjóði nýlega og ætlum að koma frá okkur ein-
hverri afurð sem félagsskapur. Hér þarf ekki
að leita langt yfir skammt. Við notum krafta
hvert annars mikið, nú er t.d. ein myndlist-
arkonan á efri hæðinni að búa til myndband
fyrir Reykjavík!, við notuðum söngvara Retro
Stefson í bakraddir á nýjustu plötu okkar og ef
mann langar í fiðlu í eitt lagið sitt er nóg að
banka á æfingaherbergið hjá klassísku tónlist-
armönnunum,“ segir Kristján og býður blaða-
manni upp á kaffi, það er ekki einu sinni bjór í
ísskápnum.
Morgunblaðið/Golli