Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 minningarnar sem ég á um þig? Ég hafði mikla þörf fyrir að vera með þér og eiga þig að. Þú talaðir alltaf svo fallega um öll börnin þín og kall- aðir okkur auðæfin þín. Það var al- veg sama hver sagði það eða af hverju peningar voru í umræðunni alltaf sagðir þú að menn væru ekki ríkir nema eiga góða að. Þú varst og verður alltaf fyrirmyndin mín. Tím- inn framundan verður erfiður. Það er skrítið að hugsa til þess að skreppa upp á Sólvallagötu og þú ert ekki þar. Ég er svo þakklát fyrir það að ég hafi fengið að kveðja þig á spítalan- um eftir að þú varst búin að kveðja okkur. Þú varst svo friðsæll og laus við verki. Ég vona að bænin sem við systurnar fórum með og loforðin sem við gáfum þér munu alltaf lifa með okkur. Við munum passa hver upp á aðra og fjölskylduna okkar og meta hana eins og þú gerðir við auð- æfin þín. Þú kenndir okkur svo margt og ég ætla að kenna börnun- um mínum slíkt hið sama. Ef það var eitthvað sem þú gast gert fyrir auð- æfin þín þá gerðir þú það stoltur og glaður. Meðan tárin streyma niður kemur sú hugsun að ég ætla að reyna að beina athyglinni að mikilvægustu stund lífsins sem er líðandi stund. Gera mitt besta í að gera betur í dag, vera jákvæð og hugsa um það hve lánsöm ég er að hafa átt þig að og hve góðir vinir við vorum. Þú ert og verð- ur alltaf fyrirmyndin mín. Ég elska þig og sakna þín og kveð með trega en þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Knús og kremja, þín jarðýta Hólmfríður. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bæn- unum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hef- ur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verð- ur að skilja. Svo auðmjúk og hljóð við lútum að frels- arans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir) Guð geymi þig langafi okkar. Sóley og Þröstur. Elsku afi Gulli. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Við söknum þín elsku langafi. Elvar Ingi, Steinunn Rúna og Hreiðar Máni. Nú þegar ég sest niður til að skrifa minningargrein um einn besta vin minn og félaga, Gunnlaug Karlsson, veit ég varla hvar á að byrja. Við vor- um búnir að starfa saman í yfir 30 ár í Frímúrarareglunni hér í Keflavík. Vinátta okkar hefur alltaf verið sú sama fram á hans hinsta dag. Gulli, eins og hann vildi láta kalla sig, var sæmdur heiðursmerki Frímúrara- reglunnar fyrir sitt frábæra starf innan hennar. Eitt af áhugamálum Gulla var söngur Karlakórs Keflavíkur og fóru þau hjónin í mörg söngferðalög með okkur kórfélögum, bæði innanlands og eins til útlanda. Hann hafði sjálfur verið búinn að nefna ýmsar óskir um útför sína og ein af þeim var sú að Karlakór Keflavíkur mundi syngja. Ég hafði heyrt í sumar að hann væri eitthvað veikur og fór til hans. Þá sagði hann mér að hann hefði greinst með krabbamein í maga og það væri komið á það alvarlegt stig að of seint væri að skera sig upp við því, eitt- hvað sá hann mér bregða og mér fannst hann heldur fara að telja í mig kjark, en ekki öfugt. „Þetta er búið Jóhann minn, nú verður maður bara að láta tímann vinna í þessu þangað til þessu lýkur.“ Gulli var mjög farsæll skipstjóri og útgerðarmaður í áraraðir. Eftir að hann hætti sjómennsku reistu þau hjónin sér fallegan sumarbústað við Þingvallavatn og dvöldu þar mjög oft á sumrin. Þar gat hann einnig komist aðeins í samband við fisk úr vatninu. Gulli sagði oft að hann væri ríkur maður og ríkidæmi sitt væri fólgið í konunni, börnunum og barnabörnum og öllum hans afkomendum enda var unun að sjá hann á jólatrésskemmt- unum með allan hópinn, þá naut hann sín. Gulli var mikið jólabarn, hann sá um að skreyta Frímúrara- húsið fyrir jólin og voru þær skreyt- ingar til mikillar fyrirmyndar. Eins var heimili þeirra Gulla og Mundu ævinlega fagurlega skreytt um jólahátíðirnar. Ég kom til þeirra hjóna fyrir nokkrum dögum, líklega hefur mér orðið litið til lofts í stof- unni því Gulli sagði: „Jóhann minn, jólin eru ekki búin hjá mér ennþá, en það fer að styttast.“ Ég hefði viljað hafa þessa minn- ingargrein fullkomnari og lengri, en þær verða nú að vera takmarkaðar að lengd. Nú kveð ég þennan elsku- lega vin minn og félaga með miklum söknuði. Megi guð gefa Mundu, börnum þeirra og öllum afkomend- um styrk og blessun sína. Jóhann Líndal. Harðjaxl, svipsterkur, glæsimenni með hlýtt hjarta, fjölfróður um sögu sjávarútvegsins, sjómaður frá blautu barnsbeini. Gunnlaugur Karlsson, skipstjóri í Keflavík, nú Reykja- nesbæ, var einn af okkar harð- skeyttu sjósóknurum sem lögðu grunninn að velferðarkerfi Íslands í dag. Gulli á Voninni var hann svo oft kallaður, enda hlutu bátarnir hans Vonarnafnið og báru með sóma. Gunnlaugur varð skipstjóri 1946 og stóð ölduna í áratugi, aflakló og sæk- inn, enda fer það oftast saman. Hann var síðast skipstjóri á Voninni sem hann keypti frá Hollandi, 200 tonna skipi, en sonur hans Gunnlaugur tók við skipstjórn á henni þegar sá gamli hætti. Gunnlaugur vann um árabil með okkur áhugamönnum í Bátafélagi Gríms Karlssonar og lagði þar alltaf gott til málanna, enda hafsjór af fróð- leik um allt sem að sjómennsku og útgerð sneri. Bátasafn Gríms í Duus- húsum hýsir nú um 100 skipslíkön Gríms, en safnið er einstakt í heim- inum bæði vegna fjölbreytni báta, þverskurðar af íslenskri sjávarút- vegssögu sl. 100 ár og enginn líkana- smiður í heiminum hefur smíðað eins mörg módel og Grímur, eða á þriðja hundrað. Bátasafn Gríms er eins konar Snorra-Edda sjávarútvegssögu Íslendinga frá 1900. Þessi verðmæti kunni Gunn- laugur að meta og lagði því lið að koma þeim fyrir almenningsaugu. Gunnlaugur var fastur fyrir ef því var að skipta, harðsækinn en heilla- góður. Hann tók veðrum vel og þeg- ar hann blindaðist á öðru auga fyrir mörgum árum þá horfði hann þeim mun fastar með því sjáandi, en kvart- aði aldrei. Gunnlaugur var stakur reglumaður alla ævi og sjálfstæðis- maður fram í fingurgóma. Hans er sárt saknað af okkur félögum í Báta- félagi Gríms, en við höldum stefnunni í anda hans, setjum kóssinn á miðið og keyrum fast. Eiginkonu hans, Guðmundu Sumarliðadóttur, og börnum þeirra, Jósebínu, Gunnlaugi, Hafdísi, Karli og Sævari, og fjöl- skyldunni allri eru sendar innilegar samúðarkveðjur. Það fer ekkert á milli mála að eftir verður tekið á háum himins boga þegar harðjaxlinn, hið svipsterka glæsimenni, kemur í hlað á Voninni. Árni Johnsen. Hið fyrsta, sem flaug í hug mér þegar hringt var í mig og tjáð lát Gunnlaugs Karlssonar úr Keflavík, var að nú væri genginn mikill höfð- ingi, maður, sem slíka nafnbót bar með óumdeildri rentu. Hann var glæsilegur á velli, óvenjulegur skapfestumaður og um leið góðgjarn og hjálpfús og einstak- ur vinur vina sinna. Maður framfara og framþróunar, sem jafnframt stóð föstum fótum í gömlum og grónum gildum mannvits og kristilegrar sið- fræði, maður, sem var ávinningur að kynnast og upplifun að vera samvist- um við. Gunnlaugur fæddist í Keflavík 17. febrúar 1923, en kynni okkar hófust 1970. Þau fóru rólega af stað, en uxu fljótt og efldust þaðan af og til hans síðustu daga og eins og ég hygg að margir fleiri vina hans hafi mátt reyna hélt hann gengi vina sinn mjög fram og vildi veg þeirra sem mestan, en lét oft næsta lítið af eigin gerðum og var þó oftast mikill ef ekki oft mestur gerandi þeirra atburða og at- vika, sem urðu eða fóru fram í hans næsta nágrenni. Það var oft gaman og fróðlegt að sjá hvað þessi einarði maður gat fylgt málum vel eftir á næsta hógværan og átakalausan hátt. Gunnlaugur var mikill Keflvíking- ur og lifði alla tíð sem slíkur hvað sem nafnabreytingum svæða leið. Hann byrjaði barnungur (fyrst níu ára) að stunda sjó með föður sínum, en rak eigin útgerð og stjórnaði báti sínum alla sína manndómstíð, en öll var þessi útgerðarsaga og skipstjórn saga skipulegrar forsjár og farsællar stjórnunar yfirvegaðs og þar með happasæls og kappsams fyrirhyggju- og forystumanns. Það veit ég að eitt sitt mesta happ taldi Gunnlaugur er þau gengu í hjónaband hinn 30. desember 1944 hann og Guðmunda Sumarliðadóttir, sem var Ísfirðingur og lifir nú mann sinn, en alla sína búskapartíð bjuggu þau í Keflavík. Þeim varð fimm barna auðið, sem öll lifa föður sinn og eru í anda foreldra sinna mikið úrvalsfólk. Samhent fjölskylda og stolt Gunn- laugs til hinsta dags. Þau Guðmunda og Gunnlaugur voru samhent og samstiga, t.d. studdi Guðmunda starf bónda síns fyrir stúku frímúrara í Keflavík með ráð- um og dáð og er henni hér og nú þökkuð ómæld vinsemd og hjálp frá fyrsta degi þeirrar stúku. Ferill Gunnlaugs innan Frímúr- arareglunnar á Íslandi var glæsileg- ur enda var honum veitt heiðurs- merki Reglunnar 1999. Við leiðarlok nú flyt ég í nafni stjórnar Reglunnar br. Gunnlaugi Karlssyni þakkir Regl- unnar fyrir öll hans mikilvægu störf í hennar þágu liðin rétt tæp 40 ár og óska honum alls velfarnaðar á nýjum brautum. Gunnlaugur var þungavigtarmað- ur um alla framför og eindrægni í stúku sinni og meðal bræðra frá upp- hafi og stjórnaði henni síðan mest- allan síðasta áratug liðinnar aldar og gat að lokum samglaðst stúkubræðr- um sínum yfir unnum sigrum og bjartri framtíð. Við leiðarlok er að þakka, að hafa mátt vera vinur Gunnlaugs og njóta samvista við hann og þau hjón bæði og gildir það fyrir okkur bæði Jó- hönnu konu mína og mig, en Guð- mundu og öðrum ástvinum Gunn- laugs sendum við einlægar samúðarkveðjur. Honum óskum við allrar farsældar í samræmi við trú okkar allra. Einar B. Birnir. Meira: mbl.is/minningar Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar ✝ Hjartans þakkir til hinna fjölmörgu sem sýndu okkur vináttu, virðingu og samúð við andlát ástkærrar dóttur minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR ALBERTU HAMMER frá Brekkum, Lækjarbraut 2, Rauðalæk. Herdís Albertsdóttir, Kristjana Sigurðardóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Herdís R. Þorgeirsdóttir, Davíð B. Sigurðsson, Sigríður S. Jónasdóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Sigurður Jónasson, Ásdís G. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU JÓNÍNU GUNNÞÓRSDÓTTUR, áður til heimilis í Grænumörk 5, Selfossi. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Ljósheima Selfossi fyrir góða umönnun. Vilborg Magnúsdóttir, Charlotta Halldórsdóttir, Valur Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR, Múlasíðu 24, Akureyri. Þökkum af alhug starfsfólki heimahlynningar á Akureyri og starfsfólki FSA fyrir frábæra umönnun, alúð og umhyggju. Júlíus Björgvinsson, Anna Óðinsdóttir, Hafsteinn Hinriksson, Rúnar Júlíusson, Olga Sigurðardóttir, Aníta Júlíusdóttir, Hjalti Gestsson, Gréta Júlíusdóttir, Tómas Karl Karlsson, Viðar Júlíusson, Margrét Ösp Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskuleg móðir okkar, GUÐRÚN JÓNA GUNNARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Engjaseli 9, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 11-E við Hringbraut mánudagskvöldið 9. febrúar. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á menntunarsjóð Hafsteins og Katrínar, banki 166 -hb. 15 - nr. 630063, kt. 040587-3069. Hafsteinn Daníel Þorsteinsson, Katrín Björg Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.