Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Mátturinn við að vera
listamaður er að geta
töfrað smávegis44
»
GUÐMUNDUR Oddur
Magnússon, prófessor í graf-
ískri hönnun við Listaháskóla
Íslands fjallar í kvöld um
táknmál mótmæla á vegg-
spjöldum, ljósmyndum og
merkjum á fyrirlestri í Lista-
safni Íslands. Hann fer yfir
helstu þætti í klassísku mynd-
máli mótmæla og ber þá sam-
an við það sem er að gerast
fyrir framan nefið á okkur
þessa dagana í miðbæ Reykjavíkur. Fyrirlestur
Guðmundar er hluti af fyrirlestrarröð sem
Hönnunarmiðstöð Íslands og Listasafn Reykja-
víkur standa saman að og verða reglulega á dag-
skrá einu sinni í mánuði.
Hönnun
Goddur talar um
táknmál mótmæla
Guðmundur Oddur
Magnússon
Á MORGUN kl. 17 opnar ljóð-
skáldið Kristín Svava Tóm-
asdóttir sýningu á listaverkum
sem hún valdi úr Artóteki
Borgarbókasafns í Grófarhúsi.
Verkin eru eftir ólíka myndlist-
armenn og unnin á mismun-
andi hátt, en má þó greina
sameiginlegan þráð í þeim þar
sem maðurinn og viðvera hans
kemur við sögu. Við opnunina
stjórnar Kristín Svava ljóða-
gjörningi sem felur í sér flutning á nýjasta verki
Orðkestru íslenska lýðveldisins. Allir eru hjart-
anlega velkomnir á opnunina. Kristín Svava gaf út
ljóðabókina Blótgælur hjá Bjarti haustið 2007 og
var hún valin besta ljóðabókin af bóksölum það ár.
Myndlist og ljóð
Orðkestra íslenska
lýðveldisins
Kristín á degi
íslenskrar tungu.
MEÐ heklunál í Hnitbjörgum
heitir verk Rósu Sigrúnar
Jónsdóttur myndlistarkonu
sem sýnt verður í Listasafni
Einars Jónssonar á Safnanótt
annað kvöld. Þar teflir hún fín-
um þráðverkum sínum á móti
efnismiklum gifsverkum Ein-
ars Jónssonar myndhöggvara.
Safnið verður opnað kl 19 og
klukkan 21 hefjast þar tón-
leikar undir heitinu Úr myrkr-
inu yfir í birtuna. Þar flytja þær Anna Jónsdóttir
sópran og Sophie Schoonjans hörpuleikari íslensk
þjóðlög og sönglög frá ýmsum löndum, sem í sam-
einingu eiga að geta leitt huga manns í gegnum
myrkrið yfir í ljósið.
Myndlist
Þráðverk og söngur
í Hnitbjörgum
Rósa Sigrún
Jónsdóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG held að það verði gaman að
heyra verk þessara ólíku kynslóða
saman. Þetta er skemmtilegt yfirlit
um það sem hefur breyst og það sem
er líkt með kynslóðunum,“ segir
Daníel Bjarnason píanóleikari, tón-
skáld og hljómsveitarstjóri. Á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
á Myrkum músíkdögum í Há-
skólabíói í kvöld kl. 19.30 flytur
hljómsveitin fjögur íslensk verk, þar
af munu þrjú heyrast í fyrsta sinn á
Íslandi. Eitt verkanna, Píanókons-
ert, er eftir Daníel sjálfan, en hann
mun jafnframt stjórna hljómsveit-
inni í fyrsta sinn opinberlega. „Það
er rosalega gaman að vinna með
sinfó og bónus að vera með mitt eig-
ið verk. Ég hef gaman af því að fá að
fylgja verkinu mínu alla leið og
þurfa ekki að stíga til hliðar fyrir
annan hljómsveitarstjóra á æfinga-
tímabilinu. Ég held að það sé líka að
vissu leyti gaman fyrir hljómsveitina
að hafa tónskáldið á pallinum.“
Nóg að gera hjá Víkingi
Víkingur Heiðar Ólafsson er ein-
leikari í konsertinum, sem er í þrem-
ur þáttum, „millihröðum, hægum og
mjög hröðum“, og hann er stór í
sniðum. „Það er mikið að gera fyrir
píanóleikarann. Víkingur tekur
þetta föstum tökum; fær að láta ljós
sitt skína og spilar nánast allan tím-
ann án þess að stoppa. Hann er frá-
bær.“
Daníel segir að Dialogo eftir Hauk
Tómasson sé mjög flott verk. „Það
er mikill kraftur í því, snerpa og
rytmík, en líka ljóðrænir staðir á
milli. Ríma eftir Þorkel Sigurbjörns-
son er frá 1977 og er íslensk stemma
þar sem Þorkell vinnur með rímna-
lög. Klarinettukonsertinn hans Jóns
Ásgeirssonar er mjög fallegur og
gaman að hafa Einar Jóhannesson í
einleiknum.“
Blæðandi
fegurð
Frumraun Daníels Bjarnasonar með Sinfó
Morgunblaðið/Valdís Thor
Daníel Bjarnason „Ég hef gaman af því að fá að fylgja verkinu mínu alla
leið, og þurfa ekki að stíga til hliðar fyrir annan hljómsveitarstjóra.“
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞRJÁTÍU myndverk eftir kunna listamenn úr
safni Thyssen-Bornemisza Contemporary Art
Collections, sem er í eigu Francescu von Habs-
burg, verða seld á uppboði hjá Philips & Pury í
London í dag. Féð á að nota til að styrkja ís-
lenska myndlist og menningu.
Í dag verða einnig pallborðsumræður í
London, í tengslum við uppboðið. Þar koma
fram, auk von Habsburg, sýningastjórinn
Hans Ulrich Obrist, forstöðumaður við Ser-
pentine Gallery, Nína Magnúsdóttir fram-
kvæmdastjóri Nýlistasafnsins, og listamenn-
irnir Gabríela Friðriksdóttir, Erling Klingen-
berg og Sigtryggur Baldursson. Umræðunum
stýrir Daniel Birnbaum, en hann stýrir tvíær-
ingnum í Feneyjum í sumar.
Samtímaliststofnun von Habsburg, Nýlista-
safnið og dánarbú Dieter Roth, kynna sam-
tímis hugmyndir um nýja listastofnun í
Reykjavík. Hugmyndin er að steypa saman
umfangsmiklum listasöfnum þeirra þriggja,
auk reynslu og þekkingu þeirra sem koma að
málinu, til að móta nýja uppsprettu listrænnar
sköpunar, sýningastað og geymslusvæði lista-
verka, í „nýju og dýnamísku safnaumhverfi.“
Húsnæðið sem þau renna sjónum til eru hin-
ar gömlu höfuðstöðvar Kaffibrennslu Johnson
& Kaaber við Sæbraut. Nýja Kaupþing er eig-
andi bygginganna, sem í tilkynningu frá stofn-
un Francescu von Habsburg eru sagðar afar
heppilegar til að hýsa þessi metnaðarfullu
verkefni. Í húsinu mættu vera sýningasvæði,
listasafn og listaverkageymslur, auk aðstöðu
fyrir sérfræðinga, vinnustofur listamanna og
fólk sem vinnur að listrænni sköpun og miðlun.
Stofnun von Habsburg er reiðubúin að
leggja fram eina milljón evra, nær 150 millj-
ónir króna, í framkvæmdir í húsinu og að
hleypa verkefninu af stokkunum. Til að svo
megi verða, er víðtækur stuðningur stofnana
og stjórnvalda á Íslandi settur sem skilyrði.
„Á erfiðum tímum sem þessum verðum við
að vinna saman að því bæta samskiptin við Ís-
land,“ segir von Habsburg. „Listasamfélagið á
Íslandi er reiðubúið að vera hluti af lausninni –
því það var aldrei hluti af vandamálinu, og ég
styð það heilshugar.“
Andvirði verkanna sem verða seld á upp-
boðinu í dag, verður m.a. notað til að fjár-
magna fyrirhugaða listastofnun. Á meðal verk-
anna sem seld verða eru stór teikning eftir
Robert Longo, ljósmyndaverk eftir Thomas
Struth, Gregory Crewdson, Sam Taylor-
Wood, og verk eftir Jenny Holzer og Richard
Long.
Ný listastofnun
Francesca von Habsburg, dánarbú Dieter Roth og
NÝLÓ hafa augastað á húsi Ó. Johnson & Kaaber
Morgunblaðið/Golli
Hús Ó. Johnson & Kaaber Svo gæti farið að ný listastofnun verði opnuð í þessu sögufræga húsi.
HAGÞENKIR,
félag höfunda
fræðirita og
kennslugagna,
hefur tilkynnt
hvaða höfundar
og rit eru til-
nefnd til Við-
urkenningar
Hagþenkis fyrir
árið 2008. Hag-
þenkir hefur frá
árinu 1986 veitt
viðurkenningu fyrir fræðirit, náms-
gögn eða aðra miðlun fræðilegs
efnis til almennings. Verðlauna-
upphæðin er kr. 750.000 sem er
sama upphæð og Félag íslenskra
bókaútgefenda veitir til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna í hvorum
flokki fyrir sig.
Meðal tilnefndra eru Aðalsteinn
Ingólfsson fyrir listaverkabókina
Elías B. Halldórsson; Vilhjálmur
Árnason fyrir Farsælt líf, réttlátt
samfélag - kenningar í siðfræði og
Hjörleifur Stefánsson fyrir bókina
Andi Reykjavíkur. Nánari upplýs-
ingar um tilnefningarnar eru á vef
Hagþenkis.
Hagþenkir
tilnefnir
Þorleifur Hauks-
son fékk Haþenk-
isviðurkenninguna
í fyrra.
hagthenkir.is
RÓSA Gísladóttir myndlist-
armaður sýnir nú umhverfislist í
Galleria 196 í Róm. Sýningin sem
haldin er í boði gallerísins í sam-
vinnu við ítalska umboðsfyrirtækið
Pegaso og sendiráð Íslands í Róm,
ber yfirskriftina Looking at the
Overlooked. Ítalska stórblaðið
Corriere della Sera birti grein um
opnunina og sagði frá umhverf-
isþema sýningarinnar (e. ecoarte).
Blaðið birti mynd af meginverki
sýningarinnar, sem ber heitið The
Doubt of Future Foes Exiles My
Present Joy og lýsir ótta okkar við
áhrif mengunar á framtíð jarð-
arinnar. Verkið er þriggja metra
há, upplýst súla úr plastflöskum,
sem innihalda litað vatn. Litirnir í
súlunni endurspegla landslag, him-
in og haf. Önnur verk á sýning-
unni eru ljósmyndir og þrívídd-
arverk sem eru byggð á svipuðum
hugmyndum í umhverfislist.
Umhverfis-
list í Róm
„Þetta er appollónskur konsert
með ástargyðju-ívafi,“ segir
Einar Jóhannesson sem frum-
flytur Klarinettukonsert Jóns
Ásgeirssonar með hljómsveit-
inni á tónleikunum í kvöld.
„Þetta er ekta Jón Ásgeirsson.
Hann byggir verkið á íslenskri
danshefð og svo hefur hann
sína lýrísku æð sem er alveg
dásamleg og við þekkjum úr
sönglögunum hans. Annar kafli
konsertsins er ekkert annað en
blæðandi fegurð,“ segir Einar.
„Ég heyri áhrif frá öðrum tón-
skáldum, bæði frá Sjostakovitsj
og Gerald Finzi. Fyrst og fremst
er þetta þó tónn Jóns, ósvik-
inn.“
Jón, ósvikinn