Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 51
Menning 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 STREPSILS töflur innihalda: Amýlmetakresól 0,6 mg, 2,4 tvíklóróbensýl- alkóhól 1,2 mg. Strepsils töflur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafla látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst. fresti. Einnig má leysa upp 1-2 töflur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Lyfið þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum í allt í eina viku. Notkun lyfsins hefur engin áhrif á önnur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgæf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Strepsils inniheldur tvö bakteríudrepandi og sótthreinsandi efni sem hafa staðbundna verkun við meðferð á vægum sýkingum í munni og hálsi, t.d. kokbólgu, tannholdsbólgu og munnbólgu. 36 stk. í pakka! Nýtt ÞRÁTT fyrir að Batman lifi góðu lífi í heimi kvikmyndanna, eins og sannaðist á gífurlegum vinsældum The Dark Knight í fyrra, er hann ekkert voðalega hress í mynda- söguheimum. Þannig er nefnilega mál með vexti að myndasöguhöf- undurinn Grant Morrison drap Bruce Wayne á síðum myndasögu- blaðsins Detective Comics (er birt hefur hina eilífu framhaldssögu um Batman í um 70 ár) í nóv- ember í fyrra. Endalok Bruce Waynes urðu þannig að hann var skotinn til bana af geðsjúkum glæpamanni er svo reyndist vera faðir hans. Nú hefur útgáfufélagið DC Co- mics tilkynnt um arftaka Batmans sem á að verja saklausa íbúa hinn- ar myrku Gotham-borgar fyrir harðsnúnum glæpamönnum. Sá er ekki alveg eins og flestir höfðu gert sér í hugarlund, því við Bat- man tekur lesbísk Leðurblökukona er heitir Kath Kane. Hún mun fara með aðalhlutverk í næstu 12 heftum Detective Comics en henni er lýst sem rauðhærðri djammd- rottningu er ráfar á milli lesb- íuklúbba þegar hún er ekki að verja réttlætið í níðþröngum bún- ingi Batwoman. Þó svo að persón- an fari afar leynt með hver hún sé í raun og veru í nýju sögunum verður kynhegðun hennar ekkert leyndarmál. Út úr skápnum fyrir 3 árum Skapari hinnar nýju Leð- urblökukonu er höfundurinn Greg Rucka er segist hafa beðið með hana á teikniborðinu í langan tíma. Fyrsta útgáfa Leðurblöku- konunnar kom fram árið 1956 og þá sem kærasta Leðurblöku- mannsins en síðan þá hafa verið gerðar fjöldamargar breytingar á persónunni. Batwoman kom formlega út úr skápnum fyrir þremur árum og hafa samtök samkynhneigðra fagnað þeirri ákvörðun DC Co- mics að gera hana að arftaka Bat- mans í myndasögublöðunum um ævintýri Gotham-borgar. Batwoman Arftaki Batmans er af- ar ólíkur Bruce Wayne … en hefur þó kannski sama smekk á kvenfólki. Lesbísk Batwoman tekur völdin Bruce Wayne er dáinn og arftaki Batmans er lesbísk leðurblökukona STJARNA leik- arans Josh Brol- ins rís og rís eft- ir leik hans í myndunum No Country for Old Men, Milk og nú síðast W. Nú hefur Woody Al- len ráðið kapp- ann til þess að fara með aðalhlutverkið í næstu mynd sinni en þar mun hann leika á móti engum öðrum en stórleik- aranum Anthony Hopkins sem hef- ur aldrei áður starfað með Allen. Lítið sem ekkert er vitað um söguþráð myndarinnar en Allen er þekktur fyrir það að gefa leikurum sínum aðeins brot af handriti myndarinnar. Það gerir hann til þess að leikararnir smitist ekki af söguþræði myndarinnar, heldur leiki sínar senur eins og raunveru- legt fólk, sem hefur enga hugmynd um hvað bíður þess handan við hornið. Næst sjáum við þá Brolin fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni Jonah Hex sem gerð er eftir sam- nefndri teiknimyndasögu og fjallar um kúreka sem gerir engan grein- armun á réttu og röngu. Josh Brolin vinnur með Allen Josh Brolin SVO gæti farið að Thom Yorke verði með nokk- ur lög í væntan- legri fjórðu mynd í Term- inator-seríu. Samkvæmt NME hefur leikstjór- inn Joseph „McG“ McGinty leitað á náðir Radiohead-söngvar- ans um að mega leita í lagabanka hans fyrir myndina. Þá myndi Yorke starfa með tón- skáldinu Gustavo Santaolalla við gerð nokkra laga fyrir myndina. Tónskáldið Danny Elfman hefur þó verið ráðinn til þess að sjá um kvikmyndatónlistina. Mikil eftirvænting ríkir eftir myndinni en Christian Bale fer með hlutverk uppreisnarleiðtogans John Connor er berst við her vél- menna er hefur yfirtekið jörðina eftir kjarnorkustríð. Thom Yorke Yorke og Tortímandinn @Fréttirá SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.