Morgunblaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TVEIR karlmenn sem voru hætt
komnir þegar þeir misstu meðvitund
vegna súrefnisleysis í lest togarans
Ingunnar AK sl. sunnudag eru báðir
útskrifaðir af gjörgæsludeild. Í kjöl-
far atviksins verða verklagsreglur
hjá HB Granda endurskoðaðar.
Mennirnir vinna hjá fyrirtæki
sem annast löndun og vinnur mikið
fyrir HB Granda. Þeir voru að landa
gulldeplu úr togaranum þegar
óhappið varð. Mennirnir fóru báðir
niður í lest skipsins og hnigu þar
niður.
Samkvæmt upplýsingum frá um-
dæmisstjóra Vesturlandsumdæmis
Vinnueftirlitsins varð súrefnisskort-
ur sökum rotnunar fisksins. „Menn
hafa meiri áhyggjur af þessu yfir
sumartímann því þá er rotnunin
hraðari. Þetta kom mönnum því svo-
lítið í opna skjöldu enda var mjög
kalt í veðri,“ segir Guðjón Sól-
mundsson umdæmisstjóri. Einnig
rotnar gulldepla mjög hratt. Hann
vill ekki kenna gáleysi um hvernig
fór.
Hægt er að setja mæla niður í
lestar skipa til að athuga með súr-
efnismagn eða eitrun, ef einhver er.
Það var ekki gert í þessu tilviki og
því fór sem fór. Í kjölfar atviksins
verða vinnureglur við löndun hjá
HB Granda endurskoðaðar. Meðal
annars verður settur búnaður um
borð í skipin og hjá löndunarmönn-
um til að taka út ástandið í lestum
skipanna.
Guðjón segir að einnig sé í und-
irbúningi að senda út dreifibréf þar
sem varað er við því að fara inn í lok-
uð rými og farið yfir hætturnar sem
því fylgir.
Vinnureglur verða
endurskoðaðar
Í HNOTSKURN
»Gulldepla er lítill fiskur afsilfurfiskaætt. Hún finnst
allt í kringum Ísland en hefur
ekki verið nýtt í neinum mæli
á umliðnum árum.
»Tilraunaveiðar á hennihófust snemma árs og afl-
inn er nýttur í bræðslu.
»Gulldeplan rotnar mjöghratt. Það er ekki á allra
vitorði og er talið meðal or-
sakaþátta í óhappinu á sunnu-
dag.
Löndunarmenn
útskrifaðir af
gjörgæsludeild
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
SKRÁÐ atvinnuleysi í janúar síð-
astliðnum var 6,6% eða að meðaltali
10.456 manns. Í lok mánaðarins var
fjöldi atvinnulausra 12.407. At-
vinnuleysi jókst um 32% að með-
altali frá desember eða um 2.554
manns. Atvinnuleysi hefur ekki ver-
ið jafn mikið frá því í janúar árið
1995 en þá var það 6,8%. Á sama
tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi
1%, eða 1.545 manns, samkvæmt
upplýsingum frá Vinnumálastofnun.
Margir hafa áhyggjur af atvinnu-
leysi meðal ungs fólks. Samkvæmt
yfirliti Vinnumálastofnunar jókst
atvinnuleysi ungs fólks í janúar
svipað hratt og meðal þeirra eldri
en það jókst hraðar meðal þeirra
yngstu fram til áramóta. Frá lokum
desember hefur 16-24 ára atvinnu-
lausum fjölgað úr 2.069 í 2.837 í lok
janúar og eru þeir um 23% allra at-
vinnulausra í janúar eða svipað
hlutfall og var í desember.
Minnst meðal þeirra elstu
Atvinnulausir á aldrinum 16-19
ára voru 723 og atvinnulausir á
aldrinum 20-24 ára voru 2.114. Er
þetta jafnframt fjölmennasti hóp-
urinn á atvinnuleysiskrá núna.
Næstfjölmennasti hópurinn er á
aldrinum 25-29 ára, eða 2.011 tals-
ins.
Ef tölur fyrir aldurshópana 16-29
ára eru lagðar saman kemur í ljós
að í þeim hópi eru 4.848 manns, eða
um 39% allra á atvinnuleysisskrá.
Ekki er óvarlegt að álykta að þessir
hópar teljist til ungs fólks, sem er
án atvinnu.
Minnst atvinnuleysi er meðal
fólks á aldrinum 65-69 ára, en 310
eru atvinnulausir á því aldursbili.
Þeim fjölgar líka hægt og bítandi
sem hafa verið lengi á atvinnuleys-
isskrá. Þeir sem verið hafa á skrá
lengur en sex mánuði voru 1.023 í
lok janúar en 700 í lok desember.
Alls höfðu 273 verið atvinnulausir
lengur en eitt ár í janúar en 255 í
lok desember. Þegar atvinnuleysi
eykst eins mikið og nú er mesta
aukningin meðal þeirra sem hafa
verið atvinnulausir í nokkrar vikur
og mánuði (skammtímaatvinnu-
leysi). Hætt er við að langtíma-
atvinnuleysi muni aukast hröðum
skrefum hér á landi miðað við
hverjar horfurnar eru í íslensku at-
vinnulífi.
Atvinnuleysi er nú mest á Suð-
urnesjum, 11,6%, en minnst á Vest-
fjörðum, 1,6%. Atvinnuleysi jókst
um 34% á höfuðborgarsvæðinu og
um 30% á landsbyggðinni í janúar.
Atvinnuleysi eykst um 32% bæði
meðal karla og kvenna. Atvinnu-
leysið er 7,5% meðal karla og 5,4%
meðal kvenna. Samkvæmt vef
Vinnumálastofnunar í gær voru
14.480 á atvinnuleysisskrá, 9.164
karlar og 5.316 konur.
Alls voru 1.655 erlendir rík-
isborgarar án atvinnu í lok janúar,
þar af 1.075 Pólverjar, eða um 65%
þeirra útlendinga sem voru á skrá.
Langflestir þeirra voru áður starf-
andi í byggingariðnaði eða 690 alls.
Aðrir voru áður starfandi við ýmsa
þjónustustarfsemi.
Spáin ekki uppörvandi
Ekki er spá Vinnumálastofnunar
um horfurnar uppörvandi. Stofn-
unin segir að erfitt sé að áætla
framvinduna vegna mikillar óvissu í
efnahagslífinu, en líklegt sé að at-
vinnuleysið í febrúar muni aukast
verulega og verða á bilinu 7,9-8,4%.
Gert sé ráð fyrir áframhaldandi
samdrætti í mörgum atvinnugrein-
um á næstu mánuðum, einkum í
verslun, mannvirkjagerð og þjón-
ustugreinum.
Unga fólkið missir vinnuna
Morgunblaðið/ÞÖK
Atvinnuleysið Byggingariðnaðurinn hefur farið einna verst út úr kreppunni. Nú eru 690 útlendingar á atvinnu-
leysisskrá sem áður störfuðu í byggingarvinnu. Eru það um 42% allra útlendinga sem eru á atvinnuleysisskrá núna.
Alls voru 4.848 einstaklingar á aldrinum 16-29 atvinnulausir í janúar eða 39% þeirra sem eru skráðir
1.023 höfðu verið atvinnulausir í meira en sex mánuði og langtímaatvinnuleysi vex hröðum skrefum
)*E& / "($)42E"
($B/$
#
!
#
!#!
ALLS voru 2.136 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir
í lok janúar í hlutastörfum, þ.e. þeir sem voru í reglu-
bundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tíma-
bundið starf á síðasta skráningardegi í janúar. Þetta er
um 17,2% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir.
Einstaklingum sem fá greiddar hlutabætur hefur fjölg-
að mjög eftir að Alþingi samþykkti í nóvember sl. lög
um hlutabætur á móti minnkuðu starfshlutfalli. Af
þeim 2.136 sem voru í hlutastörfum í lok janúar eru
1.279 einstaklingar sem sóttu um atvinnuleysisbætur
samkvæmt áðurnefndum lögum. Þeir voru 668 í lok
desember og 210 í lok nóvember.
Í janúar voru 586 sjálfstætt starfandi einstaklingar
skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri,
en samkvæmt fyrrnefndum lögum var þeim gert mögu-
legt að sækja um atvinnuleyisbætur. Þessum ein-
staklingum hefur fjölgað jafnt og þétt. Þeir voru 264 í
lok desember og sjö í lok nóvember.
2.136 á atvinnuleysisskrá eru í hlutastörfum
14.480
á atvinnuleysisskrá í dag.
Snúum vörn í sókn!
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Opnir vinnufundir Endurreisnarnefndar
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur það verkefni að móta tillögur
og hugmyndir um uppbyggingu íslensks efnahagslífs næstu misserin. Á
næstu vikum verða fjölmargir fundir þar sem leitað verður eftir skoðunum
og áliti flokksmanna og annarra sem vilja taka þátt í starfinu á þessu
mikilvæga viðfangsefni.
Nefndin mun standa fyrir opnum vinnufundum sem Vilhjálmur Egilsson
stýrir:
Föstudaginn 13. febrúar hefst fundur á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 17.
Laugardaginn 14. febrúar hefst fundur klukkan 10 í Valhöll - fundað verður í
fjórum hópum eftir viðfangsefnum.